Varaformaður VG: Engin samstaða innan ríkisstjórnar um brottvísun um 300 manns

Nokkrir ráð­herrar gerðu athuga­semdir við þá veg­ferð sem Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra er á varð­andi brott­vísun fjölda flótta­manna frá Íslandi á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Félags­mála­ráð­herra seg­ist ekki ánægður með hvernig Jón hefur haldið á mál­inu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, vara­for­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, segir það rangt að sam­staða ríki innan rík­is­stjórn­ar­innar um það að vísa tæp­lega 300 flótta­mönnum úr landi innan tíðar, líkt og Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur haldið fram. Hann seg­ist hafa gert „alvar­legar athuga­semdir“ við þá veg­ferð sem Jón væri á og að hann væri ekki ánægður með það hvernig Jón hafi haldið á mál­inu. „Nei, ég get ekki sagt að ég sé það. Ég held að það sé alveg ljóst af mínum orðum.“

Þetta kom fram í við­tali við Guðmund Inga í tíu­fréttum RÚV í kvöld.

Hann seg­ist þó von­ast til þess að nið­ur­staða náist í mál­inu líkt og í fjöl­mörgum öðrum málum sem ekki hefur ríkt ein­ing um innan rík­is­stjórn­ar­innar.

Fyrir helgi var greint frá því á for­síðu Frétta­blaðs­ins að flóð­bylgja brott­vís­ana þeirra sem sótt hafa hér um vernd sé framundan. Alls telur hóp­ur­inn tæp­lega 300 manns. Stór hluti þeirra á að fara til Grikk­lands.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði í Kast­ljósi í kvöld að sam­staða ríkti innan rík­is­stjórn­ar­innar um að fram­kvæma brott­vísun fólks­ins og að skýrar reglur giltu um það. „Við höfum skýrar reglur til að vinna eftir og það eru í sjálfu sér engar breyt­ingar á því.“

[adspot]Hann sagði það rétt að sér­stakar aðstæður væru uppi varð­andi þennan hóp. Skilyrði hefðu verði um að það í mót­töku­ríkjum að flótta­menn sem ætti að senda þangað hefðu und­ir­geng­ist COVID-próf eða bólu­setn­ingu. Margir flótta­menn hefðu neitað að gera það og því hefði brott­vísun þeirra taf­ist á meðan að slíkar reglur voru í gildi. „Nú eru þessar reglur að hverfa í þessum ríkjum og þá kemur þetta til fram­kvæmda.“

Fleiri ráðherrar gerðu athugasemdir við vegferð Jóns

Útlend­inga­mál heyra ekki ein­ungis undir dóms­mála­ráðu­neytið. Hluti mála­flokks­ins er hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu, sem er stýrt af Guðmundi Inga, vara­for­manni Vinstri grænna (VG).

[links]Hann sagði í tíu­fréttum RÚV í kvöld að það væri ekki rétt hjá Jóni að algjör sam­staða væri um málið í rík­is­stjórn­inni. „Ég gerði mjög alvar­legar athuga­semdir við þá veg­ferð sem ráð­herr­ann er á í rík­is­stjórn í morgun og benti þar á að það er liðin tals­verður tími hjá sumum frá því að brott­vís­un­ar­á­kvörðun var tekin. Það þarf að líta til þessa hóps, hvort að það séu sér­stakar aðstæður, hvort að þarna séu börn sem séu búin að vera ákveðið lengi hér á landi, mögu­lega fatlað fólk og veikt.“

Hann sagði enn fremur að horfa þyrfti til þess tíma sem hóp­ur­inn hefði dvalið hér­lendis og hverjar aðstæður væru í mót­töku­land­inu, en þar hefur sér­stak­lega verið gagn­rýnt að til standi að senda stóran hluta hóps­ins til Grikk­lands, en mann­úð­ar­sam­tök hafa ítrekað sagt að aðstæður flótta­fólks þar séu með öllu óboð­legar.

Guð­mundur Ingi sagði að fleiri ráð­herrar hafi gert athuga­semdir við veg­ferð Jóns á rík­is­stjórn­ar­fund­inum í morgun en vildi ekki segja hverjir það voru. Þeir þyrftu sjálfir að greina frá því.

„Þetta er bara rangt“

Aðspurður um orð dóms­mála­ráð­herra í Kast­ljósi kvölds­ins og þýð­ingu þeirrar stöðu sem komin er upp á stjórn­ar­heim­il­inu sagði Guð­mundur Ingi: „Í mínum huga er þetta bara rangt. Það er bara þannig. Þetta er rangt“.

Hann sagð­ist vona að það tæk­ist að leysa úr mál­inu. „Ég fylgi mann­úð­legri útlend­inga­stefnu VG, það er í okkar stefnu. Að mínu viti þurfum við að taka þetta mál til sér­stakrar skoð­unar og greina hóp­inn betur.“

Sú grein­ing eigi að leiða til þess að skýr­ara liggi fyrir hvort ein­hverjir úr hópnum eigi að geta fengið vernd á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár