Dómsmálaráðuneytið áfrýjar dómi í máli Hussein til Landsréttar

Með dómi hér­aðs­dóms í des­em­ber var úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála í máli Hussein Hussein felldur niður. Félags­mála­ráð­herra fagn­aði nið­ur­stöð­unni en dóms­mála­ráðu­neytið hefur ákveðið að áfrýja dómnum.

Fjöldi félaga­­sam­­taka for­­dæmdi fram­­göngu lög­­regl­unnar við brott­vís­un­ina, þar sem Hussein var tek­inn úr hjóla­stól sínum og lyft í lög­­­reglu­bíl.
Fjöldi félaga­­sam­­taka for­­dæmdi fram­­göngu lög­­regl­unnar við brott­vís­un­ina, þar sem Hussein var tek­inn úr hjóla­stól sínum og lyft í lög­­­reglu­bíl. Mynd: Skjáskot: Sema Erla

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur áfrýjað dómum Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í málum Hussein Hussein, fatl­aðs flótta­manns frá Írak, móður hans Maysoon Al Saedi, systra hans Zahraa og Yasameen og bróður hans, Sajjad.

Í svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarnans segir að ráðu­neytið meti það svo að nið­ur­staða hér­aðs­dóms sé ekki í sam­ræmi við gögn máls­ins og almenna túlkun og fram­kvæmd á lögum um útlend­inga varð­andi máls­með­ferð­ar­fresti og hvernig tafir á ábyrgð umsækj­enda er metið.

Hussein og fjöl­skylda voru í fimmtán manna hópi í leit að vernd sem var vísað úr landi og flogið í fylgd 41 lög­­­reglu­­manns, í leiguflug­­vél á vegum stjórn­­­valda, frá Kefla­vík­­­ur­flug­velli til Aþenu í Grikk­landi þann 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Hluti hóps­ins beið nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála og hér­aðs­dóms, þar á meðal Hussein og fjöl­skylda.

Fjöl­skyldan hafði dvalið á Íslandi í tæp tvö ár. Hussein notar hjóla­stól og fjöldi félaga­­sam­­taka for­­dæmdi fram­­göngu lög­­regl­unnar við brott­vís­un­ina, þar sem Hussein var tek­inn úr hjóla­stól sínum og lyft í lög­­­reglu­bíl. Þá biðu lög­reglu­menn systra hans, sem stund­uðu nám í Fjöl­brauta­skól­anum við Ármúla, að loknum skóla­degi og bróðir þeirra, Sajjad, var hand­járn­aður og færður á lög­reglu­stöð, áður en fjöl­skyldan var svo flutt til Grikk­lands um nótt­ina þar sem fjöl­skyldan hefur hvorki gild dval­ar­leyfi né dval­ar­stað.

Komu aftur til Íslands og úrskurður kærunefndar var felldur úr gildi

Hér­aðs­dómur kvað upp dóm 12. des­em­ber í máli Hussein ann­ars vegar og máli móður hans, systra og bróður hins vegar þar sem úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála frá 3. febr­úar 2022, þess efnis að hafna kröfu þeirra um end­ur­upp­töku máls var felldur úr gildi.

[links]Með úrskurð­unum hafði kæru­nefnd hafnað beiðnum Hussein og fjöl­skyldu um end­ur­upp­töku á þeim grund­velli að tafir á með­ferð umsókna hefði verið á ábyrgð þeirra sjálfra og því ættu þau ekki rétt á efn­is­með­ferð þótt 12 mán­uðir væru liðnir frá umsókn­ar­degi.

Hussein og fjöl­skylda komu aftur til Íslands nokkrum dögum áður en dóm­ur­inn var kveð­inn upp og hafa systur hans haldið áfram námi við Fjöl­brauta­skól­ann við Ármúla. Claudia Wilson, lög­maður fjöl­skyld­unnar, sagði í sam­tali við Kjarnann í des­em­ber að nið­ur­staða hér­aðs­dóms væri ótrú­lega mik­ill léttir. Samkvæmt henni eru for­sendur dómanna þær að íslenska rík­inu hafi verið óheim­ilt að kenna fjöl­skyld­unum um að hafa valdið töfum á flutn­ingi þeirra frá Íslandi. Málið hafi því mikið for­dæm­is­gildi fyrir önnur sam­bæri­leg mál þar sem íslenska ríkið hefur kennt umsækj­endum um töf á flutn­ingi þeirra frá Íslandi.

Áfrýjunin byggir á túlkun um „tafir á ábyrgð umsækjanda“

Dóms­mála­ráðu­neytið und­ir­strikar í svari sínu að nið­ur­staða hér­aðs­dóms snýr ein­göngu að túlkun laga­á­kvæðis á hug­tak­inu „tafir á ábyrgð umsækj­anda“ en ekki að ein­stak­lings­bundnum aðstæðum máls­að­ila eða aðstæðum flótta­manna á Grikk­landi. Ekki var því fjallað um lög­mæti ákvörð­unar stjórn­valda um frá­vísun máls­að­ila til Grikk­lands.

Ráðu­neytið telur einnig aðfinnslu­vert að hér­aðs­dómur hafi reist nið­ur­stöðu sína á „þrauta­vara­kröfu máls­að­ila án þess að fjalla efn­is­lega um aðal- og vara­kröfu þeirra“.

Félagsmálaráðherra fagnaði niðurstöðu héraðsdóms

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, sagð­ist í ræðu­stól á Alþingi 12. des­em­ber leyfa sér að fagna nið­ur­stöð­unni í máli Hussein og að hann teldi að tryggja þyrfti að umsókn hans um vernd fengi efn­is­með­ferð hér á landi.

„Ég geri ráð fyrir að það verði tryggt, en auð­vitað ef þar til gerð stjórn­völd ákvað að áfrýja mál­inu snýr það aðeins öðru­vísi við,“ sagði Guð­mundur Ingi sínu í svari við fyr­ir­spurn Arn­dísar Önnu K. Gunn­ar­dóttur þing­manns Pírata, sem spurði ráð­herra að því hvernig honum hefði liðið með að „þurfa að verja ákvörðun og fram­kvæmd sem var ólög­mæt“ og hvort hann treysti Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra fyrir þessum mála­flokki, í ljósi nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms.

„Ég ætla að leyfa mér að fagna því að þetta sé nið­ur­staða hér­aðs­dóms, því að mér finnst eðli­legt að tekið sé til­lit til fötl­unar fólks í mál­efnum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og þegar við höfum öll haft tæki­færi til að kynna okkur þennan dóm held ég að það verði áhuga­vert að sjá á hvaða máls­at­vikum það er sem hér­aðs­dómur byggir sína nið­ur­stöðu,“ sagði Guð­mundur Ingi í ræðu­stól.

Áfrýj­un­ar­frestur rennur út í dag og ekki liggur fyrir hvenær afstaða verður tekin til áfrýj­un­ar­innar en ljóst er að mál Hussein og fjöl­skyldur verður ekki tekið til efn­is­legrar með­ferðar á meðan hennar er beðið.

„Verði dómunum ekki áfrýjað er fyr­ir­séð að nið­ur­staða hér­aðs­dóms geti haft áhrif á núver­andi fram­kvæmd stjórn­valda hvað þessi atriði varðar og önnur mál. Að mati ráðu­neyt­is­ins er því mik­il­vægt að Lands­réttur taki fram­an­greind atriði til skoð­unar,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár