Níu af hverjum tíu nýjum íbúum Íslands í ár koma erlendis frá – 2022 verður algjört metár

Erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði um rúm­lega íbúa­fjölda Akraness á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma fluttu fleiri íslenskir rík­is­borg­arar frá land­inu en aftur til þess. Alls hefur erlendum rík­is­borg­urum hér­lendis fjölgað um 42.170 á tíu árum.

Mannflóran á Íslandi hefur breyst hratt síðastliðinn áratug. Í lok september 2012 voru erlendir ríkisborgarar 6,5 prósent íbúa. Í dag eru þeir 16,3 prósent þeirra.
Mann­flóran á Íslandi hefur breyst hratt síð­ast­lið­inn ára­tug. Í lok sept­em­ber 2012 voru erlendir rík­is­borg­arar 6,5 pró­sent íbúa. Í dag eru þeir 16,3 pró­sent þeirra. Mynd: Bára Huld Beck

Fleiri Íslend­ingar hafa flutt af landi brott en til lands­ins á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Alls hafa 490 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar flutt frá land­inu en til þess á umræddu tíma­bili. Á sama tíma hefur fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem flutt hafa til Íslands auk­ist um 8.270 umfram þá sem hafa flutt frá því.

Þar af voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar 3.510 fleiri en brott­fluttir á öðrum árs­fjórð­ungi 2022 og 3.410 á þriðja árs­fjórð­ungi. Einungis einu sinni áður í Íslands­sög­unni hafa aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar umfram brott­flutta verið fleiri þrjú þús­und á einum árs­fjórð­ungi. Það var á öðrum árs­fjórð­ungi 2017 þegar þeir voru 3.130 tals­ins.

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um mann­fjölda á Íslandi.

2022 er metár

Mesti fjöldi aðfluttra erlendra rík­is­borg­ara umfram brott­flutta sem hafði komið til lands­ins innan heils árs kom á árinu 2017. Þá var fjöld­inn alls 7.910. Það liggur því fyrir að fjöldi erlendra sem kom til lands­ins umfram þá sem fluttu burt á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs er umfram þá tölu. Nýtt met hefur þegar verið sett á þessu ári. Fátt bendir til þess að sam­dráttur verði í aðflutn­ingi á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins og því verður árið 2022 að öllum lík­indum nýtt metár í inn­flutn­ingi erlendra rík­is­borg­ara til Íslands.

[adspot]Alls hefur íbúum á Íslandi fjölgað um 9.230 það sem af er ári. Níu af hverjum tíu nýjum íbúum eru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar. Til að setja umfang þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem bæst hafa við flóru lands­manna á þremur fyrstu árs­fjórð­ungum árs­ins 2022 í sam­hengi má benda á að þeir eru 350 fleiri en allir íbúar Akraness í lok sept­em­ber og næstum jafn margir og allir íbúar Sel­tjarn­ar­ness og Grinda­víkur sam­an­lagt.

Alls eru erlendu rík­is­borg­arar sem búa á Íslandi nú 62.990 tals­ins, eða 16,3 pró­sent allra íbúa lands­ins. Í lok sept­em­ber 2012 voru þeir 20.820 tals­ins og 6,5 pró­sent íbúa. Þeim hefur því fjölgað um 42.170 á sléttum ára­tug. Það eru 2.520 fleiri en búa í næst fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, Kópavogi, en íbúar þess voru 39.650 í lok síð­asta mán­aðar.

Flestir í Reykjavík en fáir í Garðabæ

Flestir erlendu rík­is­borg­ar­arnir búa í höf­uð­borg­inni Reykja­vík, en þeir eru 27.460 tals­ins, eða 19,8 pró­sent íbúa borg­ar­innar. Alls búa 56,4 pró­sent allra íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í Reykja­vík en 69,6 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem búa á svæð­inu. Ef Kjósa­hreppur, þar sem 280 manns búa, er und­an­skilin búa fæstir erlendir rík­is­borg­arar sem sest hafa að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á Sel­tjarn­ar­nesi, eða 450 tals­ins. Þeir eru alls 9,6 pró­sent íbúa þess sveit­ar­fé­lags. Hitt sveit­ar­fé­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem er með hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara undir tíu pró­sentum er Garðabær. Þar búa alls 1.100 erlendir rík­is­borgar sem eru 5,8 pró­sent allra íbúa.

Hjá þeim sveit­ar­fé­lögum sem eru með fleiri en þús­und íbúa er hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara af heild­inni hæst í Reykja­nesbæ, þar sem 28,8 pró­sent íbúa eru fæddir ann­ars­staðar en á Íslandi.

Pólverjar sex prósent íbúa landsins

Flestir þeirra sem hér búa og eru með annað rík­is­fang en íslenskt koma frá Póllandi. Þeir voru 22.888 tals­ins í byrjun októ­ber sam­kvæmt tölum frá Þjóðskrá. Það þýðir að um sex pró­sent íbúa lands­ins eiga rætur að rekja til Póllands. Því búa fleiri Pól­verjar á Íslandi en búa í heild í fjórða stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, Reykja­nesbæ, en íbúa þess eru 21.840 alls.

[links]Alls hefur þeim sem eiga rætur að rekja til Póllands fjölgað um 1.697 á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs. Þeim hefur fjölgað meira en nokkrum öðrum hópi erlendra rík­is­borg­ara, þar með talið þeirra sem hafa komið til lands­ins sem flótta­fólk frá Úkraínu vegna stríðs­ins sem þar geisar.

Aukn­ingin hefur þó hlut­falls­lega verið lang­mest í þeim hópi. Alls voru 239 með rætur í Úkraínu hér­lendis í byrjun des­em­ber í fyrra. Þeim hefur síðan fjölgað um 696 pró­sent, eða um 1.664 tals­ins og er nú 1.903. Þessi mikla fjölgun hefur gert það að verkum að rík­is­borg­arar Úkraínu eru nú í fimmta sæti yfir fjöl­menn­ustu erlendu rík­is­borg­ara­hópanna sem skráðir eru með búsetu á Íslandi. Í des­em­ber voru þeir sem eru með úkra­ínskt ríki­fang í 31. sæti yfir fjöl­menn­ustu erlendu hópanna sem hér búa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár