Dómsmálaráðherra: Kemur í ljós hvort dómur í máli hælisleitanda verður fordæmisgefandi

Þing­maður Pírata spurði dóms­mála­ráð­herra á þingi í dag hvort hann ætli „í alvör­unni að halda áfram að henda úr landi fólki sem dóm­stólar eru nýbúnir að segja að megi ekki henda úr landi“?

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra segir að það verði að koma í ljós hvort dómur sem féll í máli hæl­is­leit­anda fyrr í þessum mán­uði, þar sem stjórn­völdum var óheim­ilt að synja um end­ur­upp­töku máls á grund­velli þess að hann hafi sjálfur tafið málið, verði for­dæm­is­gef­andi eða ekki.

Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag þar sem Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði dóms­mála­ráð­herra hvort hann ætli „í alvör­unni að halda áfram að henda úr landi fólki sem dóm­stólar eru nýbúnir að segja að megi ekki henda úr landi“?

[links]Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu fyrr í þessum mán­uði að stjórn­völd hafi rang­lega kennt Suleiman Al Mas­ri, palest­ínskum hæl­is­leit­anda, um tafir í máli sínu og var því óheim­ilt að synja honum um end­ur­upp­töku máls. Magnús Davíð Norðdahl, lög­maður nokk­urra flótta­manna sem til­heyra þessum hópi hæl­is­leit­enda, sagði dóm­inn for­dæm­is­gef­andi fyrir fjöl­mennan hóp hæl­is­leit­enda sem strand­aði hér á landi á tíma­bili kór­ónu­veirunnar.

Um 200 manns geta átt rétt á endurupptöku máls

Í vor var greint frá því að flóð­bylgja brott­vís­ana væri fram und­an sem beind­ist að flótta­fólki sem hafði ílengst hér á landi vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í fyrstu var greint frá því að um 300 manns væri að ræða, meðal ann­­ars börn, og að stærstur hluti þeirra ætti að fara til Grikk­lands. Síðar greindi Útlend­inga­stofnun frá því að um 197 manns væru á lista stoð­­deildar rík­­is­lög­­reglu­­stjóra sem vísa ætti úr landi á næst­unni. Þeir gætu nú átt rétt á end­ur­upp­töku máls síns.

[adspot]„Hluti þessa hóps hafði þá verið á Íslandi í ár eða meira og hefði því lögum sam­kvæmt átt rétt á fullri efn­is­með­ferð umsókna sinna hér á landi. Stjórn­völd reyndu hins vegar að brott­vísa þessu fólki án tafar á þeim for­sendum að þau hefðu neitað að und­ir­gang­ast þvingað covid-próf og með því sjálf tafið með­ferð máls­ins,“ sagði Arndís Anna á þingi í dag.

Með nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms er það skýrt að hennar mati að ólög­legt er að kenna umsækj­anda í þess­ari stöðu um tafir á máli og að íslenska rík­inu bæri að taka umsókn­ina fyrir.

„Nú hefur lög­reglan hins vegar haf­ist handa við að leita þetta fólk uppi, fólkið sem á rétt á end­ur­upp­töku máls síns í kjöl­far dóms­ins, til þess að reyna að henda því úr landi og á göt­una í Grikk­landi. Jafnvel þó þetta fólk bíði enn eftir nið­ur­stöðu í máli sínu í kjöl­far dóms­ins,“ sagði hún.

Jón sagði umræddan dóm vera til rýn­ingar í ráðu­neyt­inu og Útlend­inga­stofnun og að það eigi eftir að koma í ljós hvort hann verði for­dæm­is­gef­andi fyrir önnur mál.

„Búinn að gera allt sem hægt var að ætlast til af honum“

Arndís Anna vís­aði í mál hæl­is­leit­anda sem vísað var úr landi nýlega. Maðurinn fer með hlut­verk í leik­rit­inu Snákur í Borg­ar­leik­hús­inu og hefur sýn­ingum á leik­rit­inu nú verið frestað.

„Hann hafði verði hér í um tvö ár, var orð­inn vina­margur, virkur í sjálf­boða­starfi og að læra íslensku, búinn að gera allt sem hægt var að ætl­ast til af honum. Sá maður er einmitt einn þess­ara ein­stak­linga sem var vísað úr landi með valdi þrátt fyrir að hann bíði nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­beiðni sinnar og er hann nú fár­veikur og lyfja­laus á göt­unni í Grikk­landi,“ sagði Arndís Anna.

Jón sagði að velta mætti því fyrir sér hvoru væri um að kenna, „þeim sem neit­aði að fara í Covid-próf til að væri hægt að fram­fylgja nið­ur­stöðu á stjórn­sýslu­stigi, á tveimur stjórn­sýslu­stigum, um að hafna við­kom­andi vernd á Íslandi og mót­töku­landið gerði kröfu um að það fylgdi Covid-próf“.

Arndís Anna svar­aði dóms­mála­ráð­herra og sagði að í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að fram­kvæmd lög­reglu á þving­uðum Covid-prófum væri ekki með þeim hætti að hægt væri að kenna ein­stak­lingnum um taf­irnar þar sem það þótti ekki skýrt að við­kom­andi hefði neitað að taka Covid-próf.

„Það er ekk­ert sem bendir til þess að fólk hafi yfir höfuð skilið hvað væri í gangi. Því var skipað að exa við já eða nei. Og á þessu byggðu íslensk stjórn­völd. Þetta var fellt úr gildi. Það liggur ekk­ert fyrir um að neinn hafi neitað því að taka Covid-próf í fyrsta lagi,“ sagði þing­mað­ur­inn.

„Það eru brottvísanir í gangi“

Jón sagð­ist vona að fyr­ir­liggj­andi frum­varp um breyt­ingar á lögum um útlend­inga, sem hann mælti fyrir á Alþingi í gær, muni skýra stöð­una í útlend­inga­málum. „Það eru brott­vís­anir í gangi,“ sagði ráð­herr­ann, sem vonar að breyt­ingar á útlend­inga­lögum muni auð­velda stjórn­völdum að svara því hverjir eiga í raun erindi til lands­ins.

Þetta er í fimmta sinn sem dóms­mála­ráð­herra úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins leggur fram breyt­ingar á útlend­inga­lögum síðan þau tóku gildi snemma árs 2017. Frum­varpið var síð­ast lagt fram í febr­úar en náði þá ekki fram að ganga, líkt og í fyrri skiptin.

Arndís Anna benti dóms­mála­ráð­herra á að með þeim breyt­ingum sem hann leggur fram nú sé hann í raun og veru að fjölga málum sem þessum með því að fella úr gildi þá reglu sem hefði gert það að verkum að mann­inum sem vísað var úr landi nýlega, og fleiri, hefðu fengið nið­ur­stöðu í máli sínu fyrir ári síðan.

Kemur í ljós hvort umræðan hafi eitthvað þroskast

Jón sagði hann og Arndísi Önnu greina algjör­lega á um inni­hald frum­varps­ins. „Hátt­virtur þing­maður kemur reyndar úr þing­flokki þar sem það hefur verið kallað ógeðis­frum­varpið ítrekað í umræð­unni,“ sagði Jón. Það hafi hún hins vegar ekki gert í fyrstu umræðu um frum­varpið í gær heldur talað um hve áhrifin væru lítil af frum­varp­inu en þess á milli sjái hún á því mikla van­kanta.

„Þannig að mér fannst vera svo­lítið villu­ráf­andi umræða sem frá Pírötum kom alveg sér­stak­lega í þessu máli. Við sjáum hvort hún hefur eitt­hvað þroskast á morgun,“ sagði dóms­mála­ráð­herra. Umræðu um breyt­ingar á útlend­inga­lögum verður fram haldið í þing­inu á morgun, fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár