Félagsmálaráðherra fagnar ákvörðun héraðsdóms í máli Husseins

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra sagð­ist í ræðu­stóli Alþingis leyfa sér að fagna nið­ur­stöð­unni í máli Hussein Hussein og að hann teldi að tryggja þyrfti að umsókn hans um vernd fengi efn­is­með­ferð hér á landi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra var spurður út nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Hussein Hussein á í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag og sagð­ist ætla að leyfa sér að „fagna því að þetta sé nið­ur­staða hér­aðs­dóms,“ og að hans mati þyrfti að „tryggja að þessi ein­stak­lingur fái hér efn­is­með­ferð, að sjálf­sögðu, eins og hann á rétt á sam­kvæmt nið­ur­stöðu dóm­stóla“.[links]

„Ég geri ráð fyrir að það verði tryggt, en auð­vitað ef þar til gerð stjórn­völd ákvað að áfrýja mál­inu snýr það aðeins öðru­vísi við,“ sagði Guð­mundur Ingi sínu í svari við fyr­ir­spurn Arndísar Önnu K. Gunn­ar­dóttur þing­manns Pírata, sem spurði ráð­herra að því hvernig honum hefði liðið með að „þurfa að verja ákvörðun og fram­kvæmd sem var ólög­mæt“ og hvort hann treysti Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra fyrir þessum mála­flokki, í ljósi nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms.

„Ég ætla að leyfa mér að fagna því að þetta sé nið­ur­staða hér­aðs­dóms, því að mér finnst eðli­legt að tekið sé til­lit til fötl­unar fólks í mál­efnum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og þegar við höfum öll haft tæki­færi til að kynna okkur þennan dóm held ég að það verði áhuga­vert að sjá á hvaða máls­at­vikum það er sem hér­aðs­dómur byggir sína nið­ur­stöðu. En út frá því sem brjóst­vitið segir okkur gæti þar verið um mik­il­vægi samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks að ræða en erfitt að full­yrða eitt eða neitt um það hér úr ræðu­stól þegar maður hefur ekki haft tæki­færi til að lesa yfir dóm­inn,“ sagði Guð­mundur Ingi í ræðu­stól.

[adspot]

Spurn­ingum Arndísar Önnu um hvernig hvernig þótt að verja þá ákvörðun sem nú hefur verið felld úr gildi og hvort hann treysti ráð­herra dóms­mála til þess að fara með mála­flokk­inn lét Guð­mundur Ingi ósvarað.

Skoða ætti aðstæður í Grikklandi

Er Arndís Anna kom aftur í pontu spurði hún hvaða lær­dóm hann teldi að rík­is­stjórnin ætti að draga af þessu máli og hvort ástæða væri til þess að end­ur­skoða þá stefnu rík­is­stjórn­ar­innar að „vísa fötl­uðu fólki jafnt sem nýfæddum börnum á göt­una í Grikk­landi.“

Í svari sínu sagði Guð­mundur Ingi að aðilum greindi á um það, svo ekki væri minna sagt, um hvort aðstæður í Grikk­landi væru þess eðlis að for­svar­an­legt væri að senda fólk þangað, og að hann teldi að gera ætti skoðun á því hvernig aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi væru.

„Þegar maður stendur frammi fyrir við­fangs­efni, þar sem skiptar skoð­anir og kannski mis­mun­andi rök­stuðn­ingur er fyrir, eins og í þessu til­felli hvort það eigi að senda eða ekki senda, þá finnst mér að það sé í hlut­verki stjórn­valda að ganga úr skugga um hvort svo sé. Ég held líka að við þurfum að horfa til þess þegar teknar eru ákvarð­anir varð­andi brott­vísun, og mál eru enn inni í kerf­inu þrátt fyrir að það séu búin í hinni stjórn­sýslu­legu með­ferð, t.d. fyrir dóm­stólum, hvort að þar sé um mögu­lega for­dæm­is­gef­andi mál að ræða eða ekki,“ sagði Guð­mundur Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár