Vísa á 197 manns úr landi á næstu dögum – Barnafjölskyldur verða um kyrrt

197 manns eru á lista stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra sem vísa á úr landi á næst­unni. 44 verður vísað til Grikk­lands en barna­fjöl­skyldum verður ekki vísað úr landi.

Vísa á 197 manns ú landi á næstu dögum samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra. Barnafjölskyldum verður ekki vísað úr landi.
Vísa á 197 manns ú landi á næstu dögum sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Barna­fjöl­skyldum verður ekki vísað úr landi.

Hópur flótta­fólks sem vísa á úr landi á næstu dögum hefur tekið tölu­verðum breyt­ingum. Fyrir helgi var greint frá því á for­síðu Frétta­blaðs­ins að flóð­bylgja brott­vís­ana þeirra sem sótt hafa hér um vernd sé framund­an. Þá var hóp­ur­inn sagður telja tæp­lega 300 manns. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Útlend­inga­stofnun telur hóp­ur­inn nú 197 manns, þar af 37 börn, 18 ára og yngri.

Flestir eru frá Nígeríu, 48 tals­ins. 34 eru frá Írak, 15 frá Palest­ínu, 8 frá Afganistan, 7 frá Sómalíu og 7 frá Albaníu. Vegna per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða miða upp­lýs­ingar frá Útlend­inga­stofnun við nið­ur­brot á ríki með minnst fimm ein­stak­linga en heild­ar­fjöldi kemur fram, alls 197.

Í til­kynn­ingu frá Útlend­inga­stofnun kemur fram að listi stoð­deildar með verk­beiðnum frá Útlend­ingstofnun hefur tekið þó nokkrum breyt­ingum að und­an­förnu þar sem tölu­verður fjöldi fólks hefur fengið mál sitt end­ur­upp­tekið hjá Útlend­inga­stofnun vegna langrar veru í land­inu

Heild­ar­fjöldi á verk­beiðna­lista miðað við núver­andi stöðu er 197 manns. Þar af hefur 102 ein­stak­lingum verið synjað um vernd við efn­is­lega með­ferð umsóknar og bíða þess að vera fylgt til heima­lands. 29 bíða end­ur­send­ingar til ann­ars Evr­ópu­ríkis á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og 51 bíður end­ur­send­ingar til ann­ars Evr­ópu­ríkis á grund­velli þess að njóta þar þegar alþjóð­legrar verndar. Þá hefur 15 ein­stak­lingum á list­anum verið gert að yfir­gefa landið „eftir að hafa fund­ist hér í ólög­mætri dvöl“ líkt og segir í til­kynn­ingu Útlend­inga­stofn­unar.

Vísa á flestum til Grikklands

Í til­kynn­ing­unni er það einnig rakið að und­an­farin tvö ár hefur fram­kvæmd frá­vís­ana frá land­inu verið háð miklum tak­mörk­unum vegna sótt­varna­reglna á landa­mærum mót­töku­ríkja. Þær reglur hafa nú verið afnumdar í Grikk­land og til stendur að vísa 44 flótta­mönnum þangað.

[links]Tvær fjöl­skyldur með börn eru í þeim hópi en ljóst er að þeim verður ekki fylgt úr landi þar sem réttur til efn­is­legrar með­ferðar stofn­ast á næstu dögum vegna langrar dvalar þeirra í land­inu. „Stoð­deild er því á þess­ari stundu ekki að und­ir­búa neinn flutn­ing á börnum eða fjöl­skyldum þeirra til Grikk­lands,“ segir í til­kynn­ingu Útlend­inga­stofn­unar.

Tak­mark­anir eru enn í gildi á Ítalíu og stendur því ekki til að hefja und­ir­bún­ing fylgda til Ítalíu eins og stendur en sam­kvæmt lista stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra á að vísa 23 flótta­mönnum til Ítalíu. Þá stendur ekki heldur til að fylgja fólki sem hér dvelur til Ung­verja­lands nema í sam­ráði við stjórn­völd þar í landi en Ung­verja­land hefur opin­ber­lega lýst yfir neyð­ar­á­standi í mál­efnum flótta­manna sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra.

Dómsmálaráðherra segir ríkisstjórnina samstíga

Yfir­vof­andi brott­vís­anir hafa verið umtal­aðar í vik­unni. Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að eng­inn ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands hafi farið fram á að staðið yrði að fyr­ir­hug­aðri brott­vísun flótta­manna úr landi með öðrum hætti en hann hefur boð­að. Það kalli hann sam­stöðu um mál­ið.

Jón sagði í Kast­ljósi á þriðju­dag að sam­staða væri í rík­is­stjórn um mál­ið, að reglur væru skýrar og að engar breyt­ingar væru fyr­ir­sjá­an­legar á þeirri ákvörð­un. Guð­mundur Ingi Guð­brands­­son, félags- og vinn­u­­mark­aðs­ráð­herra og vara­for­maður Vinstri grænna, bar það til baka í tíu­fréttum RÚV sama kvöld og sagði það rangt að sam­­staða væri um mál­ið. Hann sagð­ist hafa gert „al­var­­­legar athuga­­­semd­ir“ við þá veg­­­ferð sem Jón væri á og að hann væri ekki ánægður með það hvernig Jón hafi haldið á mál­inu. Guð­­mundur Ingi sagði að fleiri ráð­herrar hafi gert athuga­­semdir við veg­­ferð Jóns á rík­­is­­stjórn­­­ar­fund­inum en vildi ekki segja hverjir það voru. Þeir þyrftu sjálfir að greina frá því.

Frumvarpi stjórnarandstöðuflokka dreift á Alþingi eftir helgi

Þing­­flokkar Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, Flokks fólks­ins, Pírata og Við­reisnar greindu frá því í morgun að þeir ætli að leggja sam­eig­in­­lega fram frum­varp til að bregð­­ast við stöðu þeirra tæp­­lega ein­stak­l­inga sem nú stendur til að senda úr landi með fjölda­brott­vís­un.

Í til­­kynn­ingu frá þeim sagði að flokk­­arnir leggi til að nýtt ákvæði verði sett til bráða­birgða sem felur í sér að dráttur á máls­­með­­­ferð umsækj­enda um alþjóð­­lega vernd, sem varð vegna heims­far­ald­­urs COVID-19, verði ekki tal­inn á ábyrgð umsækj­end­anna sjálfra og því skuli taka umsóknir þeirra til efn­is­­legrar með­­­ferðar hafi þeir verið hér í 12 mán­uði eða leng­­ur. „Þing­­flokk­­arnir leggja einnig til að umsækj­endur sem sóttu um vernd á meðan heims­far­aldur COVID-19 stóð sem hæst og hafa verið hér á landi í 18 mán­uði eða leng­­ur, fái dval­­ar­­leyfi á grund­velli mann­úð­­ar­­sjón­­ar­miða.“

Frum­varpið er í yfir­­­lestri verður dreift á Alþingi á mán­u­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár