Útlendingastofnun setur hælisleitendum afarkosti: Covid-próf eða missa framfærslu

Útlend­inga­stofnun er farin að setja fólki sem synjað er um vernd þá afar­kosti að gang­ast undir COVID-próf ellegar missa fram­færslu og jafn­vel hús­næði. Í morgun var sýr­lenskum hæl­is­leit­anda gert að pakka saman. „Hvar á hann að sofa í nótt?“

Fjölskylda á flótta hefst við úti á götu í Aþenu, höfuðborg Grikklands.
Fjöl­skylda á flótta hefst við úti á götu í Aþenu, höf­uð­borg Grikk­lands. Mynd: UNHCR

Til stendur að vísa hópi Palest­ínu­manna og Sýr­lend­inga úr landi á næst­unni, ein­hverjum þegar á morgun. Fólkið á að senda til Grikk­lands þar sem það hafði þegar fengið stöðu flótta­manna. Lögmenn þeirra segja hins vegar ástandið þar engan veg­inn ásætt­an­legt og því ekki for­svar­an­legt að íslensk stjórn­völd sendi þangað fólk sem leitað hefur hér skjóls. Magnús Norðdahl, lög­maður um tíu Palest­ínu­manna, segir að á Grikk­landi sé, ólíkt því sem íslensk yfir­völd vilja meina, „ekki virk alþjóð­leg vernd. Ekki í neinum skiln­ingi”. Um það votti nið­ur­stöður fjöl­margra alþjóð­legra skýrslna. „Mínir skjól­stæð­ingar geta ekki hugsað sér að vera sendir þangað aftur.“

Rauði krossinn vill svör frá Útlendingastofnun

Arndís Anna Gunn­ars­dóttir, lög­maður nokk­urra Palest­ínu­manna og Sýr­lend­inga, minnir á að það sé engin til­viljun að fólk sem fengið hafi stöðu flótta­manna í Grikk­landi flýi þaðan. Hún segir Útlend­inga­stofnun beita fólk sem senda á héðan hót­unum sem felist í því að neiti það að fara í COVID-próf sé það svipt fram­færslu og jafn­vel hús­næði. Einum sýr­lenskum skjól­stæð­ingi hennar hafi þegar verið gert að yfir­gefa hús­næði sem hann sé í á vegum stofn­un­ar­innar. Guðríður Lára Þrast­ar­dóttir lög­fræð­ingur hjá Rauða kross Íslands, seg­ist aðspurð hafa fengið það stað­fest hjá Útlend­inga­stofnun að þetta séu þau skila­boð sem hæl­is­leit­endur sem senda á aftur til Grikk­lands og neita að fara í COVID-próf fái. Samtökin hafa óskað eftir upp­lýs­ingum um á hvaða laga­heim­ild þessi aðgerð stofn­un­ar­innar byggi.

[adspot]

Palest­ínsku umbjóð­endur Magnúsar eru flestir karl­menn sem hafa komið hingað til lands á síð­ustu mán­uðum og beðið um hæli. Magnús segir „alltaf tekið harðar á þeim hópi í kerf­inu“. Þeim hafi margoft verið til­kynnt af lög­reglu á síð­ustu vikum að nú verði þeir sendir til Grikk­lands – þennan dag­inn eða hinn. „En við erum ekki með neinar áreið­an­legar upp­lýs­ingar um hvenær þeim verði vísað úr landi“. Honum er ekki kunn­ugt um að þeir séu bólu­settir gegn COVID-19 og ekki heldur að þeir hafi farið í sýna­töku sem sé for­senda þess að hægt sé að senda þá úr landi.

Á fyrri stigum heims­far­ald­urs­ins var brott­vís­unum héðan og til Grikk­lands frestað. Nú eru yfir­völd aftur farin að fram­kvæma brott­vís­anir og það í ástandi sem sé að sögn Magnúsar enn verra en það var. Arndís bendir á að það sé engin til­viljun að flestir þeir sem hér leiti verndar núna séu að koma frá Grikk­landi. Það eigi sér ein­fald­lega þá skýr­ingu að ástandið þar sé skelfi­legt. „Af hverju er fólk sem fengið hefur stöðu flótta­manna á Spáni ekki að koma hingað? Eða Búlgaríu? Litháen? Það er af því að flótta­fólk á Grikk­landi hefur enga kosti. Það á sér þar enga fram­tíð. Það er ekk­ert sem það getur gert til að kom­ast út úr þeirri stöðu. Þetta er fólk sem átti heim­ili, fjöl­skyldu og hafði vinnu. En svo missir það allt.“ Stað­reyndin sé sú að í Grikk­landi sé flótta­fólk að deyja á götum úti. Ástandið sé „stóral­var­legt“ og að þangað eigi ekki að vísa fólki. „En það er ekk­ert hlustað.“

Ástandið í Palest­ínu hefur lengi verið slæmt og síð­ustu daga og vikur hefur það versnað enn frekar. „Svarið frá íslenskum stjórn­völdum verður alltaf á þá leið að það sé ekki verið að vísa þeim þangað – heldur til Grikk­lands,“ segir Magnús en bendir á að það sé rík ástæða fyrir því að fólkið hafi haldið flótt­anum áfram frá Grikk­landi og til Íslands. „Það er að mínum dómi algjör­lega ófor­svar­an­legt að íslensk stjórn­völd vísi hæl­is­leit­endum aftur til Grikk­lands þegar að fyr­ir­liggj­andi gögn, fyr­ir­liggj­andi skýrslur, bendi til þess að ástandið þar sé á engan hátt öruggt fyrir þá sem hafa fengið þar alþjóð­lega vernd. Það er ástæða fyrir því að þessir aðilar flýja þetta land. Sama hvort að þar eigi í hlut fólk sem flúið hefur Palest­ínu eða ein­hver önnur lönd.“

Ekki með atvinnuleyfi

Arndís Anna hefur verið með um 10 umbjóð­endur frá Palest­ínu og Sýrlandi á síð­ustu vikum en ein­hverjir þeirra eru farnir úr landi. Eftir að úrskurðir í þeirra málum hafi legið fyrir, um að mál þeirra verði ekki tekin til efn­is­legrar með­ferðar og þeir því aftur sendir til Grikk­lands, hafi sumir þeirra neitað að gang­ast undir sýna­töku vegna COVID-19 og í kjöl­farið hafi Útlend­inga­stofnun í ein­hverjum til­vikum sagt þeim að geri þeir það ekki verði þeir sviptir fram­færslu og jafn­vel hús­næði. „Þeir eru ekki með atvinnu­leyfi. Hvað eiga þeir að gera?“ spyr Arndís. Hún segir að það sem yfir­völd ætli sér með þessu sé að fá fólkið til að sam­þykkja að fara aftur til Grikk­lands.

Einn skjól­stæð­inga Arndísar frá Sýrlandi hafði sam­band í morgun og greindi henni frá því að honum hafi verið sagt að taka saman allt dótið sitt. Að það væri að koma leigu­bíll að sækja hann. Hvert hann átti að fara vissi hann ekki en að minnsta kosti væri búið að vísa honum út úr því hús­næði sem hann hefur dvalið í á vegum Útlend­inga­stofn­unar. „Hann veit ekk­ert hvað hann á að gera. Hvort að hann eigi að láta sig hafa það að fara aftur til Grikk­lands. Hvar á hann að sofa í nótt? Þetta er frá­leit staða.“

Taka skárri kostinn

Arndís segir ein­hverja hafa tekið þann kost­inn að fara í COVID-próf og til Grikk­lands enda sé þar hlýrra að dvelja á göt­unni en hér á landi. Um það snú­ist kost­irnir tveir í raun. Hún segir það bók­staf­lega þannig að margir muni enda á göt­unni í Grikk­landi því þar sé enga aðstoð að fá, hvorki húsa­skjól, heil­brigð­is­þjón­ustu og hvað þá atvinnu. Einn umbjóð­andi Arndísar sá sér þann kost vænstan að fara aftur til Grikk­lands nýverið en þar ætli hann ekki að staldra lengi við heldur fara aftur til lands­ins sem hann flúði fyrst: Sýrlands. „Þar hefur hann alla vega fjöl­skyld­una.“ Þetta segir hún til marks um þær aðstæður sem flótta­fólk í Grikk­landi þurfi að búa við.

Yfirvöld hér á landi séu að „ger­ast harð­ari og harð­ari“ og að þau láti eins og COVID-far­ald­ur­inn sé búinn. En far­ald­ur­inn hafi verið eins og „olía á eld“ aðstæðna flótta­fólks í Grikk­landi.

Þeir hæl­is­leit­endur sem fari aftur til Grikk­lands ætli sér alls ekki að vera þar áfram. Það sé ein­fald­lega ekki hægt. „Þeir halda áfram að leita. Að reyna að kom­ast af. Lifa.“

[adspot]

Á heima­síðu Útlend­inga­stofn­unar kemur fram að á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins hafi 23 Palest­ínu­menn sótt um vernd hér á landi og átta frá Sýrlandi. Í heild hafi 28 hæl­is­leit­endur verið fluttir frá land­inu á tíma­bil­inu. Á sama tíma hafi fjórir Palest­ínu­menn fengið hér vernd, átján fengið svo­kall­aða við­bót­ar­vernd, fimm verið brott­vísað á for­sendum Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og 45 fengið vernd í öðru ríki.

122 Palest­ínu­menn sóttu um alþjóð­lega vernd hér á landi í fyrra og sex­tíu Sýr­lend­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár