Aldrei fleiri hælisleitendur yfir Ermarsundið á einum degi

Tæplega 1.300 hæl­is­leit­endur sigldu yfir Ermar­sundið í gær á smáum bátum. Aldrei hafa fleiri freistað þess að kom­ast þessa leið til Bret­lands á einum degi.

Hópur hælisleitenda, m.a. barnafjölskyldur, koma til hafnar í Dover eftir förina yfir Ermarsundið.
Hópur hæl­is­leit­enda, m.a. barna­fjöl­skyldur, koma til hafnar í Dover eftir för­ina yfir Ermar­sundið. Mynd: EPA

Um 1.300 hæl­is­leit­endur um borð í 27 smáum bátum komu til hafnar í borg­inni Dover á Bret­landseyjum í gær, mánu­dag. Aldrei hafa fleiri hæl­is­leit­endur farið yfir Ermar­sundið frá Frakk­landi og Bret­lands á einum degi frá því að taln­ingar hófust árið 2018. Leiðin er hættu­leg enda veður válynd á sund­inu.

Stöðugur straumur flótta­fólks er yfir Ermar­sundið en skýr­ingin á þessum gríð­ar­lega fjölda er talin sú að þrjá dag­ana á undan var veðrið sér­lega slæmt og engir lögðu á sundið í þessum til­gangi.

[adspot]

Það sem af er ári hafa yfir 22.670 manns farið um Ermar­sundið til Bret­lands á litlum bátum. Á sama tíma­bili í fyrra var fjöld­inn 12.500.

Nið­ur­staða skýrslu sem unnin var fyrir breska þingið bendir til að fjöldi hæl­is­leit­enda eigi eftir að halda áfram að aukast á næstu mán­uðum og talið er að 66 þús­und manns eigi eftir að leita verndar í land­inu á þessu ári.

[links]Viðbragð breskra stjórn­valda hefur m.a. falist í þeirri umdeildu ákvörðun að senda alla hæl­is­leit­endur til Rúanda á meðan þeir bíða úrlausnar sinna mála. Í sumar stóð til að fljúga fyrstu vél­inni, fullri af hæl­is­leit­endum til Afr­íku­rík­is­ins en henni var frestað á síð­ustu stundu eftir nið­ur­stöðu mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Bretar hafa und­an­farið sett fjár­magn til vökt­unar á ströndum Frakk­lands til að reyna að koma í veg fyrir að fólk leggi í sigl­ing­una yfir sundið.

Að minnsta kosti 203 mann­eskjur hafa drukknað á leið­inni frá norð­ur­hluta Frakk­lands til Bret­lands frá árinu 2014. 27 drukkn­uðu í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár