Ítalskir lögregluþjónar hafi undrast komu Antons og Viktoríu

Hinn rúss­neski Anton Garbar, sem vísað var úr landi ásamt Viktoríu eig­in­konu sinni í gær, segir að ítalskir lög­reglu­menn hafi undr­ast komu þeirra til Mílanó í fylgd fjög­urra íslenskra lög­reglu­þjóna. Hjónin eru nú í haldi ítal­skra yfir­valda.

Viktoría og Anton Garbar eru nú í haldi ítalskra yfirvalda, eftir að hafa verið fylgt frá Íslandi í fylgd fjögurra lögregluþjóna.
Viktoría og Anton Garbar eru nú í haldi ítal­skra yfir­valda, eftir að hafa verið fylgt frá Íslandi í fylgd fjög­urra lög­reglu­þjóna. Mynd: Aðsend

Anton og Viktoría Garbar, ung rúss­nesk hjón sem sóttu um alþjóð­lega vernd hér á landi í kjöl­far þess að hafa flúið Rússland fyrr á árinu af ótta við póli­tískar ofsóknir, voru flutt til Mílanó á Ítalíu í gær, með milli­lend­ingu í Kaup­manna­höfn, í fylgd fjög­urra íslenskra lög­reglu­þjóna.

Þetta sagði Anton í skila­boðum til Kjarnans í nótt, úr varð­halds­her­bergi sem þau hjón deildu á flug­vell­inum í Mílanó. Hann segir að þau hafi flogið til Kaup­manna­hafnar kl. 5 í gær­morgun og setið svo í 4-5 tíma á Kastrup-flug­velli í litlu her­bergi með dregið fyrir dyr og glugga. Lög­reglan hafi komið vel fram við þau, fært þeim sam­lokur og kaffi.

Er þau lentu á Ítalíu, segir Anton að ítalskir lög­reglu­þjónar hafi virst undr­andi á því að sjá þau. Þeir hafi spurt íslenska starfs­bræður sína af hverju þeir væru að koma með rúss­nesku hjónin til Ítalíu, og að eftir smá þögn hafi íslenska lög­reglan svarað að það væri á grund­velli Dyfl­innar-reglu­gerð­ar­innar. Í kjöl­farið hafi ítalska lög­reglan spurt hvort þau væru búin að sækja um alþjóð­lega vernd á Ítalíu, sem þau hafa ekki gert.

„Eftir þetta sögðu lög­reglu­þjón­arnir fjórir bless við okkur og fóru á hótel. Þeir fljúga aftur heim [í dag],“ segir Anton í skila­boðum til Kjarnans.

Í kjöl­farið segir Anton að ítalska lög­reglan hafi fært þau inn á gang á flug­vell­inum, og að tveir lög­reglu­þjónar sem ekki hafi talað neina ensku hafi gert til­raun til að taka af þeim sím­ana. „Eftir að við spurðum hvort við værum hand­tekin voru okkur færðir sím­arnir aftur og við flutt í her­bergi þar sem við erum bara tvö,“ segir Anton.

Anton segir jafn­framt að skömmu eftir mið­nætti hafi lög­reglu­maður þotið inn í her­bergið til þeirra, er hann og Viktoría voru við það að festa svefn. Hann spurði af hverju Anton hefði verið að nota sím­ann sinn, og telur Anton að hann hafi séð hann nota sím­ann á mynda­vélum sem eru í her­berg­inu. Anton seg­ist hafa svarað því til að hann hefði notað sím­ann, þar sem þetta væri hans sími.

Í kjöl­farið segir hann að lög­reglu­mað­ur­inn hafi yfir­gefið her­bergið án þess að loka hurð­inni og hávær sam­töl lög­reglu­þjóna hafi haldið fyrir þeim vöku. Anton sagði við Kjarnann, í skila­boðum sem hann sendi í nótt, að þeim hefði verið sagt að skrán­ing­ar­skrif­stofa lög­reglu vegna Dyfl­innar-end­ur­send­inga opn­aði kl. 10.[links]

Íslensk vin­kona hjón­anna, sem hefur verið í sam­bandi við þau í morgun, segir í færslu á Facebook að Anton og Viktoría hafi verið færð á lög­reglu­stöð í mið­borg Mílan þar sem þeim verði haldið í tvo daga á meðan þau sæki um alþjóð­lega vernd á Ítalíu. Þeim verði úthlut­aður túlkur.

Anton og Viktoría höfðu verið á Íslandi frá því í byrjun apríl. Sökum þess að þau fóru fyrst til Ítalíu, á leið­inni hingað, hafa íslensk yfir­völd þó synjað þeim um alþjóð­lega vernd á Íslandi, bæði Útlend­inga­stofnun og síðar kæru­nefnd útlend­inga­mála.

Í grein sem Anton fékk birta í Kjarn­anum á þriðju­dag sagði hann að þau hjónin teldu mál þeirra hryggi­leg mis­tök íslenska útlend­inga­mála­kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár