Hugsaði að á Íslandi „yrði komið fram við mig eins og manneskju“

Hann hefur aðeins tvo kosti. Og þeir eru báðir hræði­legir. Að halda til á göt­unni á Íslandi eða í Grikk­landi. Suliman Al Masri, palest­ínskur hæl­is­leit­andi sem yfir­völd ætla að vísa út á götu, seg­ist þrá venju­legt líf. Það sé ekki að finna í Grikk­landi.

Suliman hefur lagt sig fram við að kynnast íslensku samfélagi og m.a. stundað sjálfboðastarf frá því að hann kom hingað í október.
Suliman hefur lagt sig fram við að kynn­ast íslensku sam­fé­lagi og m.a. stundað sjálf­boða­starf frá því að hann kom hingað í októ­ber. Mynd: Aðsend

„Mig langar bara að vinna og sjá fyrir mér, verða eins og venju­legur maður.“ Þetta segir hinn 26 ára gamli Palest­ínu­maður Suliman Al Masri í sam­tali við Kjarnann. Hann er í hópi þeirra Palest­ínu­manna sem Útlend­inga­stofnun hefur til­kynnt að verði vísað úr hús­næði stofn­un­ar­innar og út á götu á morgun. Að minnsta kosti sjö hafa fengið sömu skila­boð. Skýr­ingin er sú að þeir vilja ekki fara aftur til Grikk­lands líkt og íslensk yfir­völd hafa fyr­ir­skipað. Því hefur hann neitað að fara í COVID-próf sem er for­senda þess að hægt sé að senda hann úr landi. „Ég hef fengið þessa tvo slæmu kosti: Að vera á göt­unni á Íslandi eða á göt­unni í Grikk­landi,“ segir Suliman. Í heila viku hefur hann ótt­ast það versta og átt erfitt með svefn vegna til­hugs­un­ar­innar um að verða sendur til baka.

Tveimur palest­ínskum hæl­is­leit­endum var síð­degis vísað úr hús­næði stofn­un­ar­innar að Bæj­ar­hrauni í Hafn­ar­firði. Þeir hafa í engin hús að venda en hefur verið bent á að leita skjóls í moskum. Á morgun munu að óbreyttu fleiri bæt­ast í þann hóp.

[adspot]

„Það er stríð í heima­landi okkar,“ segir Suliman. Ísraelar gera nú harðar loft­árásir á Gaza og tugir hafa fallið, m.a. mörg börn. „Fjöl­skyldan mín er á Gaza, aldr­aðir for­eldrar mínir, systur mínar og börn ann­arrar þeirra. Við erum mjög áhyggju­fullir út af því. Gaza er mjög lítið svæði. Þar er eng­inn öruggur í augna­blik­inu.“ Hann segir Útlend­inga­stofnun hins vegar hafa sagt að ekk­ert sé hægt að gera. Þar sem hann og landar hans hafi þegar fengið stöðu flótta­manna í Grikk­landi verði þeir allir sendir til baka þangað. „Ég flúði Palest­ínu út af ástand­inu þar í leit að venju­legu lífi eins og allir þrá,“ segir Suliman. Hann hafi ekki kom­ist neitt annað en til Grikk­lands og þar hafi hann þurft að dvelja í flótta­manna­búðum á eyju í heilt ár. „Það var eins og fang­elsi og alveg hræði­legur tími.“ Hann segir ástandið í búð­unum hafa verið skelfi­legt. Glæpa­hópar ráði þar ríkjum og ofbeldi sé dag­legt brauð.

[links]Eftir að Suliman hafði fengið stöðu flótta­manns í Grikk­landi, eftir árið skelfi­lega á eyj­unni, tók ekki mikið betra við. Hann fór til höf­uð­borg­ar­innar Aþenu til að leita sér að vinnu og reyna að læra tungu­málið. En hátt atvinnu­leysi er í Grikk­landi meðan inn­fæddra og atvinnu­á­standið enn erf­ið­ara fyrir flótta­fólk. „Ég gat ekk­ert gert.“ Þegar fólk hefur fengið stöðu flótta­manns fær það ekki lengur opin­beran fjár­stuðn­ing og hann hafði því ekk­ert á milli hand­anna til að bjarga sér og lifa á.

Eftir hálft ár í Aþenu ákvað Suliman að reyna að kom­ast til ann­ars Evr­ópu­lands. Hann íhug­aði að fara til Þýska­lands eða Sví­þjóðar í fyrstu. Hann hafi svo ákveðið að koma til Íslands og fá hæli hér. „Ég hugs­aði að þar yrði komið fram við mig eins og mann­eskju.“ Hingað kom hann í októ­ber á síð­asta ári. En nú, átta mán­uðum síðar, hefur hann fengið skýrt svar frá yfir­völdum: „Þú verður að yfir­gefa landið því þú komst hingað frá Grikk­landi.“ Hann seg­ist hafa sagt þeim eins og er, að ef hann verði sendur aftur til Grikk­lands bíði hans ekk­ert annað en gatan. „Þeir hafa þá sagt að ef ég fari ekki verði þeir að vísa mér út á götu og að það sé mjög kalt úti.“ Jú, hann segir vissu­lega rétt að hlýrra sé í Grikk­landi á þessum árs­tíma en að þar séu glæpir tíðir á götum. Í hans huga er þetta því ekk­ert val. Hann vill frekar búa á göt­unni á Íslandi en í Grikk­landi – þó að það sé kald­ara hér. „Ég get ekki hugsað mér að fara aftur til Grikk­lands. Það er mjög hættu­legt. Þar á ég enga fram­tíð.“

Suliman hefur lokið háskóla­námi í við­skipta- og ferða­mála­fræðum í Palest­ínu. Þegar hann greindi yfir­völdum hér frá því voru við­brögðin þau að menntun hans skipti engu máli um það hvort að hann fengi að vera hér áfram eða ekki. „Ég vil ekki vera flótta­maður. Ég vil vinna fyrir mér. Ég vil engar bætur eða slíkt.“

Spurður hvort hann hafi heyrt í fjöl­skyld­unni sinni á Gaza segir hann net- og síma­sam­band mjög stop­ult svo hann nái aðeins annað slagið sam­bandi við hana. Hann hefur miklar áhyggjur af fólk­inu sínu. „Gaza er svo lítil. Þegar loft­skeytin koma eru allir í hættu.“

Suliman hefur kynnst stríði. Hann þekkir í raun ekk­ert annað en stríðs­á­stand. Hann var í heima­land­inu árið 2014 þegar stríð við Ísrael hófst og stóð í meira en fimm­tíu daga. „Þess vegna veit ég hvað þetta er hættu­legt. Að eng­inn er öruggur. Ég bjó rétt við landa­mærin.“

Á morgun verður Suliman vísað út úr hús­næði Útlend­inga­stofn­unar þar sem hann heldur nú til. „Já, ég mun vera á göt­unni.“

Hann seg­ist finna fyrir miklum ótta vegna ástands­ins heima fyrir og að nú bæt­ist sorg ofan á það. „Mér finnst eins og [íslenskum yfir­völdum] sé sama um mig. Það hljóta allir að hafa séð hvað er að ger­ast á Gaza. Fyrir alla, konur og börn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár