Kæra ákvörðunina að svipta umsækjendur um alþjóðlega vernd þjónustu

„Það er alveg kýr­skýrt í okkar huga að þetta er kolólög­legt,“ segir lög­maður Palest­ínu­manns sem nú er kom­inn á göt­una eftir synjun um efn­is­lega með­ferð frá kæru­nefnd Útlend­inga­mála.

Fimm ungir Palestínumenn, sem hingað komu og sóttu um alþjóðlega vernd, misstu í fyrradag húsnæði sem þeir voru í á vegum Útlendingastofnunar sem og framfærslu frá stofnuninni. Mohammed Bakri er einn þeirra.
Fimm ungir Palest­ínu­menn, sem hingað komu og sóttu um alþjóð­lega vernd, misstu í fyrra­dag hús­næði sem þeir voru í á vegum Útlend­inga­stofn­unar sem og fram­færslu frá stofn­un­inni. Mohammed Bakri er einn þeirra. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Magnús Davíð Norðdahl, lög­maður Mohammed Bakri umsækj­anda um alþjóð­lega vernd, hefur kært ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar að svipta hann þjón­ustu en honum var vísað á göt­una í vik­unni og hann sviptur fæð­is­greiðslum. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans var umrædd ákvörðun ekki skrif­leg.

„Þessi ákvörðun er kærð til kæru­nefndar útlend­inga­mála og þess kraf­ist að hún verði felld úr gildi og stofn­unni gert að veita umbjóð­anda mínum þjón­ustu á nýjan leik. Þá er þess kraf­ist að kæran fái flýti­með­ferð með vísan í brýna hags­muna umbjóð­anda míns,“ segir í kærunni sem Kjarninn hefur undir höndum.

Magnús bendir á í sam­tali við Kjarnann að umræddur aðili hafi endað alls­laus á göt­unni. „Um er að ræða nokk­urs konar refs­ingu af hálfu Útlend­inga­stofn­unar þar sem við­kom­andi aðilar hafa ekki viljað aðstoða við eigin brott­vísun með því að und­ir­gang­ast COVID-próf sem er for­senda þess að hægt sé að fram­kvæma brott­vísun. Það er alveg kýr­skýrt í okkar huga að þetta er kolólög­legt.“

Enn ekki hitt þann hælisleitanda sem sjálfviljugur aðstoðar við eigin brottvísun

Segir Magnús að á öllum hans ferli sem lög­maður hæl­is­leit­anda hafi hann ekki enn hitt þann hæl­is­leit­anda sem sjálf­vilj­ugur aðstoðar við eigin brott­vísun. „Það er eðli þess­ara mála að fólk vill ekki fara úr landi enda var það að flýja aðstæður þar sem líf þeirra var í hættu. Að setja við­kom­andi á göt­una alls­lausan við slíkar aðstæður er ómann­úð­legt, sið­ferði­lega rangt og að mínum dómi ólög­mætt.“

[links]Vísar hann í reglu­gerð­ar­á­kvæði um útlend­inga þar sem segir að svipta megi hæl­is­leit­anda þjón­ustu þegar ákvörðun um brott­vísun sé komin til fram­kvæmdar. Magnús segir að þegar við­kom­andi aðili er enn á land­inu sé ljóst að slík ákvörðun hafi enn ekki verið fram­kvæmd og því ólög­mætt að svipta aðil­ann þjón­ustu. Útlend­inga­stofnun brjóti þannig klár­lega gegn umræddu reglu­gerð­ar­á­kvæði.

„Nokkuð margir í þessum hópi sem nú eru á göt­unni hér á landi eru frá Palest­ínu. Eins og allir vita er heima­land þeirra að verða fyrir loft­árásum þessi miss­erin þar sem sak­laust fólk lætur lífið í hrönnum. Palest­ínu­menn á flótta utan heima­lands upp­lifa að sjálf­sögðu mikla og sorg og reiði við slíkar aðstæður og eru þannig enn við­kvæm­ari en ella nú um stundir. Allt að einu finnst Útlend­inga­stofnun í fínu lagi að vísa umræddum aðilum á göt­una. Þessu verður að linna,“ segir hann.

Í kærunni er jafn­framt vísað til þess að Mohammed hafi ekki notið and­mæla­réttar áður en umrædd ákvörðun var tekin. „Þegar af þeirri ástæðu ætti að fella ákvörð­un­ina úr gildi.“

Óskað er eftir því að kæran fái flýti­með­ferð þar sem brýnir hags­munir Mohammed krefj­ist þess enda sé hann án hús­næðis og fæðis eftir svipt­ingu þeirrar þjón­ustu sem hann áður naut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár