Palestínumenn handteknir í húsnæði Útlendingastofnunar

„Þeir börðu þá og hentu þeim í jörð­ina,“ hafa sam­tökin No Borders eftir mann­eskju sem varð vitni að hand­töku tveggja Palest­ínu­manna í dag. Lög­fræð­ingur Rauða kross­ins varð að hluta til vitni að atburð­unum.

Mynd af handtökunni sem samtökin No Borders birtu á Facebook-síðu sinni.
Mynd af hand­tök­unni sem sam­tökin No Borders birtu á Facebook-síðu sinni. Mynd: No Borders

Samtökin No Borders birtu í dag frá­sögn sjón­ar­votts af því þegar tveir menn voru hand­teknir í hús­næði Útlend­inga­stofn­unar í Hafn­ar­firði. Sjón­ar­vott­ur­inn sem vitnað er til segir menn­ina hafa verið boð­aða til Útlend­inga­stofn­unar til að taka við bólu­setn­ing­ar­vott­orðum vegna COVID-19. Þar hafi hins vegar lög­reglu­menn beðið þeirra og tjáð þeim að það ætti að vísa þeim úr landi í dag og til Grikk­lands. Þeir hafi neitað og lög­reglu­menn­irnir því hand­tekið þá og beitt til þess valdi. „Þeir börðu þá og hentu þeim á jörð­ina,“ segir m.a. í færslu No Borders. Þá hafi raf­byssum einnig verið beitt. Fleiri lög­reglu­bílar sem og sjúkra­bílar hafi komið á vett­vang. Einnig er haft eftir sjón­ar­vott­inum að lög­reglan hafi ýtt við öðru vitni á vett­vangi og tekið síma þess og eytt mynd­böndum og myndum sem við­kom­andi hafði tekið af atvik­inu.

[adspot]

Lög­fræð­ingur Rauða kross Íslands (RKÍ) var staddur í hús­næði Útlend­inga­stofn­unar í dag vegna ótengds máls og varð að hluta til vitni að því sem gerð­ist. Þetta stað­festir Gunn­laugur Bragi Björns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Rauða kross­ins, í sam­tali við Kjarnann. Hann segir starfs­menn RKÍ ekki þekkja for­sögu þessa til­tekna máls en verið sé að spyrj­ast fyrir og reynt verði að fá frek­ari upp­lýs­ingar, m.a. hjá Útlend­inga­stofnun. Það sé gert í ljósi þess að þarna kunna að eiga hlut að máli ein­stak­lingar sem Rauði kross­inn hefur gegnt tals­manna­þjón­ustu fyrir.

[links]Hópur Palest­ínu­manna, sem flúði hingað til lands með við­komu á Grikk­landi, neit­aði í vor að fara í sýna­töku vegna COVID-19 sem er for­senda þess að mega ferð­ast óbólu­settur milli landa. Því var ekki hægt að vísa þeim úr landi. Í kjöl­farið ákvað Útlend­inga­stofnun að svipta þá allri þjón­ustu, s.s. hús­næði og mat­ar­pen­ingum. Kæru­nefnd útlend­inga­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu að stofn­unin hefði ekki haft heim­ildir til þess. Bauð stofn­unin mönn­unum í kjöl­farið aftur þjón­ustu.

Í færslu á Facebook-síð­unni Refugees in Iceland, segir að menn­irnir sem voru hand­teknir í dag séu úr þessum hópi.

Starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar sögðu í við­tali við Kjarnann, eftir að þjón­usta við menn­ina var felld niður, að loka­á­kvörðun væri komin í þeirra hæl­is­um­sóknir og nið­ur­staða stjórn­valda sú að þeim ætti að vísa úr landi. Menn­irnir sögðu í við­tölum við Kjarnann að þeir gætu ekki hugsað sér að fara aftur til Grikk­lands, því þar biði þeirra ekk­ert annað en gatan.

Lögmenn þeirra gagn­rýndu í við­tölum vegna máls­ins að Grikk­land væri enn talið öruggt land fyrir hæl­is­leit­endur þegar reynslan sýndi og skýrslur stað­festu að aðbún­aður flótta­fólks þar væri skelfi­legur.

Útlend­inga­stofnun ætlar ekki að tjá sig um atvikið, að því er fram kemur í svari stofn­un­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans og vísar á lög­reglu í stað­inn. Í skrif­legu svari lög­regl­unnar við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að um sé að ræða atvik þar sem stoð­deild emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra hafi verið að fram­kvæma beiðni Útlend­inga­stofn­unar um frá­vísun frá Íslandi. „Að öðru leyti getur emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra ekki tjáð sig um ein­stök mál sem eru til með­ferðar,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár