Segja stjórnarmeirihlutann stilla öryrkjum upp á móti útlendingum

Tillaga þing­manns Pírata um að taka af dag­skrá frum­varp um alþjóð­lega vernd var felld á Alþingi. Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn segja það fárán­legt að afgreiða eigi frum­varpið áður en ein­greiðsla til öryrkja verði tekin fyrir á þingi.

Tillaga Andrésar Inga Jónsson, þingmanns Pírata, um að fresta umræðu um breytingu á lögum um útlendinga fram yfir áramót var felld við upphaf þingfundar. Stjórnarandstaðan sakar meirihlutann um að setja fjölda mála í uppnám með þessu.
Tillaga Andrésar Inga Jónsson, þing­manns Pírata, um að fresta umræðu um breyt­ingu á lögum um útlend­inga fram yfir ára­mót var felld við upp­haf þing­fundar. Stjórn­ar­and­staðan sakar meiri­hlut­ann um að setja fjölda mála í upp­nám með þessu. Mynd: Bára Huld Beck

Tillaga Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns Pírata, um að taka af dag­skrá þing­fundar frum­varp um alþjóð­lega vernd og fresta fram yfir ára­mót, var felld við upp­haf þing­fundar í dag með 30 atkvæðum gegn 21.

Andrés Ingi sagði það óábyrgt af meiri­hlut­anum að ætla að tefla í tví­sýnu fjölda mála sem liggja fyrir þingi með því að setja útlend­inga­frum­varpið á dag­skrá. Með því sé verið að fresta öðrum brýn­ari málum, líkt og almanna­trygg­ingum og ein­greiðslu til öryrkja.

[adspot]Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagði for­gangs­röðun dag­skrár­mála fárán­lega. Frum­varpið sé ekki full­unnið, í því séu vís­bend­ingar um að verið sé að brjóta á stjórn­ar­skrár­vörðum rétt­indum.

„Það er verið að setja það hérna fremst á dag­skrá á eftir fjár­lögum, störfum þings­ins, fram yfir ein­greiðslu almanna­trygg­inga, ein­fald­lega af því að við munum vera hérna til að tala um það hvernig rík­is­stjórnin er að brjóta á stjórn­ar­skrár­vörðum rétt­indum fólks. Þangað til það verður lagað, mjög ein­fald­lega, þá verðum við nátt­úr­lega sökuð um mál­þóf til að koma í veg fyrir ein­greiðslu öryrkja. Þetta er bara fárán­legt,“ sagði Björn Leví.

Gísli Rafn Ólafsson, þing­maður Pírata, tók í sama streng. „Þetta eru mál sem þurfa að klár­ast, þetta eru mál sem ættu að vera fyrst á dag­skrá. Í stað­inn er sett mál sem er vitað að ef það kemur á dag­skrá verður það rætt enda­laust.“

[links]Útlend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra er komið úr nefnd, nán­ast óbreytt, og er þriðja mál á dag­skrá þing­fundar dags­ins. Stjórn­ar­flokk­arnir leggja til bráða­birgða­breyt­ingu um að nokkur hópur fólks með börn, sem ekki var hægt að senda úr landi vegna veiru­far­ald­urs­ins, fái dval­ar­leyfi hér­lendis.

Ekki fullbúið til umræðu í þingsal

Þingmenn Pírata sögðu frum­varpið ekki til­búið til umræðu í þing­sal, til að mynda eigi eftir að taka fyrir beiðnir varð­andi nán­ari grein­ingu á þeim áhrifum sem frum­varpið hefur á stjórn­ar­skrár­bundin rétt­indi og rétt­indi sem varin eru með mann­rétt­inda­sátt­málum sem Íslandi er aðili að, líkt og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, benti á.

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar sem afgreiddi frum­varpið úr nefnd­inni, sagð­ist ekki telja neina ástæðu til að taka málið af dag­skrá þing­funar. Hún sagði veru­lega umræðu nú þegar hafa farið fram þar sem þetta er í fimmta sinn sem frum­varp til breyt­inga á útlend­inga­lögum er lögð fram. Sagði hún málið full­unnið af hálfu nefnd­ar­innar.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði málið ekki vera full­unnið en að frum­varpið yrði sam­þykkt af meiri­hlut­anum sem mun hafa í för með sér skerð­ingu á rétt­indum fólks á flótta.

„Þetta er svo ógeðfellt“

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, sagði meiri­hlut­ann vera að beita fyrir sig fram­gangi kjara­bóta til öryrkja til að drepa umræðu um útlend­inga­mál. „Þetta mun tefja gríð­ar­lega mik­il­væg mál sem allir eru sam­mála um hér í þessum þing­sal og það er aug­ljóst hver til­gang­ur­inn er,“ sagði Arndís Anna.

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, benti á að Trygg­inga­stofnun geti ekki afgreitt ein­greiðslu til öryrkja fyrr en fjár­auka­lög og frum­varp vel­ferð­ar­nefndar verði sam­þykkt. „Það er raun­veru­leg neyð hjá fólki, en ein­hverra hluta vegna þá finnst stjórn­ar­meiri­hlut­anum hér á Alþingi meira aðkallandi að skerða rétt­indi útlend­inga en að afgreiða þessi mál sem er alger sam­staða um hérna í þing­sal. Þetta er svo ógeð­fellt,“ sagði Jóhann Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár