Áslaug Arna: Eigum að einblína á þá sem eru í mestu neyðinni

Dóms­mála­ráð­herra segir að Ísland sé fram­ar­lega meðal þjóða þegar kemur að því að láta hæl­is­leit­enda­kerfið virka vel. „Ef við ætlum að gera betur fyrir þennan við­kvæma hóp sem þar er þá eigum við líka að ein­blína á þá sem eru í mestu neyð­inni.“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir að Ísland sé fram­ar­lega meðal þjóða þegar kemur að því að láta hæl­is­leit­enda­kerfið virka vel. Þetta kom fram í máli hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en Olga Margrét Cilia vara­þing­maður Pírata spurði hana hvort ekki væri kom­inn tími til að stjórn­völd létu „af ómann­úð­legri end­ur­send­inga­stefnu sinni“.

Ráð­herr­ann sagði að Íslend­ingar hefðu tekið á móti fleirum hlut­falls­lega en nágranna­löndin í fyrra og að fleiri umsóknir bær­ust hlut­falls­lega en til landa í kringum okkur. „Við höfum líka náð máls­með­ferð­ar­tím­anum niður sem hefur verið vandi síð­ustu ár þar sem fólk hefur beðið allt of lengi eftir nið­ur­stöðu sinna mála. Ekkert mál er nú hjá Útlend­inga­stofnun eldra en 110 daga gam­alt,“ sagði ráð­herr­ann.

Bætti hún því við að gríð­ar­lega stór hópur í heim­inum væri í neyð „og þeir aðilar sem hafa fengið vernd í öðru Evr­ópu­ríki, sem við eigum í sam­starfi við um þennan mála­flokk, eru ein­fald­lega ekki í sömu neyð, eru í minni neyð en 90 pró­sent af þeim sem eru á flótta. Ef við ætlum að gera betur fyrir þennan við­kvæma hóp sem þar er þá eigum við líka að ein­blína á þá sem eru í mestu neyð­inni og ættu erfitt með að kom­ast hingað sjálfir.“

Ættu að vera fullmeðvituð um að hælisleitendakerfið í Grikklandi væri hrunið

[links]Olga Margrét hóf fyr­ir­spurn sína á því að segja að rík­is­stjórn Íslands, með dóms­mála­ráðu­neytið og Útlend­inga­stofnun í for­svari, héldi áfram að senda umsækj­endur um alþjóð­lega vernd aftur til Grikk­lands þrátt fyrir að íslensk stjórn­völd ættu að vera full­með­vituð um að hæl­is­leit­enda­kerfið í Grikk­landi væri fyrir löngu hrunið.

Vísaði hún í til­kynn­ingu frá Rauða kross­inum sem birt­ist fyrir tveimur vikum en í henni sagði að Rauði kross­inn á Íslandi ítrek­aði þá afstöðu sína að fyr­ir­hug­aðar end­ur­send­ingar flótta­fólks til Grikk­lands væru ekki for­svar­an­legar við núver­andi aðstæður.

„Öllu þessu hefur Rauði kross­inn marg­sinnis komið á fram­færi við Útlend­inga­stofnun, kæru­nefnd útlend­inga­mála og dóms­mála­ráð­herra, sem og í opin­berri umræðu,“ sagði þing­mað­ur­inn og vís­aði enn fremur í orð yfir­manns flótta­manna­hjálpar í Evrópu hjá UNICEF en hann sagði að nú væri tími til kom­inn að Evrópa sýndi Grikk­landi og Tyrk­landi sam­stöðu. Þessar þjóðir hefðu tekið móti mjög stórum hópum barna og fjöl­skyldna en ekk­ert eitt ríki næði utan um þetta verk­efni óstutt.

„Hvernig réttlætir ráðherra það að senda tíu einstaklinga á götuna?“

Olga Margrét vék máli sínu að fréttum vik­unnar þess efnis að vísa ætti tíu umsækj­endum um alþjóð­lega vernd úr landi. „Þeir voru sviptir fram­færslu og fengu hálf­tíma til að taka saman föggur sínar og fara úr húsi. Þeir voru settir á göt­una á Íslandi í boði íslenskra stjórn­valda, tíu ein­stak­lingar sem stjórn­völd telja að séu best geymdir við erf­iðar og ómann­úð­legar aðstæður í Grikk­landi.“

Vitnaði hún í frétt Kjarnans þar sem Palest­ínu­maður sagði að þeir vildu frekar deyja á göt­unni á Íslandi en að fara aftur til Grikk­lands. Þá vís­aði hún einnig í orð for­svars­manna Útlend­inga­stofn­unar að aðgerð­irnar sam­ræmd­ust lögum og reglum og að þær væru ekki án for­dæma.

„Nei, það er ekki án for­dæma að íslensk stjórn­völd ger­ist sek um að senda fólk í við­kvæmri stöðu ítrekað til Grikk­lands af því að þau eru búin að ákveða að nota ein­hverja túlkun á hug­tak­inu „öruggt ríki“ sér í hag,“ sagði hún.

Spurði Olga Margrét hvort ekki væri kom­inn tími til að stjórn­völd létu af ómann­úð­legri end­ur­send­inga­stefnu sinni. „Er ekki kom­inn tími til að hlusta á mann­úð­ar­sam­tök og hætta end­ur­send­ingum til Grikk­lands? Hvernig rétt­lætir ráð­herra það að senda tíu ein­stak­linga á göt­una? Hvernig getur það stað­ist lög og hvernig getur það talist mann­úð­legt?“

Segir flóttamannakerfið neyðarkerfi – ætlað fyrir fólk sem óttast um líf sitt og frelsi

Dóms­mála­ráð­herra svar­aði og sagði að íslensk stjórn­völd hefðu ekki sent neinn í hæl­is­kerfið á Grikk­landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar síðan árið 2010 og að ein­ungis hefðu verið sendir ein­stak­lingar sem hlotið hafa alþjóð­lega vernd í Grikk­landi.

„Öll mál eru samt sem áður skoðuð á ein­stak­lings­bundnum grund­velli. Frá því í febr­úar á síð­asta ári hefur heldur eng­inn verið fluttur til Grikk­lands en nokkur hópur nú bíður flutn­ings til Grikk­lands, allt stakir karl­menn sem eru með vernd í Grikk­landi og nokkrir ein­stak­lingar hafa fengið synjun og hafa farið sjálf­vilj­ugir aftur til Grikk­lands. Við búum í rétt­ar­ríki og í því felst að við verðum öll að virða lag­ara­mmann sem Alþingi hefur sam­þykkt og við þing­menn komið okkur saman um á grund­velli lýð­ræð­is­legra sjón­ar­miða og þetta gildir jafnt um stofn­anir rík­is­ins sem og alla ein­stak­linga sem staddir eru í land­inu.

Fram­kvæmd þess­ara mála er með þeim hætti að við end­ur­sendum nú ein­stak­linga sem eru komnir með vernd í Grikk­landi en ekki þá sem eru í hæl­is­kerf­inu þar, eins og oft er ruglað saman. Við­kom­andi ein­stak­lingar hafa neitað, eins og fram hefur komið, að hafa sam­starf við yfir­völd hér á landi á grund­velli fram­kvæmdar laga og reglna sem hvíla á þeim lag­ara­mma sem Alþingi hefur sett,“ sagði hún.

Áslaug Arna sam­sinnti því að það væru veikir inn­viðir í Grikk­landi sem gerði það að verkum að ein­stak­lingum hefði reynst erfitt að koma undir sig fót­unum. „Á sama tíma eru 26 millj­ónir ein­stak­linga á flótta víða í heim­inum og það er ekk­ert land sem hefur hætt end­ur­send­ingum alfarið til Grikk­lands. Ég tel rétt að árétta það að þetta flótta­manna­kerfi er neyð­ar­kerfi og er ætlað fyrir fólk sem ótt­ast um líf sitt og frelsi og er ekki hugsað fyrir þá sem þegar hafa fengið alþjóð­lega vernd í öðru ríki og við eigum frekar að ræða það hvort við viljum ekki fara að skoða aukin atvinnu­leyfi fyrir fólk utan Evrópu sem vill koma hér og bæta lífs­kjör sín og starfa í íslensku sam­fé­lagi.“

Ísland gæti verið fremst í flokki hvað mannúðlega meðferð á fólki varðar

Olga Margrét steig aftur í pontu og sagði að það breytti voða­lega litlu að þessir hæl­is­leit­endur væru komnir með alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Dóms­mála­ráð­herra hlyti að vera sam­mála henni um það.

„Þegar ég tala um að kerfið í Grikk­landi sé sprungið er það af því að Grikk­land tekur vegna land­fræði­legrar stöðu sinnar við gríð­ar­lega miklum fjölda flótta­fólks, auk þess að sinna fólki sem hefur fengið alþjóð­lega vernd þar í landi. Mér finnst það ekki skipta neinu að rík­is­stjórnir heims hafi ekki hætt end­ur­send­ingum til Grikk­lands af því að það kemur þeim rík­is­stjórnum aug­ljós­lega best. Það er aug­ljóst.

Ég sé ekk­ert sem gæti komið í veg fyrir það að Ísland gæti verið fremst í flokki hvað varðar mann­úð­lega með­ferð á fólki og hætti ein­fald­lega að senda fólk í við­kvæmri stöðu til Grikk­lands. Grikk­land er ekki öruggt ríki þó að rík­is­stjórnin haldi því statt og stöðugt fram. Rauði kross­inn og UNICEF hafa gefið út að það er ekki öruggt að senda fólk aftur til Grikk­lands, hver sem staða þess er innan hæl­is­leit­enda- eða flótta­fólks­kerf­is­ins,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár