„Stóri glæpurinn í þessu er brottvísunin sjálf“

Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra vissi ekki af brott­vísun 15 hæl­is­leit­enda fyrr en að henni kom í síð­ustu viku. Þing­maður Pírata spurði ráð­herr­ann á þingi í dag hvað rétt­læti brott­vísun fatl­aðs manns sem leitað hefur réttar síns fyrir dóm­stólum.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Hvernig rétt­lætir félags­mála­ráð­herra að fötl­uðum manni hafi verið sparkað úr landi gagn­gert til að koma í veg fyrir að hann geti sótt rétt­lætið fyrir dóm­stólum?“ spurði Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, Guðmund Inga Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

[links]Fimmtán umsækj­endum um alþjóð­lega vernd, sem sumir hverjir hafa dvalið á Íslandi í um tvö ár og höfðu sent beiðni um end­ur­upp­töku mála sinna til kæru­nefndar útlend­inga­mála, voru fluttir í lög­reglu­fylgd úr landi í leiguflug­vél aðfara­nótt fimmtu­dags í síð­ustu viku. Áfanga­stað­ur­inn var Grikk­land, ríki sem stjórn­völd hér skil­greina sem öruggt land þrátt fyrir ábend­ingar fjöl­margra mann­úð­ar­sam­taka um allt ann­að.

Hussein Hassa­in er á meðal þeirra sem vísað var úr landi. Hann er í hjóla­stól og hefur leitað réttar síns fyrir dóm­stólum hér á landi. Kæran snýst um það sem hann telur brot á ákvæðum samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks sem og brot gegn jafn­ræð­is­reglu stjórn­sýslu­laga. Málið verður tekið fyrir 18. nóv­em­ber, eftir ell­efu daga.

Vísaði í endanlega niðurstöðu Útlendingastofnunar og kærunefndar

Guð­mundur Ingi ræddi brott­vís­un­ina á Sprengisandi á Bylgj­unni í gær og þar sem hann sagði vinnu­brögð lög­reglu hafa verið óásætt­an­leg og telur hann til­efni til að taka umræðu um hvort Ísland vilji skera sig úr og hætta að senda flótta­fólk til Grikk­lands. Andrés Ingi tók undir gagn­rýni ráð­herra á fram­kvæmd­ina sem hafi vissu­lega verið full­kom­lega óboð­leg og ætti ekki að sjást í sið­uðu sam­fé­lagið. „En stóri glæp­ur­inn í þessu er brott­vís­unin sjálf.“

Andrés Ingi spurði ráð­herra ekki út í „þennan aug­ljósa skort á mannúð í boði rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur,“ beindi hann fyr­ir­spurn sinni að því sem snertir mál­efna­svið ráð­herr­ans.

„Hvernig rétt­lætir félags­mála­ráð­herra að fötl­uðum manni hafi verið sparkað úr landi gagn­gert til að koma í veg fyrir að hann geti sótt rétt­lætið fyrir dóm­stólum?“

Guð­mundur Ingi benti á að það væri nið­ur­staða Útlend­inga­stofn­unar og kæru­nefndar útlend­inga­mála, og dóm­stóla í ein­hverjum til­fellum, að end­ur­send­ingar til Grikk­lands brjóti ekki gegn mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu eða 42. gr. útlend­inga­laga.

„Við vitum hins vegar öll að það eru ýmsir þrösk­uldar í Grikk­landi sem er ekki hægt að horfa fram hjá. Þegar ég er spurður hvort það sé eitt­hvað sem rétt­læti það að hafa tekið fatl­aðan ein­stak­ling til að senda hann úr landi þá var það nið­ur­staða Útlend­inga­stofn­unar og kæru­nefnd­ar­innar að gera það,“ sagði ráð­herr­ann.

„Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála eru ekki endapunkturinn“

Andrés Ingi sagði það ekki vera end­an­lega nið­ur­stöðu í þessu máli þó að Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála hafi kom­ist að því að vísa eigi fötl­uðum ein­stak­lingi á göt­una þjón­ustu­lausum í Grikk­landi.

„Maður hefði haldið ef ráð­herr­ann hefði snefil af metn­aði fyrir mál­efnum fatl­aðs fólks að hann myndi vilja fá nið­ur­stöðu í þetta umdeilda mál, að hann vildi fá að vita hvernig lögin liggja frekar en að sparka þessum ein­stak­lingum úr landi til þess akkúrat að koma í veg fyrir að dóm­stólar sýni hvað er rétt og hvað ekki. Í stað­inn ákveður ráð­herr­ann að Jón Gunn­ars­son sé sá sem hefur rétt fyrir sér í þessu máli,“ sagði Andrés Ingi og hækk­aði róm­inn.

„Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála eru ekki enda­punkt­ur­inn þó að Jón Gunn­ars­son segi það. Félags­mála­ráð­herra þarf að átta sig á því ef hann ætlar að vera starfi sínu vax­inn,“ ítrek­aði þing­mað­ur­inn.

Guð­mundur Ingi svar­aði og sagð­ist ekki vera að tala um „eitt­hvað sem hæst­virtur dóms­mála­ráð­herra hefur sett í hendur mínar heldur hef ég lesið þá úrskurði sem hér er um að ræða og vitna til þeirra, svo það sé alveg á hreinu.“

„Auðvitað er þetta mál óskap­lega erfitt og það er erfitt að vita til þess að fólk hafi verið sent úr landi áður en mál þeirra var tekið fyrir hjá dóm­stólum. Ég held að við getum öll verið sam­mála um það,“ hélt hann áfram.

Fram kom í svari hans að hann vissi ekki af brott­vís­un­inni fyrr en að henni kom, aðfara­nótt fimmtu­dags, og sagði að standa verði betur að málum þegar kemur að brott­flutn­ingi.

„Því við erum með kerfi sem er þannig að við tökum ekki á móti öllum, við vitum það, og sér­stak­lega þegar um fatlað fólk er að ræða. Þá umræðu þurfum við að sjálf­sögðu að taka og það ætla ég að gera með lög­regl­unni,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár