„Alveg galið“ að vísa fólkinu úr landi

Það er „óboð­legt“ að stjórn­völd elti uppi hæl­is­leit­endur til að vísa þeim úr landi þegar nið­ur­staða kæru­nefndar í málum þeirra „er rétt handan við hornið“. Þrír hæl­is­leit­endur, sem dvalið hafa á Íslandi frá upp­hafi far­ald­urs­ins, hafa verið hand­teknir.

Í hopnum sem vísa á úr landi eru m.a. Palestínumenn sem hér hafa dvalið lengi.
Í hopnum sem vísa á úr landi eru m.a. Palest­ínu­menn sem hér hafa dvalið lengi. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

„Þetta er algjör­lega óboð­legt,“ segir lög­mað­ur­inn Magnús Davíð Norðdahl um að unnið sé að því að koma hópi umbjóð­enda hans úr landi, aðeins nokkrum dögum áður en afstaða stjórn­valda til end­ur­upp­töku­beiðna í vernd­ar­málum þeirra liggi fyrir.

[links]Þrír umsæk­endur um alþjóð­lega vernd sem eru í hópi skjól­stæð­inga Magnúsar, hafa verið hand­teknir, þeir úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald og er haldið í fang­els­inu á Hólms­heiði. Mál þeirra allra og tuga til við­bótar eru að mati Magnúsar sam­bæri­leg máli hæl­is­leit­enda sem dómur féll í um miðjan októ­ber. Nið­ur­staða hér­aðs­dóms var sú að óheim­ilt hefði verið að synja honum um end­ur­upp­töku máls síns vegna ásak­ana um tafir. „Núna, þegar liðnir eru um tvær vikur frá því að kröfur um end­ur­upp­töku mála ann­arra í sam­bæri­legri stöðu voru sendar stjórn­völdum, og svar vænt­an­legt á allra næstu dögum, þá er lög­reglan að leita að þessu fólki. Og þrír af okkar umbjóð­endum eru í gæslu­varð­haldi núna.“

[adspot]

Magnús átti fundi með umbjóð­endum sínum í fang­els­inu í morgun. Lög­reglan krafð­ist gæslu­varð­halds þar sem hún taldi hættu á því að þeir myndu flýja áður en að fram­kvæmd brott­vís­unar kæmi. Hér­aðs­dómur féllst á þær rök­semdir en Magnús hefur vísað mál­inu til Lands­réttar. Áður en nið­ur­staða hans liggur fyrir telur má telja lík­legt að búið verði að flytja menn­ina úr landi í lög­reglu­fylgd.

Algjörlega óboðlegt

„Í stað þess að stjórn­völd bíði eftir nið­ur­stöðu kæru­nefndar [útlend­inga­mála] sem er vænt­an­leg á allra næstu dögum að þá er drifið í því, og eytt fjár­munum og mann­afla í það, að elta uppi og færa úr landi aðila sem mögu­lega eiga eftir að fá mál sín end­ur­upp­tekin,“ segir Magnús. „Af hverju bíða stjórn­völd ekki eftir nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­beiðn­anna? Þetta er algjör­lega óboð­legt.“

Fólkið sem vísa á úr landi á það sam­eig­in­legt að hafa sótt hér um vernd skömmu fyrir eða í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Á meðan hann stóð voru eins og allir muna settar á harðar ferða­tak­mark­anir og á löngu tíma­bili var engum vísað úr landi. Fólkið, sem m.a. er á flótta frá Palest­ínu, ílengd­ist því hér. Stjórn­völd sök­uðu það margt hvert um að hafa tafið mál sín m.a. með því að hafna því að fara í COVID-próf.

Einn palest­ínski hæl­is­leit­and­inn fór í mál við ríkið og í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms sagði m.a.: „Að öllu fram­an­greindu virtu telur dóm­ur­inn að ekki hafi verið rétt­mætt að leggja til grund­vallar að stefn­andi bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á með­ferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutn­ingi hans innan 12 mán­aða frests­ins. Var úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála að þessu leyti byggður á efn­isann­marka sem telst veru­legur. Þegar af þeirri ástæðu verður fall­ist á kröfu stefn­anda um að ógiltur verði úrskurður nefnd­ar­innar frá 18. nóv­em­ber 2021 þar sem synjað var beiðni hans um end­ur­upp­töku máls­ins.“

Mestu fjöldabrottvísanir Íslandssögunnar

Helgi Þor­steins­son lög­maður sótti málið fyrir Palest­ínu­mann­inn og taldi líkt og Magnús að dóm­ur­inn væri for­dæm­is­gef­andi fyrir þann fjöl­menna­hóp hæl­is­leit­enda sem ílengd­ist hér vegna far­ald­urs­ins. „Að fengnum dómnum er ljóst að stjórn­völdum er ekki stætt á öðru en að bregð­ast við og koma í veg fyrir mestu fjölda­brott­vís­anir Íslands­sög­unnar,“ sagði Helgi við Kjarnann er dóm­ur­inn féll í októ­ber.

Í kjöl­far dóms­ins seg­ist Magnús hafa átt von á því að stjórn­völd yrðu fljót að afgreiða end­ur­upp­töku­beiðnir í öðrum sam­bæri­legum málum. Auk þeirra voru sendar sér­stakar beiðnir til Útlend­inga­stofn­unar og stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra um frestun fram­kvæmda. Að beðið yrði með að vísa fólk­inu úr landi þar til kæru­nefnd útlend­inga­mála hefði fjallað um end­ur­upp­töku­beiðn­irnar.

Engin svör bár­ust.

[adspot]

„Með hlið­sjón af dómnum sem féll, og að fram­kvæmdin er mjög sam­bæri­leg frá máli til máls, þá er þetta nátt­úr­lega alveg galið,“ segir Magnús um stöð­una nú, „alveg sama hvaða mæli­kvarða þú setur á það.“

Stjórn­völd hafa ekki áfrýjað dómi hér­aðs­dóms en frestur til slíks er ekki útrunn­inn. Kæru­nefnd hefur ekki enn tekið afstöðu til end­ur­upp­töku­beiðn­anna. Þannig liggur að mati Magnúsar ekki enn fyrir hvort að stjórn­völd, sem kæru­nefnd er hluti af, túlki nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms með sama hætti og hann og Helgi, þ.e. að málið sé for­dæm­is­gef­andi og að hópur hæl­is­leit­enda eigi rétt á að fá mál sín tekin upp að nýju og til efn­is­með­ferðar.

Ekkert gert fyrr en dómur lá fyrir

Mánuðum saman hafi lög­reglan engin afskipti haft af fólk­inu. En svo allt í einu, eftir að dómur sem lög­menn telja for­dæm­is­gef­andi er kveð­inn upp, og end­ur­upp­töku­beð­inir sendar stjórn­völdum, fer lög­reglan að „leita að mönn­unum“ eins og Magnús orðar það, í þeim til­gangi að vísa þeim úr landi, senda þá til Grikk­lands þar sem aðstæður fyrir fólk á flótta eru erf­iðar og jafn­vel hættu­legar.

Stjórn­völdum ber ekki lögum sam­kvæmt að bíða eftir nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála. En líkt og Helgi orðar það er ráð­ist í lög­reglu­að­gerðir þegar nið­ur­staða um end­ur­upp­töku „er rétt handan við hornið“.

Tapar enginn á því að bíða

Allir sem þarna eru undir eiga að okkar mati rétt á efn­is­með­ferð, segir Magnús. En stjórn­völd séu ekki einu sinni búin að svara því hvort þau eru sam­mála. „Það tapar eng­inn á því að bíða í nokkra daga.“

Magnús og Helgi hafa ekki fengið svör um hvenær nákvæm­lega skjól­stæð­ingar þeirra verða fluttir í lög­reglu­fylgd úr landi en telja að það ger­ist síðar í þess­ari viku.

Jafnvel á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár