„Vonin hefur aftur verið tekin frá mér“

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur kom­ist að mis­jafnri nið­ur­stöðu í málum Palest­ínu­manna sem hér hafa dvalið í ár. Sumir fá mál sín tekin til efn­is­legrar með­ferðar en aðrir ekki. „Hvernig getur þetta verið mann­úð­legt?“ spyr einn þeirra.

Suleiman Al Masri hefur dvalið á Íslandi í ár. Hann er 26 ára Palestínumaður sem leitar hér verndar.
Suleiman Al Masri hefur dvalið á Íslandi í ár. Hann er 26 ára Palest­ínu­maður sem leitar hér verndar. Mynd: Aðsend

Það virð­ist „til­vilj­ana­kennt og hend­ingu háð“ hvort að Palest­ínu­menn sem leit­uðu verndar hér á landi fyrir meira en ári hafi fengið efn­is­með­ferð í sínum málum eða ekki, segir Magnús Norðdahl, lög­maður nokk­urra þeirra, um nið­ur­stöður kæru­nefndar útlend­inga­mála. Að fá efn­is­með­ferð skiptir sköpum því þá horfa stjórn­völd til aðstæðna í heima­landi fólks en ekki aðeins í því landi sem það hefur fengið vernd sem í til­fellum Palest­ínu­mann­anna er Grikk­land. Þrátt fyrir að stjórn­völd hér á landi álíti Grikk­land „öruggt ríki“ hafa bæði mann­rétt­inda­sam­tök og flótta­menn sem þar hafa dvalið lýst slæmum aðbún­aði. Það gerðu Palest­ínu­menn m.a. í sam­tali við Kjarnann í vor.

[adspot]

Suleiman Al Masri er í hópi þeirra Palest­ínu­manna sem ekki fá efn­is­lega máls­með­ferð þrátt fyrir að hafa dvalið hér í heilt ár. Hann telur sig og nokkra aðra sem sviptir voru ólög­lega þjón­ustu Útlend­inga­stofn­unar í vor og end­uðu á göt­unni hafi fengið aðra og verri með­ferð en aðrir. Þeir hafi verið teknir út fyrir sviga þrátt fyrir að mál þeirra séu sam­bæri­leg málum ann­arra sem fengu jákvæða nið­ur­stöðu hjá kæru­nefnd­inni. „Hvernig getur þetta verið lög­legt? Hvernig getur þetta verið mann­úð­legt?“

Neituðu að fara í COVID-19 próf

Í fyrra sóttu 122 Palest­ínu­menn um alþjóð­lega vernd hér á landi. Þeir höfðu flúið ástandið í heima­landi sínu en þar sem þeir höfðu haft við­komu í Grikk­landi og fengið þar vernd átti að vísa þeim úr landi. Í ein­hverjum til­vikum var það gert en í öðrum hafði far­ald­ur­inn og ferða­tak­mark­anir áhrif sem og sú ákvörðun hæl­is­leit­enda að neita að fara í COVID-próf sem var skil­yrði fyrir ferða­lag­inu.

[links]Nú er svo komið að ár er liðið frá komu margra þeirra og þá eiga þeir rétt á því að mál þeirra séu tekin til efn­is­legrar með­ferðar, að því gefnu að sú dvöl sé lög­leg, þ.e. að við­kom­andi hafi ekki farið í felur eða tafið mál sitt vís­vit­andi. Þessi ákvörðun liggur hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála.

„En svo hefur það verið þannig að sumir þess­ara manna sem hafa dvalið hér í ár hafa fengið efn­is­með­ferð sam­kvæmt nið­ur­stöðu kæru­nefndar en aðrir ekki,“ segir Magnús. „Þar finnst manni ekki að gætt sé fullrar sann­girni.“

Hafa rétt á að hafna líkamsrannsókn

Magnús bendir á að fólk eigi rétt á því að hafna lík­ams­rann­sókn líkt og COVID-próf er og það hafi margir Palest­ínu­mann­anna gert. Kæru­nefndin tók hins vegar þann pól­inn í hæð­ina, að því er virð­ist gegn­um­gang­andi, að þeir sem gáfu út þá yfir­lýs­ingu að þeir ætl­uðu ekki í nein COVID-próf hafi fengið efn­is­með­ferð en ekki þeir sem hafi á ein­hverjum tíma­punkti átt pant­aðan tíma í COVID-próf en ekki mætt í það. Kæru­nefnd lítur þannig á að í þeim til­vikum hafi menn verið að tefja sín mál og á þeim grunni er umsókn þeirra um vernd ekki tekin til efn­is­með­ferðar.

„En á þessu er eng­inn munur,“ segir Magnús. „Eða hver er eðl­is­lægur munur á því að hafna því alfarið að fara í COVID-próf og mæta ekki í tíma? Ég get ekki séð hann.“

Magnús seg­ist telja að þarna sé um að ræða „mis­vísandi fram­kvæmd og að ekki sé gætt að jafn­ræð­is­reglu“. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að fara með mál manna sem synjað hefur verið um efn­is­með­ferð á þessum rökum fyrir dóm og verður fyrsta málið þing­fest í vik­unni.

Efnismeðferð er ávísun á vernd

Sá hópur sem fengið hefur við­ur­kenn­ingu á því að mál hans skuli tekin til efn­is­legrar með­ferðar verður hins vegar boð­aður í við­töl hjá Útlend­inga­stofnun. „Þá er farið yfir aðstæður og stöðu við­kom­andi í heima­landi,“ útskýrir Magnús. „Fólk frá Palest­ínu sem fær efn­is­með­ferð á Íslandi fær hér alþjóð­lega vernd. Það er fátt sem getur komið í veg fyrir það. Mér er ekki kunn­ugt um að nokkrum Palest­ínu­manni sem fengið hefur efn­is­með­ferð hafi verið synjað um hæli.“

Magnús segir þessa ólíku nið­ur­stöðu sem menn­irnir hafi fengið hjá kæru­nefnd­inni vera mjög erf­iða fyrir þá. Þeir hafi beðið hér saman mán­uðum saman eftir að botn feng­ist í þeirra mál og því kynnst mjög vel. „Þeir hafa nálg­ast þessi mál með sama hætti en svo er einn sem fær efn­is­með­ferð en sá sem situr við hlið­ina á honum og er jafn­vel vinur hans fær þver­öf­uga nið­ur­stöðu.“

Telur framkvæmdina ekki standast lög

Það getur tekið fleiri mán­uði að reka mál fyrir hér­aðs­dómi. Menn­irnir sem fengu synjun hjá kæru­nefnd­inni hafa ekki fengið það sem kall­ast frestun rétt­ar­á­hrifa sem þýðir að þeir hafa ekki heim­ild til lög­legrar dvalar hér á landi á meðan mál þeirra er rekið. „Það að dóms­mál sé í gangi er engin trygg­ing fyrir því að brott­vísun verði ekki fram­kvæmd,“ segir Magnús. „En ég tel að þessi fram­kvæmd hjá kæru­nefnd sé þess eðlis að hún stand­ist ekki lög og að þessi mál munu vinn­ast fyrir dómi. Það er mín trú og mín von.“

Beðinn um að skrifa undir pappíra

Suleiman Al Masri segir þá ákvörðun kæru­nefndar að hafna því að mál hans verði tekið til efn­is­með­feðrar óskilj­an­lega því hann hafi ekk­ert gert af sér og ekk­ert gert öðru­vísi en aðrir sam­landar hans sem einnig höfðu sótt hér um vernd. Hann segir lög­reglu­mann hafa beðið sig að skrifa undir papp­íra viku áður en dvöl hans í land­inu náði ári um að hann féllist á að fara í COVID-próf og í bólu­setn­ingu og að vera vísað úr landi. Hann hafi neitað að gera það líkt og aðrir í hans stöðu höfðu áður gert. Hins vegar hafi hann svo fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu hjá kæru­nefnd á meðan margir aðrir í sam­bæri­legum málum hafi fengið jákvæða.

Suleiman er sann­færður um að hann og nokkrir aðrir, sem er nær sami hópur og var synjað um þjón­ustu Útlend­inga­stofn­unar í maí og Kjarninn fjall­aði um, hafi fengið verri með­ferð og ósann­gjarn­ari en aðrir. Stofn­unin var gerð aft­ur­reka með þá ákvörðun sína af kæru­nefnd­inni nokkum vikum síðar.

„Þú getur ekki ímyndað þér sárs­auk­ann og órétt­lætið sem ég upp­lifi þegar ég fæ neitun á meðan aðrir sem komu hingað á sama tíma og ég, hafa búið á sama stað og ég, og neit­uðu einnig að skrifa undir papp­írana um brott­vísun og COVID-próf, fá málið sitt tekið til með­ferðar,“ segir hann við Kjarnann. „Þeir geta byrjað að und­ir­búa líf sitt á Íslandi og ég sam­gleðst þeim sann­ar­lega. En vonin hefur aftur verið tekin frá mér.“

Enginn túlkur, enginn lögmaður

Hann seg­ist ekki hafa skilið eyðu­blaðið sem lög­reglu­mað­ur­inn bað hann um að skrifa undir til fulls. Enginn túlkur hafi verið með­ferðis og honum hafi ekki verið gefið færi á að hafa sam­band við lög­fræð­ing sinn til að fá ráð og leið­bein­ingar. Honum hafi heldur ekki verið gerð grein fyrir afleið­ingum þess að skrifa ekki undir skjalið. „Þeir komu, spurðu þriggja spurn­inga, sögðu mér að skrifa undir eða ekki og fóru svo.“

Þannig hafi hann ekki gert sér grein fyrir afleið­ingum þess að neita að skrifa undir sem hafi orðið þær, þegar upp er staðið, að mál hans verði ekki tekið til efn­is­legrar með­ferðar líkt og kæru­nefndin hefur nú kom­ist að, heldur hafi hann tafið mál sitt. Eyðu­blaðið sem hann neit­aði að skrifa undir er sagt því til stað­fest­ingar.

Suleiman undr­ast að yfir­völd hafi farið fram á þetta viku áður en hann hafði dvalið hér í ár. Þau hafi haft til þess marga mán­uði. Auk þess sé nið­ur­staðan önnur í hans máli en margra ann­arra sem neit­uðu einnig að skrifa undir. „Hvernig getur þetta verið lög­legt? Hvernig getur þetta verið mann­úð­legt?“

[adspot]

Vafasöm framkvæmd

Magnús telur þessa fram­kvæmd lög­reglu „afskap­lega vafa­sama“ miðað við þær lýs­ingar sem hann hefur fengið hjá umbjóð­endum sínum. Hún sé gerð með þeim hætti að fólk í sumum til­vikum skilji ekki hvað verið sé að biðja það um að skrifa undir eða hver þýð­ing skjals­ins sé. Þá láti lög­regla lög­menn fólks­ins ekki vita að fyrra bragði.

„Ef það væri öruggt fyrir mig að búa á Grikk­landi eða á Gaza hefði ég ekki komið hingað til að láta koma svona fram við mig og ganga í gegnum þennan sárs­auka og sorg,“ segir Suleiman. En þannig er það ekki. Þar hefði hann engin tæki­færi til að bæta líf sitt. Þess vegna valdi hann að koma til Íslands.

Algjörlega uppgefinn

„Það eina sem ég vil gera er að fá að lifa venju­legu lífi. Geta opnað banka­reikn­ing, tekið bíl­próf, farið í nám og vinnu. Ég vil enga ölm­usu. Ég vil bara stöð­ug­leika, öryggi og virð­ingu. Allt mitt líf hef ég staðið and­spænis órétt­læti, kúgun, stríði, dauða, áhyggjum og dep­urð. Samt var ég alltaf með von og ætl­aði mér að reyna að bæta líf mitt.

Ég veit ekki hvað verður um mig núna.

Af hverju koma yfir­völd svona fram við okkur? Og velja alltaf aðeins nokkra til að beina spjótum sínum að? Fyrst var okkur hent út á götu og við sviptir þjón­ustu og núna þetta. Ég er upp­gef­inn á lík­ama og sál. Algjör­lega upp­gef­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár