Sérkennilegt að flokkur sem stóð fyrir brottvísun telji stefnu sína mannúðlega

Þing­maður Við­reisnar gerir athuga­semd við að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn telji stefnu sína í útlend­inga­málum mann­úð­lega þegar flótta­fólki er vísað á göt­una í Grikk­landi.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er ómann­úð­legt að senda fólk á göt­una í Grikk­landi, ekki síst ef það er í hjóla­stól. Þess vegna er sér­kenni­legt að við skulum gera það og sér­kenni­legt að stjórn­mála­flokk­ur­inn sem stendur einna helst fyrir því skuli á lands­fundi sínum um helg­ina hafa sam­þykkt það og reynt að full­vissa fólk um að stefnan sé eftir sem áður mann­úð­leg.“

[links]Þetta sagði Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Vísaði hann í frétta­skýr­ingu Kjarnans þar sem fram kemur að þýskir dóm­stólar telja end­ur­send­ingar flótta­fólks til Grikk­lands fela í sér hættu á að það verði fyrir ómann­úð­legri með­ferð.

Evrópsk ríki vís­uðu ein­ungis 96 flótta­mönnum aftur til Grikk­lands á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Þar af höfðu Svíar vísað flestum til baka, alls 35 flótta­mönn­um.

„Við Íslend­ingar ætl­uðum að senda 30 á dög­unum með einni flug­vél í atburði sem hæst­virtur dóms­mála­ráð­herra tal­aði um að væri nán­ast viku­legt brauð hér á Íslandi,“ sagði Sigmar.

[adspot]Vika er síðan íslensk yfir­völd sendu alls 15 ein­stak­linga á brott með leiguflugi aftur til Grikk­lands og ætl­uðu sér raunar að senda 28 manns, en 13 fund­ust ekki þegar lög­reglu­mann reyndu að hafa uppi á þeim til flutn­ings af landi brott.

Ástæða til að ítreka að Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir umburðarlyndi

Sigmar vís­aði í stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í mál­efnum inn­flytj­enda sem sam­þykkt var á lands­fundi flokks­ins um síð­ustu helgi. Friðjón R. Frið­jóns­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vakti sömu­leiðis athygli á stefn­unni í störfum þings­ins í dag. Í henni segir meðal ann­ars:

„Taka ætti vel á móti þeim sem vilja koma hingað til lands til að lifa og starfa. Mik­il­vægt er að tryggja öryggi erlends verka­fólks og virða rétt­indi þeirra. Inn­flytj­endur auðga bæði menn­ingu og efna­hag. Leyfa ætti fólki utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins, sem hefur fengið starf hér á landi og er með hreint saka­vott­orð, að koma hingað og starfa. Ísland ætti að sýna frum­kvæði í því að bjóða fleiri kvótaflótta­mönnum hingað,“ segir meðal ann­ars í stefn­unni. Friðjón sagði ástæðu til þess að ítreka að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur fyrir umburð­ar­lyndi og að Ísland sé opið fyrir fólki sem kemur hingað með lög­legum hætti.

Leggja til að brottvísanir og endursendingar til Grikklands verði stöðvaðar

Sigmar setti spurn­inga­merki við mann­úð­ina í stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Það er ekki nóg að hlut­irnir séu í orði, þeir verða líka að vera í verki.“

Viðreisn, Píratar og Sam­fylk­ing hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu, í annað sinn, um að stöðva brott­vís­anir og end­ur­send­ingar flótta­fólks til Grikk­lands, Ítalíu og Ung­verja­lands. „Af hverju gerum við það? Jú, það er vegna þess að Ísland á að vera ríki sem virðir mann­rétt­indi og er með þau í verki en ekki bara í orði,“ sagði Sigmar.

Meint umburðarlyndi Sjálfstæðisflokksins

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, gerði einnig athuga­semd við nýsam­þykkta stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í mál­efnum inn­flytj­enda. Vísaði hann í Kast­ljós­við­tal við rúss­nesk hjón sem komu hingað til lands frá Rúss­landi, með við­komu á Ítalíu.

Maðurinn er kom­inn með atvinnu­til­boð en getur ekki nýtt sér það vegna hind­r­ana í kerf­inu. „Sama kerfi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sér­stak­lega vill meina að fólk eigi að geta nýtt sér til að kom­ast í vinnu frekar en að sækja í vernd­ar­kerfið,“ sagði Andrés Ingi.

„Hinn spræki vara­þing­maður Friðjón Frið­jóns­son [...] heldur því fram að flokk­ur­inn standi fyrir umburð­ar­lyndi og að Ísland sé opið fyrir fólki sem hingað kemur. Máli sínu til stuðn­ings vís­aði hann í ályktun flokks­ins frá helg­inni um að leyfa ætti fólki utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins, sem hér hefur fengið starf og er með hreint saka­vott­orð, að koma hingað og starfa. Hátt­virtur vara­þing­maður hefur kannski ekki tekið eftir þeim Antoni og Viktoríu sem standa hér fyrir utan Alþingi og mót­mæla vegna þess að þau fá einmitt ekki koma hingað og starfa, vegna þess að þau fá ekki að vera hér á landi í nafni hins meinta umburð­ar­lyndis Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ sagði Andrés Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár