Voru „korteri frá brottflutningi“ en fá nú efnismeðferð

Tveimur konum frá Sómalíu sem sóttu um alþjóð­lega vernd hér á landi á síð­asta ári verður ekki vísað frá Íslandi til Grikk­lands eins og til stóð og mun Útlend­inga­stofnun taka mál þeirra efn­is­lega fyrir á næst­unni.

Önnur kvennanna á tvö börn sem nú eru í Jemen. Heitasta ósk hennar er að fá börnin hingað til lands.
Önnur kvenn­anna á tvö börn sem nú eru í Jemen. Heitasta ósk hennar er að fá börnin hingað til lands. Mynd: Bára Huld Beck

Tvær sómalskar konur, sem stóðu frammi fyrir því að verða sendar til Grikk­lands af íslenskum stjórn­völdum og biðu brott­far­ar­dags, hafa nú fengið annað tæki­færi og mun Útlend­inga­stofnun taka mál þeirra efn­is­lega fyrir með haustinu.

Ástæðan er sú að kæru­nefnd útlend­inga­mála úrskurð­aði í vik­unni að vegna þess að 12 mán­uðir eru liðnir frá því að þær sóttu um alþjóð­lega vernd hér á landi þá verði Útlend­inga­stofnun að taka mál þeirra fyrir að nýju. Nefndin hafði áður synjað þeim um efn­is­lega með­ferð umsóknar sinnar um vernd á grund­velli þess að þær höfðu fengið vernd í Grikk­landi.

Þær eru báðar þolendur grimmi­legs ofbeldis, meðal ann­ars í Grikk­landi, og þarfn­ast sár­lega aðstoðar fag­fólks til að vinna í sínum málum. Kjarninn hitti kon­urnar tvær í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins til að ræða aðstæður þeirra og reynslu þeirra af yfir­völdum í Grikk­landi. Notast var við dul­nefni í umfjöll­un­inni.

Lögreglan var búin að hafa samband við þær

Konurnar tvær stóðu frammi fyrir brot­flutn­ingi frá Íslandi til Grikk­lands. Þær voru aðeins „korteri frá brott­flutn­ingi“, að sögn lög­fræð­ings þeirra, Alberts Björns Lúð­vígs­sonar, en lög­reglan hafði verið búin að hafa sam­band við þær vegna yfir­vof­andi flutn­ings.

„Lög­reglan tal­aði við þær þegar það voru ennþá COVID-tak­mark­anir í Grikk­landi og svo þegar yfir­völd þar í landi felldi niður þær tak­mark­anir þá mynd­að­ist bið­röð hér heima og það var að ein­hverju leyti til­viljun sem réði því hverjir fóru fyrst,“ segir Albert.

[links]Hann útskýrir að eftir að þær fengu seinni nið­ur­stöðu sína, þar sem kæru­nefnd útlend­inga­mála stað­festi ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að neita þeim efn­is­lega með­ferð, þá hafi málum þeirra verið stefnt fyrir dóm. „Það er hægt að óska eftir end­ur­upp­töku máls í ein­hvern tíma frá því að loka­á­kvörðun kemur. Þá þarf oft­ast að vísa til ein­hverra nýrra atvika eða nýrra máls­á­stæðna og í þessu til­felli þá höfðu þær verið hér á landi í 12 mán­uði og reglan sem sagt er sú að ef þú ert í 12 mán­uði frá því að þú sækir um og þangað til þú ert fluttur, og tafir eru ekki þér að kenna, þá áttu rétt á efn­is­með­ferð. Kæru­nefnd féllst á að það hafi ekki verið ekki þeim að kenna að málið hafi tekið svona langan tíma. Þær hafa ekk­ert gert til þess að orsaka það.“

Albert segir að þessi úrskurður kæru­nefndar stað­festi það að þær hafi alltaf komið rétt og heið­ar­lega fram hér á Íslandi og eiga enga sök á þessum drætti.

Hafa góða möguleika

Mál kvenn­anna fara því núna í nýja efn­is­lega með­ferð hjá Útlend­inga­stofnun. Þar verður staða þeirra í heima­landi metin og ákvarðað hvort þær séu flótta­konur eða ekki. „Þær hafa þar góða mögu­leika,“ segir Albert. Þær munu lík­leg­ast fara í við­tal hjá stofn­un­inni í haust og svo mun nið­ur­staða hugs­an­lega ber­ast rétt fyrir jól.

„Ég var svo hepp­inn á að fá að hringja í þær báðar og segja þeim þessa nið­ur­stöðu og þær voru báðar gríð­ar­lega meyrar og ham­ingju­saman.“

Hann segir að þær hafi ekki getað hugsað sér að snúa aftur til Grikk­lands enda biði þeirra ekk­ert nema hræði­legar aðstæður þar.

Þol­andi kyn­færalim­lest­inga og kyn­ferð­is­of­beld­is

Þær lýstu því báðar í sam­tali við Kjarnann í lok nóv­em­ber síð­ast­liðnum að eftir að þær fengu stöðu sína sem flótta­konur við­ur­kennda í Grikk­landi á sínum tíma hefði dvölin þar verið gríð­ar­lega erfið.

Idil sagði meðal ann­ars að hún hefði engin tæki­færi fengið þar, hún hefði hvorki haft hús­næði né fram­færslu. „Ég gat ekki fengið vinnu og mér var neitað um það að fá börnin mín til mín. Mér var sagt að það væri ekki mögu­leiki. Það var mjög erfitt. Ég þekkti engan á þessum slóðum sem gæti hjálpað mér,“ sagði hún.

Idil er þol­andi kyn­færalim­lest­inga og kyn­ferð­is­of­beld­is. Sam­kvæmt sál­fræð­ingi hjá Göngu­deild sótt­varna er nauð­syn­legt að hún fái frek­ari stuðn­ing og með­ferð en ljóst þykir að það muni reyn­ast henni úti­lokað að fá slíka hjálp í Grikk­landi. Idil taldi það ljóst að henni væri það ómögu­legt að afla sér nauð­syn­legra skrán­inga í Grikk­landi til að fá aðgengi að við­eig­andi þjón­ustu og að henni stæði ekki til boða raun­hæf úrræði til verndar í Grikk­landi vegna for­dóma og ofbeldis í land­inu. Einnig taldi hún ljóst að hún myndi ekki geta fengið börnin sín til sín í Grikk­landi enda hefði henni verið synjað um slíkt áður þar í landi.

Þegar hún var spurð hvað hún von­aðist til að ger­ðist í fram­tíð­inni þá sagði hún að hana lang­aði að mennta sig og fá börnin til sín. „Mig langar að þetta land, Ísland, verði síð­asta landið þar sem ég sæki um vernd.“

Boð­in greiðsla eða aðstoð í skiptum fyrir „kyn­líf“

Svipað var upp á ten­ingnum hjá Söhru en þegar hún fékk alþjóð­lega vernd í Grikk­landi var henni hent út úr sér­stökum búðum þar sem hún dvaldi. Hún missti jafn­framt fram­færslu sína og eftir það haf­ðist hún við á göt­unni við afar erf­iðar aðstæð­ur. Henni var boð­inn pen­ingur eða aðstoð í skiptum fyrir „kyn­líf“. Hún óskaði ítrekað eftir aðstoð grískra stjórn­valda en var ávallt synj­að. Hún reyndi að finna atvinnu og verða sér úti um nauð­syn­legar skrán­ingar í Grikk­landi en án árang­urs. Hún þurfti að greiða fyrir skatt­númer og kenni­tölu auk þess sem hún fékk engar upp­lýs­ingar eða leið­bein­ingar frá grískum stjórn­völd­um.

Sahra fékk heldur ekki nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu í Grikk­landi en hún þurfti til að mynda sjálf að draga úr sér tönn. Þá upp­lifði hún mikla for­dóma í Grikk­landi frá almenn­ingi og lög­reglan veitti ekki henni aðstoð.

Vonin skiptir svo miklu máli

Albert segir að vonin krist­all­ist vel í þessu máli. „Þú getur verið með mjög nið­ur­brotið fólk – fólk sem hefur misst mjög mikið í líf­inu og lent í mjög alvar­legum áföllum – en á meðan það heldur í ein­hverja von þá fún­kerar það en um leið og vonin er tekin af þeim þá er allt farið. Þessar tvær konur upp­lifðu það á tíma­bili – algjört von­leysi.“

Hann telur að 12 mán­aða reglan hafi sannað sig. Ekki sé eðli­legt að fólk sé hér á landi í 12 mán­uði án þess að það fái nið­ur­stöðu í sínum málum. „Skil­virkni er eft­ir­sókn­ar­verð upp að ákveðnu marki en það verður samt að segj­ast að röng ákvörðun og vond ákvörðun, jafn­vel þótt hún sé skil­virk, er ekki góð. Þessi regla veitir mörgum skjól þannig að það er jákvætt út af fyrir sig en tíma­bilið mætti vera styttra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár