„Við viljum frekar deyja á götunni á Íslandi en að fara aftur til Grikklands“

„Íslensk yfir­völd hlusta ekk­ert á okkur. Þó að þau viti hvernig ástandið er í okkar heima­landi og þær áhyggjur sem við höfum. Ég meina, húsin sem við bjuggum í hafa sum verið jöfnuð við jörðu.“ Þetta segir Palest­ínu­maður sem er lentur á göt­unni á Íslandi.

Palestínumennirnir fimm fyrir utan húsnæði Útlendingastofnunar í Hafnarfirði í dag.
Palest­ínu­menn­irnir fimm fyrir utan hús­næði Útlend­inga­stofn­unar í Hafn­ar­firði í dag. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Fimm ungir Palest­ínu­menn, sem hingað komu og sóttu um alþjóð­lega vernd, misstu í dag hús­næði sem þeir voru í á vegum Útlend­inga­stofn­unar sem og fram­færslu frá stofn­un­inni. Mál þeirra voru ekki tekin til efn­is­legrar með­ferðar hér á landi á þeim rökum að þeir hafi þegar fengið dval­ar­leyfi og stöðu flótta­manna í Grikk­landi. Tveimur öðrum mönnum í sömu stöðu var vísað út í gær, líkt og Kjarninn greindi frá.

[adspot]

„Við tókum eftir því í dag að búið var að loka fyrir fram­færsl­una,“ segir Suliman Al Marsi þar sem hann stendur með tösk­urnar sínar sér við hlið fyrir utan Bæj­ar­hraun 16 í Hafn­ar­firði. Hann, líkt og hinir fjórir, fengu skila­boð frá Útlend­inga­stofnun um að þeir hefðu til klukkan 14 i dag að pakka saman og yfir­gefa hús­næðið. Suliman segir að þeir hafi fengið hálf­tíma fyr­ir­vara. Ástæðan fyrir þess­ari aðgerð stofn­un­ar­innar er sú að ungu menn­irnir eiga sam­kvæmt ákvörðun stjórn­valda að yfir­gefa landið og fara aftur til Grikk­lands. Það vilja þeir hins vegar ekki gera, þeir ótt­ast um öryggi sitt þar, og hafa af þeim sökum neitað að fara í COVID-próf sem er for­senda þess að hægt sé að senda þá úr landi. „Við spurðum hvað myndi ger­ast ef við neit­uðum að fara út úr hús­inu og fengum þau svör að þá yrðum við teknir út með valdi og að dótið okkar yrði þá skilið eftir inni.“

[links]Ungu menn­irnir eiga allir ást­vini í Gaza í Palest­ínu sem Ísra­els­her hefur gert harðar loft­árásir á síð­ustu daga. Þeir heyri lítið í fjöl­skyldum sínum enda net­sam­band stop­ult.

„Við sögðum starfs­mönnum Útlend­inga­stofn­unar hversu ástandið heima væri hræði­legt vegna stríðs­ins,“ segir Mohammad Bakri. „Við sögðum þeim líka að ástandið á Grikk­landi yrði okkur erfitt.“ Þar væri atvinnu­leysi útbreitt og ekk­ert hús­næði að finna. „Mér finnst íslensk yfir­völd ekk­ert hlusta á okkur. Þó að þau viti hvernig ástandið er í okkar heima­landi og þær áhyggjur sem við höfum. Ég meina, húsin sem við bjuggum í hafa sum verið jöfnuð við jörðu.“

Þeir segja starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar þá hafa bent á að ekk­ert stríð væri í Grikk­landi. „En við endum á göt­unni þar eins og áður en við flúðum hingað til Íslands,“ segir Mohammad „Við spurðum hvort að við gætum fengið að vera í hús­næð­inu í nokkra daga í við­bót en svarið var nei.“

Ungu menn­irnir standa í hnapp með ferða­tösk­urnar sínar. Starfs­maður á vegum Rauða kross­ins er mættur til að reyna að aðstoða þá við flutn­ing á þeim. „Við höfum í raun engan stað til að fara á núna,“ segir Mohammad. „En þeim er alveg sama. Þeir sögðu að við yrðum bara að redda okkur. Hvert við myndum fara kæmi þeim ekki við.“

„Góð­hjartað fólk“, líkt og einn þeirra orðar það, hefur boð­ist til að skjóta skjóls­húsi yfir þá í nótt. Þeir vissu þó ekki síð­degis hvort að allir þeirra fengju þar inni eða aðeins hluti þeirra. Það er hins vegar aðeins bráða­birgða lausn og þeir vita ekk­ert hvað tekur við í fram­hald­inu. Þar sem þeir eru ekki með íslenska kenni­tölu mega þeir ekki gista í Gisti­skýl­inu í Reykja­vík.

Enginn þeirra seg­ist vilja fara aftur til Grikk­lands. Þar bíði þeirra engin fram­tíð. Þeir hafi allir reynt að finna þar vinnu áður en þeir ákváðu að flýja lengra og end­uðu á Íslandi. „Við viljum frekar vera á göt­unni á Íslandi, við viljum frekar deyja á göt­unni á Íslandi en að fara aftur til Grikk­lands.“

Ómögulegt að finna húsnæði og vinnu í Grikklandi

Suliman segir starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar hafa sagt að þeir geti fundið hús­næði í Grikk­landi en hann þekki það af eigin reynslu að það er ill­mögu­legt. Líklega ómögu­legt. Á götum Aþenu og ann­arra grískra borga sé ofbeldi dag­legt brauð og þess vegna ótt­ist þeir um öryggi sitt. „Þar eru líka miklir for­dómar í garð Palest­ínu­manna,“ bætir hann við.

Þeir segj­ast eiga erfitt með að trúa því að menn sem séu að flýja stríðs­á­stand líkt og geisi í Palest­ínu geti ekki fengið vernd á Íslandi, þó að þeir hafi, þurft að hafa við­komu í Grikk­landi og fengið þar stöðu flótta­manns. „Það eina sem ég vil er stöð­ug­leiki í líf­inu. Að finna vinnu eða mennta mig,“ segir Mohammad. „Ég vil ekki sitja aðgerða­laus.“

Nú hafi þeir ekki lengur pen­inga fyrir mat svo óvissan framundan er algjör. „Við þráum að okkur sé sýnd mannúð í ljósi aðstæðna okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár