Fordæma brottvísanir og segja ástandið í Grikklandi óboðlegt

Rauði kross­inn á Íslandi for­dæmir brott­vís­anir stjórn­valda á umsækj­endum um alþjóð­lega vernd og harmar að fólk í við­kæmri stöðu hafi verið frels­is­svipt og þvingað úr landi.

„Rauði kross­inn á Íslandi for­dæmir brott­vís­anir íslenskra stjórn­valda á umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem þegar hafa fengið stöðu sína við­ur­kennda í Grikk­landi. Félagið hefur ítrekað gagn­rýnt brott­vís­anir til Grikk­lands og telur að þær skapi fólki hættu sem íslensk stjórn­völd beri ábyrgð á.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Rauða kross­inum sem send var fjöl­miðlum í dag. Fimmtán umsækj­endum um alþjóð­lega vernd, sem sumir hverjir hafa dvalið á Íslandi í um tvö ár og höfðu sent beiðni um end­ur­upp­töku mála sinna til kæru­nefndar útlend­inga­mála, voru fluttir í lög­reglu­fylgd úr landi í leiguflug­vél í nótt. Förinni er heitið til Grikk­lands.

[adspot]

Í henni harmar félagið með­ferð stjórn­valda á þeim á við­kvæma hópi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem frels­is­sviptir hafa verið og þving­aðir úr landi. Í því sam­bandi áréttar félagið að stjórn­völd eru bundin af grund­vall­ar­reglu stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um með­al­hóf en sam­kvæmt henni skal stjórn­vald ein­ungis taka svo íþyngj­andi ákvörðun, líkt og frels­is­svipt­ing er, þegar lög­mætu mark­miði sem að er stefnt verður ekki náð með öðru og væg­ara móti.

[links]Í ljósi frétta­flutn­ings af brott­vísun fatl­aðs ein­stak­lings sem not­ast við hjóla­stól vill Rauði kross­inn benda á þá alþjóð­legu mann­rétt­inda­samn­inga sem Ísland er aðili að, m.a. samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Samkvæmt fram­an­greindum samn­ingum skulu aðild­ar­ríki þeirra gera allar ráð­staf­anir til að vernda fólk, þar á meðal fatl­aða ein­stak­linga, fyrir pynd­ingum eða annarri grimmi­legri, ómann­legri eða nið­ur­lægj­andi með­ferð eða refs­ingu.

Rauði kross­inn hefur ítrekað bent á að fjölda heim­ilda beri saman um að aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi séu heilt yfir mjög slæmar. „Umsækj­endur, sem hlotið hafa alþjóð­lega vernd í Grikk­landi og seinna leitað hingað til lands og óskað eftir alþjóð­legri vernd, hafa jafn­framt und­an­tekn­ing­ar­laust greint frá óvið­un­andi aðstæðum í Grikk­landi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Hefur yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra búið í yfir­fullum flótta­manna­búðum þar sem öryggi, hrein­læti og aðbún­aði er veru­lega ábóta­vant.“

Kerfisbundnar hindranir

Þegar umsækj­endur hafi hlotið vernd neyð­ist þeir til að yfir­gefa búð­irnar, auk þess sem þeir missa þá lágu fram­færslu sem þeim er tryggð á meðan þeir bíða eftir svari við umsókn sinni um vernd. Vegna kerf­is­bund­inna hind­r­ana og afar mik­ils atvinnu­leysis meðal flótta­fólks í land­inu ná umsækj­endur að sögn Rauða kross­ins ekki að fram­fleyta sér og fjöl­skyldum sínum en fjár­hags­legur og félags­legur stuðn­ingur frá yfir­völdum er eng­inn. Þá er aðgengi flótta­fólks að hús­næði í Grikk­landi alvar­legt vanda­mál og þurfa margir hverjir af þeim sökum að haf­ast við í óvið­un­andi og/eða ólög­legu hús­næði eða á göt­unni. Þar að auki er aðgengi flótta­fólks að grísku heil­brigð­is­kerfi veru­lega skert.

[adspot]

„Rauði kross­inn ítrekar fyrri til­mæli sín til hér­lendra stjórn­valda og hvetur rík­is­stjórn Íslands ein­dregið til að end­ur­skoða þá stefnu að senda umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sem fengið hafa stöðu sína við­ur­kennda í Grikk­landi, aftur þangað. Ástandið í Grikk­landi hefur um nokk­urt skeið verið óboð­legt fyrir flótta­fólk en fólk á flótta á að njóta mann­rétt­inda á sama hátt og annað fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár