„Þau hefðu bara átt góðan séns á því að fá hæli á Íslandi“

Hæl­is­leit­endur, sem vísað var úr landi í lok októ­ber, eru í hópi þeirra sem eiga rétt á að mál þeirra verði tekin til efn­is­legrar með­ferðar sam­kvæmt nýjum úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála.

Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata.
Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Hópur hæl­is­leit­enda á rétt á að mál þeirra verði tekin til efn­is­legrar með­ferðar. Þetta kemur fram í úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála sem birtur var í morgun.

Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata, vakti athygli á að því í upp­hafi þing­fundar í dag að margir sem til­heyra hópnum eru meðal þeirra sem vísað var úr landi í lok októ­ber þegar íslensk yfir­­völd sendu alls 15 ein­stak­l­inga á brott með leiguflugi aftur til Grikk­lands. Ætlunin var raunar að senda 28 manns, en 13 fund­ust ekki þegar lög­­­reglu­­mann reyndu að hafa uppi á þeim til flutn­ings af landi brott.

„Það, að þessi hópur fólks hafi átt rétt á efn­is­legri með­ferð þýðir að þau hefðu bara átt góðan séns á því að fá hæli á Íslandi,“ sagði Lenya undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Mörg sem eiga rétt á efnislegri meðferð hefur verið vísað úr landi

„Sum þeirra hafa þó nú þegar verið send með valdi til Grikk­lands, þar sem sum eru heim­il­is­laus og bjarg­ar­laus og eiga afar lít­inn mögu­leika á því að koma aftur til Íslands, mæta í við­tal hjá Útlend­inga­stofnun og fylgja end­ur­upp­tök­unni eftir. Hvers vegna? Jú, því það er algengt að fólk á flótta í leit að hæli sé vega­bréfs­laust og þurfi að reiða sig á að fá grísk ferða­skil­ríki og það mun taka afar langan tíma því hæl­is­leit­enda­kerfið í Grikk­landi er lamað af álagi,“ hélt Lenya áfram og tók þannig undir orð Helga Þor­steins­sonar Silva, lög­manns margra hæl­is­leit­enda sem til­heyra hópnum, sem sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að erfitt verði að fram­fylgja úrskurð­inum þar sem margir hæl­is­leit­end­anna hafa ekki gild ferða­skil­ríki.

[links]Úrskurður kæru­nefndar byggir á dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem komst að þeirri nið­ur­stöðu í októ­ber að stjórn­völd hafi rang­lega kennt Suleiman Al Mas­ri, palest­ínskum hæl­is­leit­anda, um tafir í máli sínu á meðan ferða­tak­mark­anir voru í gildi vegna heims­far­ald­urs og honum var skylt að sýna nei­kvætt COVID-próf. Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að stjórn­völdum var óheim­ilt að synja honum um end­ur­upp­töku máls.

Í kjöl­farið fór Helgi, lög­maður Suleiman, fram á að kæru­nefnd útlend­inga­mála úrskurð­aði í fleiri sam­bæri­legum málum. Úrskurð­irnir eru tæp­lega 30 og telur Helgi að þeir nái til um 100 hæl­is­leit­enda hér á landi.

„Þetta er á þeirra ábyrgð“

Lenya segir stjórn­völd bera ábyrgð á stöð­unni sem hæl­is­leit­end­urnir eru nú í. „Stjórn­völd, leidd af for­sæt­is­ráð­herra sem básúnar stöðugt um mann­rétt­indi og ber sér á brjóst fyrir að hafa gert mis­munun ólög­lega. Rík­is­stjórnin, með Katrínu Jak­obs­dóttur við stjórn­völ­inn, vill frekar fljúga fólki úr landi í skjóli nætur með handafli. Isavia er látið skína ljósi á mynda­vélar fjöl­miðla til þess að ekki sjá­ist til lög­regl­unnar fylgja hæl­is­leit­endum sem þau hafa í haldi inn í flug­vél.“

„Þetta er á þeirra ábyrgð. Það er á þeirra ábyrgð að þessu fólki hafi verið fleygt úr landi með ofbeld­is­fullum hætti. Það er á þeirra ábyrgð að þessu fólki sé ófært að leita réttar síns hér á landi vegna þess að það er heim­il­is­laust og vega­bréfs­laust Í Grikk­landi einmitt núna,“ sagði Lenya, sem spurði að lokum:

„Stendur VG á bak­við útlend­inga­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins eða Vinstri grænna?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár