Þýskaland sendir nánast ekki nokkurn flóttamann aftur til Grikklands

Þýskir dóm­stólar telja end­ur­send­ingar flótta­fólks til Grikk­lands fela í sér hættu á að það verði fyrir ómann­úð­legri með­ferð. Einungis einn flótta­maður sneri frá Þýska­landi til Grikk­lands í fyrra. Rúm 50 þús­und sem hafa vernd í Grikk­landi eru í Þýska­landi.

Þessi vegalausa fjölskylda frá Afganistan var mynduð af fréttaljósmyndara EPA í miðborg Aþenu haustið 2020. Þau höfðu, eins og margir aðrir flóttamenn sem fengið hafa hæli í Grikklandi, hafst við á götunni.
Þessi vega­lausa fjöl­skylda frá Afganistan var mynduð af frétta­ljós­mynd­ara EPA í mið­borg Aþenu haustið 2020. Þau höfðu, eins og margir aðrir flótta­menn sem fengið hafa hæli í Grikk­landi, hafst við á göt­unni. Mynd: EPA

Einungis einn flótta­maður, sem hlotið hafði alþjóð­lega vernd í Grikk­landi, en síðan komið sér til Þýska­lands og óskað hælis þar í landi, sneri aftur til Grikk­lands á síð­asta ári. Yfirvöld útlend­inga­mála í Þýska­landi álíta að þeim sé óheim­ilt að vísa fólki til Grikk­lands að svo stöddu, vegna úrskurða all­nokk­urra þýskra dóm­stóla, sem hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hætta á örbirgð og van­virð­andi með­ferð, í skiln­ingi Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, vofi yfir flótta­fólki sem sent yrði aftur til Grikk­lands.

Þetta kemur fram í svari til Kjarnans frá fjöl­miðla­full­trúa Alrík­is­skrif­stofu fólks­flutn­inga og flótta­manna í Þýska­landi (Bundesamt Für Migration und Flüchtlinge, BAMF).

Blaða­maður spurði að því hve margir ein­stak­lingar, sem þegar hefðu hlotið vernd í Grikk­landi hefðu komið til Þýska­lands og óskað eftir hæli á und­an­förnum árum, og einnig að því hversu margir ein­stak­lingar í þeirri stöðu hefðu verið sendir frá Þýska­landi og aftur til Grikk­lands á sama tíma.

Yfir 50 þúsund með vernd í Grikklandi komið til Þýskalands frá 2019

Í svar­inu kemur fram að frá árinu 2019 hafi verið mikil fjölgun í hópi þeirra sem sækja um hæli í Þýska­landi þrátt fyrir að hafa þegar við­ur­kennda stöðu flótta­manns í Grikk­landi. Frá upp­hafi árs 2019 og fram til 31. júlí 2022 voru umsókn­irnar um hæli í Þýska­landi alls 50.563 tals­ins. Árið 2021 voru umsókn­irnar 29.508 og á fyrstu sjö mán­uðum þessa árs voru þær 8.638.

[adspot]

Fjöl­miðla­full­trúi BAMF segir jafn­framt að þrátt fyrir að sam­evr­ópskt reglu­verk um hæl­is­mál bjóði upp á að fólk sem hefur vernd í öðru landi sé sent þangað aftur hafi Evr­ópu­dóm­stóll­inn (ECJ) kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í mars árið 2019 að brott­vísun flótta­manna til Grikk­lands væri í ósam­ræmi við 3. grein Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, sem kveður á um að eng­inn maður skuli sæta pynd­ingum eða ómann­legri eða van­virð­andi með­ferð eða refs­ingu.

„Í kjöl­farið á þessu hafa áfrýj­un­ar­stjórn­sýslu­dóm­stólar í Norð­ur­rín-Vest­fa­líu, Neðra-Saxlandi og Berlín-Brand­en­burg – auk fjölda stórn­sýslu­dóm­stóla á fyrsta dóm­stigi – álitið að ein­stak­lingar sem hafa fengið vernd flótta­manns í Grikk­landi eigi á hættu að lenda í örbirgð ef þeim verði vísað þangað vegna skorts á stuðn­ingi. Brott­vís­un­ar­á­kvarð­anir BAMF sem fela í sér að fólk snúi aftur til Grikk­lands eru því ómögu­legar sem stendur. Árið 2021 fór ein­ungis ein mann­eskja aftur til Grikk­lands,“ segir í svar­inu frá þýsku stofn­un­inni.[links]

Rauði krossinn telur flutning til Grikklands óforsvaranlegan

Í kjöl­far fjölda­flutn­ings­ins til Grikk­lands í síð­ustu viku ítrek­aði Rauði kross­inn á Íslandi skila­boð sín um að brott­flutn­ingur flótta­fólks til Grikk­lands væri ófor­svar­an­legur.

„Rauði kross­inn á Íslandi for­dæmir brott­vís­anir íslenskra stjórn­valda á umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem þegar hafa fengið stöðu sína við­ur­kennda í Grikk­landi. Félagið hefur ítrekað gagn­rýnt brott­vís­anir til Grikk­lands og telur að þær skapi fólki hættu sem íslensk stjórn­völd beri ábyrgð á,“ sagði í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna.

Á vor­mán­uðum birti Rauði kross­inn ítar­lega grein­ar­gerð um brott­flutn­ing til Grikk­lands, þar sem fjallað var um ýmsar hindr­anir sem standa í vegi þeirra sem eru með stöðu flótta­manna í Grikk­landi. Meðal ann­ars var þar fjallað um tak­markað aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu, hús­næði, atvinnu og félags­legri aðstoð og fram­færslu.

„Rauði kross­inn telur í ljósi fjöl­marga heim­ilda sem ber saman um óvið­un­andi aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi, að end­ur­send­ingar þess til Grikk­lands feli í sér veru­lega hættu á því þau verði fyrir ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð,“ segir í sam­an­tekt Rauða kross­ins á Íslandi.

Fáar endursendingar frá Evrópuríkjum til Grikklands á fyrri hluta árs

Kári Hólm­ar Ragn­ars­son, lektor við laga­deild Há­skóla Íslands, hélt erindi á fundi sem fram fór í Háskóla Íslands í hádeg­inu í gær, undir yfir­skrift­inni Erum við að drukkna í flótta­fólki?

Þar vakti hann athygli á tölu­legum upp­lýs­ingum, sem stafa úr grísku þing­skjali, um end­ur­send­ingar flótta­fólks frá nokkrum öðrum Evr­ópu­löndum til Grikk­lands á fyrri hluta árs­ins.

Samkvæmt því sem þar kemur fram vís­uðu evr­ópsk ríki ein­ungis 96 flótta­mönnum aftur til Grikk­lands á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Þar af höfðu Svíar vísað flestum til baka, alls 35 flótta­mönnum, en fram kemur að end­ur­send­ingar frá Þýska­landi hafi verið átta tals­ins. Í svar­inu sem Kjarninn fékk frá þýsku stofn­un­inni var þess­ara end­ur­send­inga ekki getið.

Á fund­inum í gær benti Kári á að þessar tölur gæfu til kynna að íslenska kerfið væri ekki sér­stak­lega opið þegar kæmi að mót­töku flótta­fólks, eins og stundum mætti skynja á umræð­unni.

Í síð­ustu viku sendu íslensk yfir­völd alls 15 ein­stak­linga á brott með leiguflugi aftur til Grikk­lands og ætl­uðu sér raunar að senda 28 manns, en 13 fund­ust ekki þegar lög­reglu­mann reyndu að hafa uppi á þeim til flutn­ings af landi brott. Kári benti á að ein­ungis þessi fjöldi myndi skjóta Íslandi upp í annað sæti yfir end­ur­send­ingar til Grikk­lands á þessum lista.

Kári fékk einnig þá spurn­ingu úr sal á fund­inum, hvað þyrfti að ger­ast hér­lendis til þess að íslensk yfir­völd myndu byrja að horfa á brott­vís­anir til Grikk­lands með sama hætti og þýsk yfir­völd hafa gert í kjöl­far nið­ur­staðna dóm­stóla þar í landi.

Lekt­or­inn svar­aði því til að dóma­fram­kvæmd í Evrópu væri bæði brota­kennt og flókin, en benti svo á að hér­lendis gæti þetta gerst með stefnu­breyt­ingu stjórn­valda varð­andi fram­kvæmd­ina, eða þá með breyttu mati kæru­nefndar útlend­inga­mála á stöðu mála í Grikk­landi.

Síðan gætu mál af þessu tagi einnig komið til kasta dóm­stóla, sem gætu tekið „prinsipp-ákvarð­anir“ sem hefðu for­dæm­is­gef­andi áhrif á þann veg að stöðva end­ur­send­ingar til Grikk­lands, þó að Kári sjálfur teldi lík­legra að hvert mál yrði skoðað fyrir sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár