Frumvarpi til að koma í veg fyrir fjöldabrottvísun dreift á Alþingi

Frum­varpi fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokka um breyt­ingu á útlend­inga­lögum sem koma á í veg fyrir brott­vísun tæp­lega 200 flótta­manna úr landi hefur verið dreift á Alþingi. Óljóst er hvort frum­varpið kom­ist á dag­skrá fyrir sum­ar­frí.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður frumvarps fjögurra stjórnarandstöðuflokka um breytingu á lögum um útlendinga.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokka um breyt­ingu á lögum um útlend­inga. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Ein­ars­son, þing­maður og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokka um breyt­ingu á lögum um útlend­inga. Frum­varp­inu hefur nú verið dreift á Alþingi.

Flutn­ings­menn frum­varps­ins eru 23 tals­ins og koma úr fjórum af fimm flokkum stjórn­ar­and­stöð­unnar: Sam­fylk­ingu, Flokki fólks­ins, Pírötum og Viðreisn. Mið­flokk­ur­inn á ekki aðild að frum­varp­inu.

[links]Tvö ný bráða­birgða­á­kvæði á lögum um útlend­inga eru í frum­varp­inu sem taka til umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem urðu fyrir því að máls­með­ferð umsókna þeirra dróst af ástæðum sem rekja má til heims­far­ald­urs COVID-19. Breyt­ing­arnar eiga að gera tæp­lega 200 flótta­mönnum sem til stendur að vísa úr landi kleift að dvelja hér áfram.

Tafir á málsmeðferð ekki á ábyrgð umsækjenda

Í fyrra ákvæð­inu er lagt til að tafir sem rekja má til heims­far­ald­urs COVID-19 verða ekki lengur taldar á ábyrgð umsækj­anda og taka skal umsókn til efn­is­legrar með­ferðar ef liðnir eru meira en 12 mán­uðir frá því að umsókn barst íslenskum stjórn­völdum um umsækj­andi hefur ekki yfir­gefið landið.

[adspot]Í síð­ara ákvæð­inu segir að útlend­ingi, sem fékk end­an­lega synjun á umsókn sinni um alþjóð­lega vernd á tíma­bil­inu 1. mars 2020 til 1. febr­úar 2022 og er enn hér á landi 18 mán­uðum eftir að hann sótti fyrst um alþjóð­lega vernd hér á landi, skuli veitt dval­ar­leyfi á á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.

Mun á málsmeðferð megi rekja til verklags lögreglu

Flutn­ings­menn frum­varps­ins telja nauð­syn­legt að bregð­ast við þeim sér­stöku aðstæðum sem uppi hafa verið í heim­inum vegna COVID-19 og komið hafa niður á umsækj­endum um alþjóð­lega vernd. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins benda flutn­ings­menn frum­varps­ins á að fram hefur komið að stjórn­völd hafi metið það svo að ein­hverjir umsækj­enda hafi sjálfir vorið ábyrgð á töfum á máli sínu vegna þess að þeir hafi ekki orðið við beiðni um að und­ir­gang­ast PCR-próf.

Í grein­ar­gerð­inni segir að svo virð­ist sem ekki hafi verið fullt sam­ræmi í mati stjórn­valda varð­andi þetta og að dæmi séu um að umsækj­endur hafi ekki orðið við beiðni um að mæta í PCR-próf en hafi, þrátt fyrir það, ekki verið taldir bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu máls, en aðrir í mjög svip­aðri stöðu hafi verið taldir bera ábyrgð á slíkum töfum af sömu ástæðu.

„Flutn­ings­menn frum­varps­ins telja í ljósi jafn­ræð­is­reglu og með­al­hófs að óeðli­legt sé að gera slíkan grein­ar­mun enda sé afar óljóst í hverju mun­ur­inn felst og hefur því verið haldið fram að mun­inn megi helst rekja til verk­lags lög­reglu í ein­staka málum,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Fáránlegt að láta aðstæður sem tengjast heimsfaraldri bitna á flóttafólki

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, einn flutn­ings­manna frum­varps­ins, sagði undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær að það væri fárán­legt að láta aðstæður sem tengj­ast heims­far­aldr­inum bitna á flótta­fólki, aðstæður sem fólk beri aug­ljós­lega enga ábyrgð á. „Fólkið sem vísa á úr landi hefur margt verið talið bera ábyrgð á töfum á máli sínu vegna þess að það hafi ekki sinnt beiðni um að mæta í svo­kallað PCR-próf til að kom­ast í flug. Það sem fylgir ekki sög­unni er hvernig lög­regla og Útlend­inga­stofnun fram­kvæmdu þessar beiðnir sínar,“ sagði Arndís.

Lýsti hún ferl­inu þegar fólki er til­kynnt að vísa eigi því úr landi með eft­ir­far­andi hætti: „ Lög­reglan mætir óboðin á heim­ili umsækj­enda og þylur upp texta á eyðu­blaði á ensku. Enginn túlkur eða lög­maður er við­staddur og við­kom­andi er ekki boð­inn slíkur og ekki er orðið við beiðni hans um neitt slíkt. Algengt er að fólk skilji ekki hvað er í gangi. Hafa margir þess­ara ein­stak­linga t.d. sagst ekki hafa skilið hvort málið sner­ist um skimun eða bólu­setn­ingu eða eitt­hvað allt annað, og því síður hverjar afleið­ing­arnar af því að mæta ekki gætu orðið. Skilji fólk ekki rull­una er því boðið að svara ját­andi eða neit­andi, hvort þau ætli að vera sam­vinnu­fús. Skilji þau það ekki heldur eru þau spurð hvort þau vilji fara eða ekki og auð­vitað vilja þau ekki fara, en þorra þessa fólks átti að vísa til Grikk­lands og Ung­verja­lands eins og fram hefur komið. Berst svo nið­ur­staða að nokkrum vikum liðnum þess efnis að við­kom­andi hafi tafið mál sitt sjálfur og því sé ekki um það að ræða að hann fái að vera. “

Arndís sagði að þó að engar laga­breyt­ingar sé þörf til að leysa þessi mál sé með frum­varp­inu verið að bjóða Alþingi að taka í taumana og „stöðva þessa óboð­legu fram­kvæmd,“ sagði Arndís, sem hvatti þing­heim allan til að skoða frum­varpið og sam­þykkja.

Dómsmálaráðherra segir samstöðu innan ríkisstjórnarinnar um málið

Ekki er sam­staða um brott­vís­un­ina innan rík­is­stjórn­ar­innar. Frá því að Frétta­blaðið greindi frá því 20. maí síð­ast­lið­inn að flóð­bylgja brott­vís­ana væri fram undan. Í fyrstu var greint frá því að um 300 manns væri að ræða, meðal ann­ars börn, og að stærstur hluti þeirra ætti að fara til Grikk­lands.

Stjórn­mála­um­ræða síð­ustu viku var und­ir­lögð af umræðu um til­von­andi brott­vís­anir. Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði í Kast­ljósi á þriðju­dag að sam­staða ríkti innan rík­is­stjórn­ar­innar um að fram­kvæma brott­vísun fólks­ins, reglur væru skýrar og engar breyt­ingar væru fyr­ir­sjá­an­lega á þeirri ákvörðun.

Guð­mundur ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, bar það til baka í tíu­fréttum RÚV sama kvöld og sagði það rangt að sam­staða væri um máli. Hann sagð­ist hafa gert „alvar­legar athuga­semdir“ við þá veg­ferð sem Jón væri og að hann væri ekki ánægður með það hvernig ráð­herra hafi haldið á mál­inu. Guð­mundur Ingi sagði fleiri ráð­herra hafa gert athuga­semdir við veg­ferð Jóns á rík­is­stjórn­ar­fund­inum en vildi ekki segja hverjir það voru, þeir þyrftu sjálfir að greina frá því.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra svar­aði ekki beint hvort hún hafi verið meðal þeirra en sagði ráð­herra hafa reifað ólík sjón­ar­mið um fjölda­brott­vís­un­ina. „Ég get stað­fest það að það voru ýmis sjón­ar­mið reifuð frá hendi ólíkra ráð­herra,“ sagði Katrín í sam­tali við RÚV.

Óljóst hvort frumvarpið komist á dagskrá fyrir sumarfrí

Dóms­mála­ráð­herra ítrek­aði sam­stöðu í rík­is­stjórn­inni um brott­vís­anir á föstu­dag og full­yrti að eng­inn ráð­herra í rík­is­stjórn­inni hafi farið fram á að staðið verði af brott­flutn­ingi með öðrum hætti en til stendur. Sama dag sendi Útlend­inga­stofnun frá sér til­kynn­ingu þar sem kom fram að hóp­ur­inn sem til stendur að vísa úr landi hafi tekið tals­verðum breyt­ingum. 197 manns eru á lista stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra sem vísa á úr landi á næst­unni, ekki tæp­lega 300 líkt og greint var frá í fyrstu. Vísa á 44 til Grikk­lands, þar sem aðstæður telj­ast ekki boð­legar að mati Rauða kross­ins, en barna­fjöl­skyldum verður ekki vísað úr landi.

Ekki liggur fyrir hvort frum­varpið kom­ist á dag­skrá Alþingis fyrir sum­ar­frí en sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins verður þing­fundum frestað föstu­dag­inn 10. júní. Enn á eftir að semja um afgreiðslu þing­mála en auk fjár­mála­á­ætl­unar fjár­mála­ráð­herra 2023 til 2027 auk fjár­auka­laga á enn eftir afgreiða mál eins og frum­varp dóms­mála­ráð­herra um útlend­inga­lög og ramma­á­ætlun. Málin eru enn í þing­nefndum og frestur til að skila inn umsögn um útlend­inga­frum­varp rennur út í dag. Auk þing­fund­ar­ins í dag eru þrír þing­fundir á dag­skrá fram að þing­frestun, auk eld­hús­dags­um­ræða sem fram fara eftir viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár