Leggja til að fjölskyldur sem ekki var hægt að senda úr landi fái dvalarleyfi

Útlend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra er komið úr nefnd, nán­ast óbreytt. Stjórn­ar­flokk­arnir leggja til bráða­birgða­breyt­ingu um að nokkur hópur fólks með börn, sem ekki var hægt að senda úr landi vegna veiru­far­ald­urs­ins, fái dval­ar­leyfi hér­lendis.

Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks er formaður allsherjar- og menntamálanefndar.
Bryndís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks er for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hafa lagt til breyt­ingar á frum­varpi dóms­mála­ráð­herra til breyt­inga á lögum um útlend­inga, sem fela í sér að börnum og fólki með börn, sem sóttu um alþjóð­lega vernd á Íslandi fyrir 1. ágúst 2021, skuli verða veitt dval­ar­leyfi hér­lendis. Fyrir utan þetta eru engar efn­is­legar breyt­ingar lagðar til við frum­varp dóms­mála­ráð­herra.

Í breyt­inga­til­lögu meiri­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, sem lögð var fram á þingi í dag, er nýju bráða­birgða­á­kvæði bætt við laga­frum­varp ráð­herra þess efnis að Útlend­inga­stofnun skuli gefa út dval­ar­leyfi til handa for­sjárað­ila barna sem sóttu um alþjóð­lega vernd hér­lendis fyrir 1. ágúst 2021, að því gefnu að umsókn for­sjárað­ila hafi borist fyrir 1. mars 2023. Hið sama gildir ef barn fædd­ist hér á landi á meðan umsókn for­sjárað­ila þess um alþjóð­lega vernd var í vinnslu, ef umsókn for­eldr­anna barst fyrir 1. ágúst 2021.

Nánasti aðstand­andi útlend­ings sem fær útgefið dval­ar­leyfi sam­kvæmt þessu ákvæði mun einnig geta fengið dval­ar­leyfi hér­lendis á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, og það sama mun eiga við um börn við­kom­andi eldri en 18 ára sem ekki hafa gengið í hjú­skap, hafi þau einnig sótt um alþjóð­lega vernd hér­lendis fyrir 1. ágúst 2021 og séu enn á land­inu, ef fjöl­skyldan sam­an­standi af að minnsta kosti einu barni undir 18 ár aldri.

Dval­ar­leyfi sam­kvæmt þessu ákvæði skal veitt til eins árs, og heim­ilt verður að end­ur­nýja það og getur það einnig orðið grund­völlur ótíma­bund­ins dval­ar­leyfis, sam­kvæmt því sem fram kemur í breyt­inga­til­lögu meiri­hlut­ans.

Ætla má að þessi breyt­inga­til­laga snerti nokkurn hóp fólks í hópi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem verið hafa hér á landi frá árinu 2021. Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans segir að veiru­far­ald­ur­inn hafi gert yfir­völdum erfitt um vik að fram­kvæma end­an­legar ákvarð­anir stjórn­valda um brott­vís­anir og frá­vís­anir og í land­inu sé því „nokkur hópur barna og for­sjárað­ila þeirra sem hafa dvalist hér um lengri tíma í ólög­mætri dvöl“.

„Stjórn­völd hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að við­kom­andi fjöl­skyldur upp­fylla ekki skil­yrði lag­anna til að fá alþjóð­lega vernd eða dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Með hlið­sjón af þeirri sér­stöku stöðu sem er komin upp þykir þó rétt, í stað þess að fram­kvæmdar verði brott­vís­anir eða frá­vís­anir í þessum málum, að opnað sé tíma­bundið á mögu­leika for­sjárað­ila þess­ara barna til að sækja um dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli atvinnu­þátt­töku en þeim dval­ar­leyfum fylgja dval­ar­leyfi fyrir börn þeirra,“ segir í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans.

Þar segir einnig að með þessu úrræði fari við­kom­andi ein­stak­lingar úr kerfi stjórn­valda, sem ætlað er umsækj­endum um alþjóð­lega vernd og flótta­fólki, í þá stöðu sem gildi um aðra þriðja ríkis borg­ara sem koma hingað til lands á grund­velli atvinnu­þátt­töku. Það sé því á ábyrgð for­sjárað­ila að útvega sér atvinnu hér á landi, örugga sjúkra­trygg­ingu og eigið hús­næði að ákveðnum tíma liðnum. Þá beri við­kom­andi, við end­ur­nýjun leyf­is­ins, að upp­fylla almenn skil­yrði laga um útlend­inga líkt og gildir um aðra dval­ar­leyf­is­hafa.

Engar aðrar breytingar af hálfu meirihlutans

Aðrar efn­is­legar breyt­ingar eru ekki lagðar til við frum­varp dóms­mála­ráð­herra, sem verið hefur til umfjöll­unar í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd frá því undir lok októ­ber­mán­aðar. Verið er að leggja þing­málið fram, þó í breyttri mynd, í fimmta sinn og ætla má að það verði tekið til 2. umræðu á þingi á næstu dögum.

Ýmis atriði í frum­varp­inu hafa verið gagn­rýnd, ekki síst sú boð­aða breyt­ing að grunn­þjón­usta til umsækj­enda um alþjóð­lega vernd verði felld niður 30 dögum eftir að end­an­leg ákvörðun á stjórn­sýslu­stigi um umsókn hans til verndar liggur fyrir, en Samtök íslenskra sveit­ar­fé­laga sögð­ust til dæmis telja að sú breyt­ing hefði í för með sér fjölgun heim­il­is­lausra á Íslandi, aukið álag á félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga og auk­inn kostnað fyrir sveit­ar­fé­lögin.

[adspot]

„Óhjá­kvæmi­legur fylgi­fiskur slíkrar neyðar hlýtur ávallt að vera aukin hætta á því að hlut­að­eig­andi ein­stak­lingar verði ber­skjald­aðri fyrir hver kyns mis­neyt­ingu, man­sali og ofbeld­i,“ sagði einnig í umsögn sam­bands­ins til alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Land­lækn­is­emb­ættið hefur einnig sagt í umsögn til þings­ins að óásætt­an­legt sé að komið geti upp sú staða að fólk verði svipt rétti til heil­brigð­is­þjón­ustu.

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur brugð­ist við athuga­semdum sem snerta þetta með því að benda á að ein­ungis barn­lausir og full­orðnir ein­stak­lingar, sem væru hér á landi í ólög­mætri dvöl og neiti sam­vinnu við stjórn­völd um að fara af landi brott, geti átt það á hættu að enda á göt­unni án nokk­urs réttar til þjón­ustu.

Í athuga­semd sem dóms­mála­ráðu­neytið gerði var áréttað að ein­stak­lingur sem er í þess­ari stöðu á rétt á „marg­vís­legri aðstoð frá stjór­völdum við að fara af landi brott, s.s. greiðslu far­gjalds og ferða­styrks og eftir atvikum end­urað­lög­un­ar­styrks sem getur numið allt að 450 þús­und krónum“ og að það verði að „telj­ast eðli­leg krafa að ein­stak­lingur hlíti lög­mætum ákvörð­unum stjórn­valda“.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar segir um þetta atriði að fram hafi komið fyrir nefnd­inni að reglu­gerð um heil­brigð­is­þjón­ustu við þá sem eru ekki sjúkra­tryggðir á Íslandi gerði ráð fyrir neyð­ar­að­stoð fyrir ein­stak­linga sem væru ekki sjúkra­tryggðir hér á landi. Einnig hefði verið fyrir nefnd­inni verið rætt um lög um félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga og reglur um fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga sem úrræði fyrir þessa ein­stak­linga.

„Regl­urnar gera ráð fyrir að erlendum rík­is­borg­urum sem ekki eiga lög­heim­ili í land­inu skuli í sér­stökum til­vikum veitt fjár­hags­að­stoð hér á landi. Meiri hlut­inn und­ir­strikar að þessi úrræði eru neyð­ar­úr­ræði sem upp­fylla þær kröfur sem 76. gr. stjórn­ar­skrár­innar gerir og tryggir að ein­stak­lingar eigi ekki á hættu ómann­úð­lega eða van­virð­andi með­ferð í skiln­ingi 68. gr. stjórn­ar­skrár­innar, sbr. 3. gr. mann­rétt­inda­sátt­mál­ans. Því ættu útlend­ingar ekki að falla utan allrar þjón­ustu eða fram­færslu á vegum hins opin­bera,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár