Óheimilt að synja hælisleitanda um endurupptöku vegna ásakana um tafir

Stjórn­völdum var óheim­ilt að synja palest­ínskum hæl­is­leit­anda um end­ur­upp­töku máls á grund­velli þess að hafa sjálfur tafið málið. Lögmaður segir stjórn­völd verða að bregð­ast við og koma í veg fyrir mestu fjölda­brott­vís­anir Íslands­sög­unnar.

Suleiman Al Masri hefur dvalið á Íslandi í um tvö ár. Héraðsdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að stjórnvöldum var óheimilt að synja honum um endurupptöku máls á grunsvelli þess að hafa sjálfur tafið málið.
Suleiman Al Masri hefur dvalið á Íslandi í um tvö ár. Hér­aðs­dómur hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að stjórn­völdum var óheim­ilt að synja honum um end­ur­upp­töku máls á grunsvelli þess að hafa sjálfur tafið málið. Mynd: Aðsend

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að stjórn­völd hafi rang­lega kennt Suleiman Al Masri, palest­ínskum hæl­is­leit­anda, um tafir í máli sínu og var því óheim­ilt að synja honum um end­ur­upp­töku máls.

[links]Suleiman Al Masri er í hópi þeirra Palest­ínu­manna sem ekki fengu efn­is­lega máls­með­ferð þrátt fyrir að hafa dvalið hér í heilt ár. Hann telur sig og nokkra aðra sem sviptir voru ólög­lega þjón­ustu Útlend­inga­stofn­unar í fyrra­vor og end­uðu á göt­unni hafi fengið aðra og verri með­ferð en aðr­ir. Þeir hafi verið teknir út fyrir sviga þrátt fyrir að mál þeirra séu sam­bæri­leg málum ann­arra sem fengu jákvæða nið­ur­stöðu hjá kæru­nefnd­inni.

Magnús Davíð Norðdahl lög­maður segir um stór­tíð­indi að ræða og að dóm­ur­inn sé for­dæm­is­gef­andi fyrir fjöl­mennan hóp hæl­is­leit­enda sem strand­aði hér á landi á tíma­bili kór­ónu­veirunnar og ekki tókst að flytja úr landi. „Í dómnum er stað­fest með afger­andi hætti að stjórn­völd hafi rang­lega kennt við­kom­andi um tafir í máli sínu og því hafi verið órétt­mætt með öllu að synja við­kom­andi um end­ur­upp­töku máls,“ segir Magnús í sam­tali við Kjarnann. Magnús hefur sinnt málum fjölda hæl­is­leit­enda sem til­heyra þessum hópi ásamt með­eig­endum sínum á lög­manns­stof­unni Norðdahl, Narfi & Silva. Helgi Þor­steins­son Silva er lög­maður Suleiman.

Í vor var greint frá því að flóð­bylgja brott­vís­ana væri fram undan. Í fyrstu var greint frá því að um 300 manns væri að ræða, meðal ann­ars börn, og að stærstur hluti þeirra ætti að fara til Grikk­lands. Síðar greindi Útlend­ingastfnun frá því að um 197 manns væru á lista stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra sem vísa ætti úr landi á næst­unni

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði að sam­staða ríkti innan rík­is­stjórn­ar­innar um að fram­kvæma brott­vísun fólks­ins, reglur væru skýrar og engar breyt­ingar væru fyr­ir­sjá­an­legar á þeirri ákvörðun. Guð­mundur ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, var á öðru máli og sagði það rangt að sam­staða væri um máli. Hann sagð­ist hafa gert „al­var­legar athuga­semd­ir“ við þá veg­ferð sem Jón væri og að hann væri ekki ánægður með það hvernig ráð­herra hafi haldið á mál­inu.

Frumvarp sem komst aldrei á dagskrá

Þing­flokkar Sam­fylk­ingar, Flokks fólks­ins, Pírata og Við­reisnar lögðu fram sam­eig­in­legt frum­varp til að bregð­ast við fyr­ir­hug­uðum fjölda­brott­vís­unum. Í frum­varp­inu er að finna nýtt bráða­birgða­á­kvæði sem felur í sér að dráttur á máls­með­ferð umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, sem varð vegna heims­far­ald­urs COVID-19, verði ekki tal­inn á ábyrgð umsækj­end­anna sjálfra og því skuli taka umsóknir þeirra til efn­is­legrar með­ferðar hafi þeir verið hér í 12 mán­uði eða leng­ur. Frum­varpið komst hins vegar aldrei á dag­skrá.

Suleiman til­heyrir hópi umsækj­enda sem hafa náð tíma­mörkum en verið synjað um end­ur­upp­töku og efn­is­með­ferð vegna ásak­ana stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra um taf­ir.

„Mörgum ein­stak­lingum í hópnum hafði á sínum tíma verið synjað um end­ur­upp­töku og efn­is­með­ferð í málum sínum vegna hæp­inna ásak­ana stjórn­valda um að við­kom­andi ein­stak­lingar hefðu sjálfir tafið mál sín,“ segir Magnús.

Stjórnvöld verði að koma í veg fyrir mestu fjöldabrottvísanir Íslandssögunnar

Í nið­ur­stöðu dóms­ins segir að ekki hafi „verið rétt­mætt að leggja til grund­vallar að stefn­andi bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á með­ferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutn­ingi hans innan 12 mán­aða frests­ins. Var úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála að þessu leyti byggður á efn­isann­marka sem telst veru­legur.“ Dómurinn ógilti því úrskurð kæru­nefndar útlend­inga­mála þar sem kröfu Suleiman um end­ur­upp­töku á máli sínu var synjað.

Magnús segir dóm­inn for­dæm­is­gef­andi fyrir þann fjöl­menna hóp hæl­is­leit­enda sem ílengd­ist hér á landi vegna far­ald­urs kór­ónu­veiru þar sem aðstæður eru sam­bæri­legar frá máli til máls og verk­lag stjórn­valda í grunn­inn það sama.

„Að fengnum dómnum er ljóst að stjórn­völdum er ekki stætt á öðru en að bregð­ast við og koma í veg fyrir mestu fjölda­brott­vís­anir Íslands­sög­unnar,“ segir Magnús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár