Útlendingastofnun vísaði Palestínumönnum út á götu

Palest­ínu­mönnum var síð­degis vísað út úr hús­næði Útlend­inga­stofn­unar í Bæj­ar­hrauni í Hafn­ar­firði. Þeir hafa hvergi höfði sínu að halla og hefur verið bent á að leita skjóls í moskum. Blóðbað stendur yfir í heima­ríki þeirra.

Húsnæði Útleningastofunar í Bæjarhrauni í Hafnarfirði.
Húsnæði Útlen­inga­stof­unar í Bæj­ar­hrauni í Hafn­ar­firði.

Palest­ínu­mönnum sem var hafnað um alþjóð­lega vernd og yfir­völd vilja senda úr landi var vísað út úr hús­næði Útlend­inga­stofn­unar að Bæj­ar­hrauni í Hafn­ar­firði nú síð­degis. Samkvæmt því sem Kjarninn kemst næst var að minnsta kosti tveimur vísað út og sjö öðrum til­kynnt að það stæði til. Útlend­inga­stofnun vísar þeim, eftir því sem Kjarninn hefur upp­lýs­ingar um, út í ljósi þess að þeir vilji ekki fara í COVID-próf sem er for­senda þess að hægt sé að flytja þá til Grikk­lands þar sem þeir voru þegar komnir með stöðu flótta­manna.

[links]Þar eru aðstæður hins vegar „óboð­legar“ og ekki „for­svar­an­legt“ af íslenskum stjórn­völdum að senda fólk þangað, líkt og tveir lög­menn Palest­ínu­manna sem hingað hafa flúið í leit að vernd orð­uðu það í dag. Útlend­inga­stofnun hefur und­an­farið sett hæl­is­leit­endum þá afar­kosti að fara í COVID-próf og úr landi eða missa að öðrum kosti fram­færslu sína eða hús­næði. Í dag hefur stofn­unin ákveðið að fram­fylgja þessu.

[adspot]

Nú síð­degis voru menn­irnir enn staddir fyrir utan hús­næðið að leita leiða og aðstoðar við að finna hús­næði. Þeir hafa m.a. sett sig í sam­bandi við Rauða kross Íslands en þau sam­tök eru ekki með neitt hús­næði fyrir þá og hafa þurft að benda þeim á að leita í moskur þó að það sé engin lausn til fram­búðar, segir Áshildur Linnet, teym­is­stjóri hjá Rauða kross­inum, í sam­tali við Kjarnann. Aðrir hafa sett sig í sam­band við sam­tökin No Borders eða lög­menn sína í leit að ráðum. „Þeir eru í raun á göt­unni nema að ein­hver skjóti yfir þá skjóls­húsi,“ segir Áshildur. Þeir fá ekki að gista í Gisti­skýl­inu, athvarfi fyrir heim­il­is­lausa, því þar mega aðeins þeir gista sem hafa íslenska kenni­tölu.

„Þetta eru allt ungir menn sem eiga fjöl­skyldur inni á Gaza og eru að upp­lifa mikla ang­ist og hörm­ungar,“ segir hún. Ísra­els­menn hafa síð­ustu daga gert harðar loft­árásir á svæðið og tugir hafa fallið, m.a. mörg börn. „Í ljósi þess sem er að ger­ast á Gaza er þetta ekki mann­úð­legt,“ heldur Áshildur áfram. „Þessir ungu menn kunna að bjarga sér, þeir hafa þurft að gera það, en það verður erf­ið­ara þegar hug­ur­inn er hjá fólk­inu þeirra á Gaza.“

Hafa misst ástvini á Gaza

Hún segir menn­ina eiga bæði vini og ætt­ingja sem hafi týnt lífi í árásum síð­ustu daga. Það hafi svo einnig aukið á van­líðan þeirra að net- og síma­sam­band á Gaza er mjög stop­ult og því fá þeir sjaldan fréttir af sínum nán­ustu. „Þeim leið því ekki vel fyrir og það virð­ist ekki verið að taka sér­stakt til­lit til þess núna að það eru mjög átak­an­legar aðstæður í þeirra heima­ríki,“ segir Áshildur.

Ungu menn­irnir tóku þátt í matar- og menn­ing­ar­há­tíð ung­menna­húss­ins Ham­ars­ins fyrir helgi. Þar eld­uðu þeir mat fyrir gesti og reyndu að gleðj­ast þó að bæði brott­vísun hafi vofað yfir og hörm­ungar enn og aftur skollið á í heima­landi þeirra.

Engin tilviljun

Arndís Anna Gunn­ars­dóttir lög­maður nokk­urra Palest­ínu­manna og Sýr­lend­inga sem vísa á úr landi á næst­unni, sagði í sam­tali við Kjarnann í morgun að það væri engin til­viljun að fólk sem fengið hefði stöðu flótta­manna í Grikk­landi héldu flótta sínum áfram þaðan. „Af hverju er fólk sem fengið hefur stöðu flótta­manna á Spáni ekki að koma hingað? Eða Búlgaríu? Litháen? Það er af því að flótta­fólk á Grikk­landi hefur enga kosti. Það á sér þar enga fram­tíð. Það er ekk­ert sem það getur gert til að kom­ast út úr þeirri stöðu. Þetta er fólk sem átti heim­ili, fjöl­skyldu og hafði vinnu. En svo missir það allt.“ Stað­reyndin sé sú að í Grikk­landi sé flótta­fólk að deyja á götum úti. Ástandið sé „stóral­var­legt“ og að þangað eigi ekki að vísa fólki. „En það er ekk­ert hlustað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár