Jón Gunnarsson segir að samstaða sé í ríkisstjórn um verklag við brottvísun

Dóms­mála­ráð­herra segir að eng­inn ráð­herra hafi komið fram með form­lega til­lögu um það að það verði unnið eftir öðrum ferlum við brott­vísun flótta­manna en þeim sem hann styðst við. Það kalli hann „sam­stöðu í rík­is­stjórn­inni“.

Jón Gunnarsson er dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra segir að eng­inn ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands hafi farið fram á að staðið yrði að fyr­ir­hug­aðri brott­vísun flótta­manna úr landi með öðrum hætti en hann hefur boðað. Það kalli hann sam­stöðu um málið. Þetta kom fram í hádeg­is­fréttum RÚV en rætt var við Jón að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

[links]Hann segir að mörg hund­ruð manns hafi verið vísað frá Íslandi í tíð þess­arar rík­is­stjórnar á sama grund­velli og nú stendur til að vísa stórum hópi flótta­manna úr landi án þess að gerð hafi verið athuga­semd við það vinnu­ferli.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV í dag að hóp­ur­inn teldi undir 200 manns, en ekki tæp­lega 300 líkt og dóms­mála­ráð­herra hefði áður sagt. Að hennar beiðni hafi dóms­mála­ráð­herra komið með minn­is­blað inn á rík­is­stjórn­ar­fund­inn í morgun. Aðspurð hvort ein­hverjum verði vísað á brott á meðan staðan sé eins og hún er sagði Katrín að sumir væru þegar að fara sjálf­vilj­ugir eftir að máls­með­ferð þeirra lauk. „Önnur eru að bíða mögu­lega eftir frek­ari með­ferð þannig að það er ekki hægt að tala um þetta sem hóp heldur verður að horfa á þetta sem ólíka ein­stak­linga.“

Sagðist hafa gert „alvarlegar athugasemdir“

Jón sagði í Kast­ljósi á þriðju­dag að sam­staða væri í rík­is­stjórn um málið, að reglur væru skýrar og að engar breyt­ingar væru fyr­ir­sjá­an­legar á þeirri ákvörðun.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og vara­for­maður Vinstri grænna, bar það til baka í tíu­fréttum RÚV sama kvöld og sagði það rangt að sam­staða væri um mál­ið. Hann sagð­ist hafa gert „al­var­­legar athuga­­semd­ir“ við þá veg­­ferð sem Jón væri á og að hann væri ekki ánægður með það hvernig Jón hafi haldið á mál­inu. Guð­mundur Ingi sagði að fleiri ráð­herrar hafi gert athuga­semdir við veg­ferð Jóns á rík­is­stjórn­ar­fund­inum en vildi ekki segja hverjir það voru. Þeir þyrftu sjálfir að greina frá því.

[adspot]Jón sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að það eina sem hann hefði sagt í Kast­ljósi væri að það sé sam­staða innan rík­is­stjórn­ar­innar um að vinna sam­kvæmt þeim verk­ferlum sem unnið hefur verið eftir. „Það hefur engin borið upp breyt­ing­ar­til­lögu við mig um að gera þetta með ein­hverjum öðrum hætti.

Varðandi gagn­rýni Guð­mundar Inga sagði Jón að menn virði sínar skoð­anir. „Það er bara eins og gengur og ger­ist við rík­is­stjórn­ar­borðið um hin ýmsu mál. Og menn geta haft þær skoð­anir að það eigi að skoða ein­hver mál ein­stak­linga sem hér eru undir með ein­hverjum öðrum hætti. En það hefur engin komið fram með ein­hverja form­lega til­lögu um það að það verði unnið eftir öðrum ferlum og það kalla ég sam­stöðu í rík­is­stjórn­inni.“

Aðspurð um ummæli Guð­mundar Inga, og full­yrð­ingu hans um að Jón hefði sagt ósatt um sam­stöðu innan rík­is­stjórn­ar­innar, sagði Katrín við RÚV að hann hefði verið að segja að ráð­herr­arnir tveir væru ekki sam­mála um nálgun í þessum málum. „Ég sé ekki að það eigi að koma mjög á óvart að þessir flokkar seú ekki endi­lega sam­mála í þessum málum.“

Ætla að leggja fram frumvarp

Þing­flokkar Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Flokks fólks­ins, Pírata og Við­reisnar greindu frá því í morgun að þeir ætli að leggja sam­eig­in­lega fram frum­varp til að bregð­ast við stöðu þeirra tæp­lega ein­stak­linga sem nú stendur til að senda úr landi með fjölda­brott­vís­un.

Í til­kynn­ingu frá þeim sagði að flokk­arnir leggi til að nýtt ákvæði verði sett til bráða­birgða sem felur í sér að dráttur á máls­með­ferð umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, sem varð vegna heims­far­ald­urs COVID-19, verði ekki tal­inn á ábyrgð umsækj­end­anna sjálfra og því skuli taka umsóknir þeirra til efn­is­legrar með­ferðar hafi þeir verið hér í 12 mán­uði eða leng­ur. „Þing­flokk­arnir leggja einnig til að umsækj­endur sem sóttu um vernd á meðan heims­far­aldur COVID-19 stóð sem hæst og hafa verið hér á landi í 18 mán­uði eða leng­ur, fái dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.“

Frum­varpið er í yfir­lestri verður dreift á Alþingi á mánu­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár