Fjórir flokkar leggja fram frumvarp til að koma í veg fyrir fjöldabrottvísun

Frum­varpi sem mun gera Þeim tæp­lega 300 flótta­mönnum sem til stendur að brott­vísa frá land­inu kleift að dvelja hér áfram verður dreift á Alþingi á mánu­dag. Ekki er sam­staða er um brott­vís­un­ina innan rík­is­stjórn­ar­innar.

Píratar og Samfylking standa að frumvarpinu, ásamt Flokki fólksins og Viðreisn.
Píratar og Sam­fylk­ing standa að frum­varp­inu, ásamt Flokki fólks­ins og Viðreisn. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­flokkar Sam­fylk­ing­ar­innar, Flokks fólks­ins, Pírata og Við­reisnar ætla að leggja sam­eig­in­lega fram frum­varp til að bregð­ast við stöðu þeirra tæp­lega 300 ein­stak­linga sem nú stendur til að senda úr landi með fjölda­brott­vísun.

Í til­kynn­ingu frá þeim segir að flokk­arnir leggi til að nýtt ákvæði verði sett til bráða­birgða sem felur í sér að dráttur á máls­með­ferð umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, sem varð vegna heims­far­ald­urs COVID-19, verði ekki tal­inn á ábyrgð umsækj­end­anna sjálfra og því skuli taka umsóknir þeirra til efn­is­legrar með­ferðar hafi þeir verið hér í 12 mán­uði eða lengur. „Þing­flokk­arnir leggja einnig til að umsækj­endur sem sóttu um vernd á meðan heims­far­aldur COVID-19 stóð sem hæst og hafa verið hér á landi í 18 mán­uði eða lengur, fái dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.“

Frum­varpið er í yfir­lestri verður dreift á Alþingi á mánu­dag­inn.

Ekki samstaða innan ríkisstjórnar

Í síð­ustu viku var greint frá því á for­síðu Frétta­blaðs­ins að flóð­bylgja brott­vís­ana þeirra sem sótt hafa hér um vernd sé framundan. Alls telur hóp­ur­inn tæp­lega 300 manns. Stærstur hluti þeirra á að fara til Grikk­lands. Í hópnum eru meðal ann­ars börn.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði í Kast­ljósi á þriðju­dag að sam­staða ríkti innan rík­is­stjórn­ar­innar um að fram­kvæma brott­vísun fólks­ins, reglur væru skýrar og engar breyt­ingar væru fyr­ir­sjá­an­legar á þeirri ákvörð­un. Hann sagði það rétt að sér­stakar aðstæður væru uppi varð­andi þennan hóp. Skil­yrði hefðu verði um að það í mót­töku­ríkjum að flótta­menn sem ætti að senda þangað hefðu und­ir­geng­ist COVID-­próf eða bólu­setn­ingu. Margir flótta­menn hefðu neitað að gera það og því hefði brott­vísun þeirra taf­ist á meðan að slíkar reglur voru í gildi. „Nú eru þessar reglur að hverfa í þessum ríkjum og þá kemur þetta til fram­kvæmda.“

[adspot]Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, bar það til baka í tíu­fréttum RÚV sama kvöld og sagði það rangt að sam­staða væri um málið. Hann sagð­ist hafa gert „al­var­legar athuga­semd­ir“ við þá veg­ferð sem Jón væri á og að hann væri ekki ánægður með það hvernig Jón hafi haldið á mál­inu.

Hann sagði enn fremur að horfa þyrfti til þess tíma sem hóp­ur­inn hefði dvalið hér­lendis og hverjar aðstæður væru í mót­töku­land­inu, en þar hefur sér­stak­lega verið gagn­rýnt að til standi að senda stóran hluta hóps­ins til Grikk­lands, en mann­úð­ar­sam­tök hafa ítrekað sagt að aðstæður flótta­fólks þar séu með öllu óboð­leg­ar.

Guð­mundur Ingi sagði að fleiri ráð­herrar hafi gert athuga­semdir við veg­ferð Jóns á rík­is­stjórn­ar­fund­inum en vildi ekki segja hverjir það voru. Þeir þyrftu sjálfir að greina frá því.

Vilja búa til almenna lausn fyrir hópinn

Í til­kynn­ingu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fjög­urra segir að fjölda­brott­vís­unin sem hefur verið í und­ir­bún­ingi af hálfu íslenskra stjórn­valda sé ekki laga­leg nauð­syn, heldur yrði slík fram­kvæmd póli­tísk ákvörðun stjórn­valda. „Með fram­lagn­ingu þessa frum­varps leggja flutn­ings­menn til almenna lausn fyrir þennan til­tekna hóp fólks á flótta, ein­staka aðgerð líkt og nauð­syn­legt hefur verið að gera í fjöl­mörgum öðrum málum vegna heims­far­ald­urs­ins. Flutn­ings­menn telja óásætt­an­legt að tafir sem tengj­ast heims­far­aldr­inum verði taldar á ábyrgð umsækj­enda sjálfra, enda var það ekki mark­mið núgild­andi laga, heldur fram­kvæmd sem stjórn­völd hafa tekið upp.“

[links]Flutn­ings­menn frum­varps­ins telja að með því sé verið að bregð­ast við fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda um að brott­vísa ein­stak­lingum og fjöl­skyldum sem hafa verið hér í lengri tíma vegna þeirra sér­stöku aðstæðna sem uppi hafa verið í heim­inum vegna heims­far­ald­urs­ins. „Í þeim aðstæðum, líkt og mörgum öðrum þarf sér­tækar aðgerðir og því eru lögð til bráða­birgða­á­kvæði sem ein­göngu ná til þess hóps sem hér hefur dvalið um langt skeið vegna heims­far­ald­urs­ins. Óvenju­margir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hafa vegna far­ald­urs­ins dvalið hér á landi um lengri tíma, þar á meðal börn og ein­stak­lingar í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu, sem hafa vegna tím­ans byggt upp tengsl við landið. Það er nauð­syn­legt að bregð­ast strax við þessum aðstæðum og tryggja það að við sendum ekki fólk, sem þarf á vernd að halda, af landi brott og í aðstæður þar sem öryggi þess og heilsu er ógnað.“

Fordæmi fyrir svona frumvarpi

Fordæmi eru fyrir því að stjórn­mála­flokkar leggi fram frum­varp til að koma í veg fyrir brott­vís­anir. Í sept­em­ber 2017, skömmu eftir að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar féll en áður en kosið var að nýju, átti tveimur stúlkum úr landi, þeim Haniye Maleki, þá ell­efu ára og rík­is­fangs­laus, og Mary Iserien, þá átta ára frá Níger­íu.

For­menn sex flokka á þingi: Vinstri grænna, Við­reisn­­­ar, Sam­­fylk­ing­­ar, Bjartrar fram­­tíð­­ar, Fram­­sókn­­ar­­flokks og þing­­flokks­­for­­maður Pírata lögðu fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um útlend­inga sem heim­il­uðu þeim og öðrum börnum að vera á Íslandi. Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins var Katrín Jak­obs­dótt­ir, nú for­sæt­is­ráð­herra. Í

Allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem voru við­staddir atkvæða­greiðsl­una kusu gegn frum­varp­inu. Alls 38 þing­menn úr hinum sex flokk­unum sem voru á þingi á þeim tíma sam­þykktu það hins veg­ar. Haniye og Mary fengu að vera og breyt­ing­arnar höfðu áhrif á stöðu tugi barna í hópi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár