Þingmenn Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði á móti breytingum á útlendingalögum

Formenn sex flokka á þingi lögðu fram frum­varp sem koma á í veg fyrir að börnum hæl­is­leit­enda verði vísað úr landi. Þingmenn þeirra flokka sam­þykktu frum­varpið og varð það að lögum í nótt. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks greiddu einir atkvæði gegn því.

Haniye Maleki ásamt föður sínum. Til stóð að vísa þeim úr landi fyrr í þessum mánuði en því var síðar frestað. Mál hennar og annarrar stúlku í hópi innflytjenda er meginástæða þess að frumvarpið var lagt fram.
Haniye Maleki ásamt föður sínum. Til stóð að vísa þeim úr landi fyrr í þessum mán­uði en því var síðar frestað. Mál hennar og ann­arrar stúlku í hópi inn­flytj­enda er meg­in­á­stæða þess að frum­varpið var lagt fram. Mynd: Change.org

Allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem voru við­staddir atkvæða­greiðslu í nótt kusu gegn frum­varpi um breyt­ingar á lögum um útlend­inga þegar það var afgreitt. Frum­varpið var hins vegar sam­þykkt með 38 atkvæðum þing­manna úr öllum hinum sex flokkum þings­ins. Átta þing­menn voru fjar­ver­andi eða með skráða fjar­vist. Flutn­ings­menn þess voru for­menn Vinstri grænna, Við­reisnar, Sam­fylk­ingar, Bjartrar fram­tíðar, Fram­sókn­ar­flokks og þing­flokks­for­maður Pírata. Samþykkt frum­varps­ins kemur meðal ann­ars í veg fyrir að börnum hæl­is­leit­enda sem hér eru nú þegar, og hefur verið synjað um efn­is­lega með­ferð, verði vísað úr landi. Þar á meðal eru tvær stúlkur sem mikið hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum, Haniye Maleki og Mary. Alls hafa breyt­ing­arnar áhrif á stöðu um 80 barna í hópi hæl­is­leit­enda.

Bráðabirgðaákvæðum bætt við

Frum­varpið var eitt þeirra sem sam­þykkt var að myndi fá afgreiðslu svo hægt yrði að slíta þingi. Samkvæmt því myndu tvö bráða­birgða­at­kvæði bæt­ast við lög um útlend­inga. Annað þeirra sner­ist um að ef meira en níu mán­uðir hafi liði frá því að umsókn barns um alþjóð­lega verndi hér­lendis barst íslenskum stjórn­völdum fyrst þá skuli taka hana almennt til efn­is­legrar með­ferðar. Jafn­framt væri þá almennt eðli­legt að taka til efn­is­legrar með­ferðar umsókn for­eldra sem fara með for­sjá barns­ins, og eftir atvikum systk­ina þeirra.

Hins vegar var lagt til að heim­ilt yrði að veita barni sem sótt hefur um alþjóð­lega vernd og ekki fengið nið­ur­stöðu í máli sínu á stjórn­sýslu­stigi innan fimmtán mán­aða frá því að það sótti fyrst um alþjóð­lega vernd hér á landi dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Sama myndi gilda um for­eldra og eftir atvikum systk­ini þeirra.

Þá var þeim börnum sem þegar hafa ekki yfir­gefið landið en kæru­nefnd útlend­inga­mála hafði þegar synjað um efn­is­með­ferð, en falla undir laga­breyt­ing­arnar, veittur tveggja vikna frestur frá gild­is­töku lag­anna til að fara fram á end­ur­upp­töku.

Hefur áhrif á stöðu um 80 barna

Frum­varpið var lagt fram til þess að tvær stúlkur, Haniye og Mary, sem til stóð að vísa úr landi ásamt fjöl­skyldum þeirra, myndu ekki verða sendar í burt. Það nær auk þess til mun fleiri barna í hópi hæl­is­leit­enda. Áður en ákveðið var að boða til kosn­inga hafði verið lagt fram sér­tækt frum­varp til að koma í veg fyrr brott­vísun stúlkn­ana, en það hlaut aldrei efn­is­lega með­ferð vegna stjórn­ar­slita og eft­ir­mála þeirra.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta alls­herj­ar­nefndar kom fram að breyt­ingin á lög­unum geti haft áhrif á stöðu um 80 barna. 

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sagði: „Lagt er til að breyt­ing­arnar taki að sinni aðeins til umsókna sem borist hafa fyrir gild­is­töku lag­anna. Segja má að með því móti gef­ist níu mán­aða svig­rúm frá gild­is­töku lag­anna til að ákveða æski­legt fram­hald enda væri það fyrst níu mán­uðum eftir gild­is­töku sem breyt­ingar af þessu tagi gætu haft bein áhrif á umsóknir sem ber­ast eftir gild­is­töku. Að mati flutn­ings­manna er eðli­legt að veita slíkt svig­rúm svo að unnt verði að meta betur áhrif breyt­ing­anna og nýtt þing geti tekið afstöðu til þess hvernig æski­legt sé að mál­inu verði fram haldið.“

Telja að breytingarnar geti aukið hættu á mansali

Í nefnd­ar­á­liti minni­hluta alls­herj­ar­nefndar, sem sam­an­stóð af þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks í nefnd­inni, sagði m.a.: „Við með­ferð máls­ins komu jafn­framt fram alvar­legar athuga­semdir sem snúa að þeim skila­boðum sem fel­ast í frum­varp­inu og snúa að því að börn eða fjöl­skyldur með börn geti fengið ein­fald­ari máls­með­ferð vegna umsókna um alþjóð­lega vernd. Komið hafa upp mál tengd man­sali á börnum hér­lendis og hætt er við að breyt­ing­arnar geti aukið hættu á man­sali eða smygli á börnum. Þá kom fram að Europol hefur varað við því að nú eru um 10.000 börn flótta­fólks í Evrópu sem ekki er vitað hvar eru nið­ur­komin. Bent var á að þrátt fyrir að um skýrt afmark­aða aft­ur­virka breyt­ingu sé að ræða sé erfitt að sporna við því að flökku­sögur fari á kreik um að auð­veld­ara sé að fá hæli hér á landi en áður og að skipu­lögð glæp­a­starf­semi sem gerir út á smygl á fólki víli ekki fyrir sér að kynda undir þá túlkun.“

Frum­varpið var, líkt og áður sagði, sam­þykkt með öllum greiddum atkvæðum þing­manna sex flokka. Alls sögðu 38 þing­menn já. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem voru við­staddir atkvæða­greiðsl­una, alls 17 tals­ins, greiddu atkvæði gegn því og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, var eini for­maður stjórn­mála­flokks með sæti á þingi sem var ekki á meðal flutn­ings­manna frum­varps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár