Úrskurður kærunefndar í máli Hussein felldur úr gildi

Hussein Hussein, íraskur hæl­is­leit­andi, og fjöl­skylda­hans komu aftur til Íslands um helg­ina. Hér­aðs­dómur felldi í dag úrskurð kæru­nefndar útlend­inga­mála í máli hans úr gildi.

Lögreglumenn tóku Hussein Hussien úr hjólastólnum og báru hann inn í bíl. Héraðsdómur hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu var ekki heimilt að vísa honum úr landi.
Lög­reglu­menn tóku Hussein Hussien úr hjóla­stólnum og báru hann inn í bíl. Hér­aðs­dómur hefur nú kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska rík­inu var ekki heim­ilt að vísa honum úr landi. Mynd: Skjáskot: Sema Erla

Úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála frá 3. febr­úar 2022, þess efnis ad hafna kröfu Hussein Hussein, fatl­aðs flótta­manns frá Írak, um end­ur­upp­töku máls hans, var í dag felldur úr gildí í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Í kjöl­farið var kveð­inn upp dómur í máli móður Hussein, Maysoon Al Saedi, systra hans Zahraa og Yasameen og bróður hans Sajjad. Þar var nið­ur­staðan sú sama.

„Þetta er ótrú­lega mik­ill léttir af því að það er alveg ljóst að í Grikk­landi beið þeirra engin fram­tíð, ekki neitt. Þeirra vegna er þetta mik­ill léttir,“ segir Claudia Wilson, lög­maður fjöl­skyld­unnar, í sam­tali við Kjarnann.

Fjöl­skyldan kom aftur til Íslands um helg­ina og mun Claudia hitta Hussein, móður hans, bróður og systur síðar í dag til að fara yfir næstu skref.

Með nið­ur­stöðu dóms­ins fellur úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála úr gildi. Það á svo eftir að koma í ljós hvort að Útlend­inga­stofnun muni una nið­ur­stöð­unni eða áfrýja. Ef nið­ur­stöð­unni verður ekki áfrýjað verður mál þeirra tekið til efn­is­legrar með­ferðar.

Samkvæmt Claudiu eru for­sendur dómanna þær að íslenska rík­inu hafi verið óheim­ilt að kenna fjöl­skyld­unum um að hafa valdið töfum á flutn­ingi þeirra frá Íslandi. Málið hefur mikið for­dæm­is­gildi fyrir önnur sam­bæri­leg mál þar sem íslenska ríkið hefur kennt umsækj­endum um töf á flutn­ingi þeirra frá Íslandi.

„For­sendur dómanna er sú að umbjóð­endur mínir báru ekki ábyrgð á töfum í máli þeirra, ann­ars vegar þar sem ósannað var að þau hafi stuðlað að töfum og jafn­vel þó fall­ist hefði verið á slíkt hafi þær tafir hins vegar verið óveru­legar, þar sem stjórn­vald hafi þegar tafið mál þeirra sjálf í 11 mán­uði og 16 daga,“ segir Claudia.

Claudia segir jafn­framt að „það er alveg ljóst að dóm­ur­inn tekur af skarið um langvar­andi og var­huga­verða fram­kvæmd hjá íslenskum stjórn­völdum að halda fólki hér lengi í óvissu og mæta síðan til þeirra, jafn­vel degi fyrir lok 12 mán­aða tíma­frests­ins til þess eins að geta svo kennt þeim um tafir“.

Framkvæmd brottvísunarinnar gagnrýnd harðlega

Þann 3. nóv­em­ber var fimmtán mann­eskjum í leit að vernd vísað frá land­inu og flogið í fylgd 41 lög­reglu­manns, í leiguflug­vél á vegum stjórn­valda, frá Kefla­vík­ur­flug­velli til Aþenu í Grikk­landi. Hóp­ur­inn sam­an­stóð af ell­efu körlum og fjórum kon­um, fólki sem flúði upp­runa­lega Afganistan, Írak, Palest­ínu eða Sýr­land. Hussein og fjöl­skyldan hans voru þeirra á meðal.

[links]Til stóð að vísa 28 manns úr landi en þrettán fund­ust ekki. Hluti hóps­ins beið nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála og hér­aðs­dóms, þar á meðal Hussein og fjöl­skylda.

Claudia lýsti yfir áhyggjum þegar ljóst var í hvað stefndi. Fjöl­skyldan hafði dvalið á Íslandi í tæp tvö ár. Hussein notar hjóla­stól og hefur fjöldi félaga­sam­taka for­dæmt fram­göngu lög­regl­unnar við brott­vís­un­ina, þar sem Hussein var tek­inn úr hjóla­stól sínum og lyft í lög­reglu­bíl. Þá biðu lög­reglu­menn systra hans, sem stund­uðu nám í Fjöl­brauta­skól­anum í Ármúla, að loknum skóla­degi og bróðir þeirra, Sajjad, var hand­járn­aður og færður á lög­reglu­stöð, áður en fjöl­skyldan var svo flutt til Grikk­lands um nótt­ina þar sem fjöl­skyldan hefur hvorki gild dval­ar­leyfi né dval­ar­stað.

Aðal­með­ferð í máli Hussein hófst 18. nóv­em­ber og um tíma leit út fyrir að Hussein kæmi til Íslands til að vera við­staddur rétt­ar­höldin. Dómari fól rík­is­lög­manni við þing­hald máls­ins að kanna hvort ríkið vildi flytja Hussein aftur til Íslands svo hann gæti gefið skýrslu fyrir dómi. Úr því varð ekki en Hussein bar vitni með fjar­fund­ar­bún­aði.

Ríkur vilji til að læra af ferlinu í máli Hussein

Þetta er í fyrsta sinn sem mál af þessu tagi, það er þegar fötl­uðum manni er vísað úr landi, og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Katrín sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV um miðjan nóv­em­ber að „ríkur vilji til þess hvað varðar fram­kvæmd­ina að læra af þessu ferli.“

Í kjöl­far brott­vís­un­ar­innar var ákveðið að ráð­herra­nefnd um flótta­manna­mál og full­trúar lög­reglu, Útlend­inga­stofn­unar, Þroska­hjálpar og Öryrkja­banda­lags­ins myndu hitt­ast til að ræða frekar stöðu fatl­aðs fólks á flótta og skuld­bind­ingar er varða fatlað fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár