Breytt viðmið um Venesúelabúa kalli ekki nauðsynlega á lagabreytingar

Til stendur að breyta því með ein­hverjum hætti hvernig íslensk stjórn­völd nálg­ast umsóknir frá rík­is­borg­urum Venes­ú­ela um alþjóð­lega vernd. Fyrri til­raun til þess sama gekk ekki. Dóms­mála­ráðu­neytið segir ekki endi­lega þörf á laga­breyt­ingum.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Dóms­mála­ráðu­neytið telur að breyt­ingar á við­miðum um það á hvaða grund­velli flótta­fólki frá Venes­ú­ela sé veitt vernd hér á landi kalli ekki nauð­syn­lega á laga­breyt­ingar, heldur geti þær birst sem reglu­gerð­ar­breyt­ingar eða til­mæli ráðu­neyt­is­ins til Útlend­inga­stofn­unar.

Þetta kemur fram í svari sem ráðu­neytið veitti Kjarn­anum, vegna fyr­ir­spurnar sem lögð var fram í til­efni orða Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra á þingi fyrr í þess­ari viku.

Ráðherra sagði þar, í orða­skiptum við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­mann Mið­flokks­ins, að unnið væri að því að breyta þeim við­miðum sem væru til staðar um veit­ingu verndar til íbúa Venes­ú­ela og koma í veg fyrir að Ísland væri með „um­fram­seg­ul í sínu kerfi“ miðað við önnur Evr­ópu­ríki.

Orðrétt sagði ráð­herra að Ísland væri „að glíma við óvenju­hátt hlut­fall fólks frá Venes­ú­ela á grund­velli nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála“ og að verið væri að „bregð­ast við því með að reyna að breyta okkar við­mið­unum um það á hvaða grund­velli við veitum þeim vernd“.

„Ég held að það muni færa okkur til jafns við það sem ger­ist og gengur hjá öðrum Evr­ópu­þjóðum og þá verði ekki Ísland með þennan umfram­segul í sínu kerfi sem dregur hingað til lands,“ sagði Jón.

Búið að reyna að breyta framkvæmd – stóðst ekki að mati kærunefndar

Íslensk stjórn­völd tóku ákvörðun um það árið 2018 að umsækj­endum um alþjóð­lega vernd frá Venes­ú­ela yrði veitt við­bót­ar­vernd hér á landi, með vísan til almennra aðstæðna í rík­inu en óháð ein­stak­lings­bundnum aðstæðum hvers umsækj­anda. Fjöldi venes­ú­el­skra rík­is­borg­ara sem hingað leitar hefur auk­ist síðan þá, og undir lok síð­asta árs til­kynnti Útlend­inga­stofnun að breyta ætti fram­kvæmd­inni hvað þennan hóp varðar og leggja ein­stak­lings­bundið mat á umsóknir fólks­ins um vernd á Íslandi.

[adspot]

Í kjöl­farið var mörg­hund­ruð manns frá Venes­ú­ela synjað um vernd á Íslandi með ákvörð­unum Útlend­inga­stofn­unar, en í sumar komst kæru­nefnd útlend­inga­mála að ekki hefði verið sýnt fram á að ástandið í Venes­ú­ela hefði lag­ast frá því að íslenskt stjórn­völd tóku ákvörðun um að veita rík­is­borg­urum Venes­ú­ela við­bót­ar­vernd hér­lendis á grund­velli stöð­unnar í heima­ríki þeirra.

Fram kom í úrskurð­inum að ástandið í land­inu hefði raunar farið versn­andi „og að umfang og alvar­leiki glæpa gegn mann­kyni hafi auk­ist.“ Bætt ástand í Venes­ú­ela gæti því ekki verið rök­stuðn­ingur fyrir því að synja umsækj­endum um við­bót­ar­vernd hér á land­i.[links]

Síðan þá hafa hund­ruð rík­is­borg­ara Venes­ú­ela, sem Útlend­inga­stofnun hugð­ist synja um vernd á grund­velli þeirrar breyttu fram­kvæmdar sem kynnt var undir lok síð­asta árs, fengið vernd á Íslandi.

Þrátt fyrir að fyrri til­raun hafi ekki gengið upp seg­ist dóms­mála­ráðu­neytið telja, sem áður segir, að hægt verði að breyta fram­kvæmd­inni í vernd­ar­málum sem snerta rík­is­borg­ara Venes­ú­ela með reglu­gerð­ar­breyt­ingum eða til­mælum til Útlend­inga­stofn­unar.

Ekki í boði að fá gögn

Hvað ráðu­neytið hyggst gera er þó óljóst. Kjarninn kall­aði eftir því að fá afhent öll gögn sem ráðu­neytið hefði í fórum sínum og tengd­ust und­ir­bún­ingi þeirra breyt­inga sem ráð­herra hefur boðað, en beiðn­inni var synjað.

Svör ráðu­neyt­is­ins voru þau um væri að ræða vinnu­gögn sem und­an­þegin eru upp­lýs­inga­rétti. Samkvæmt upp­lýs­inga­lögum má þó veita rík­ari aðgang að gögnum en því bein­línis er skylt sam­kvæmt lög­unum. Ráðu­neytið tók afstöðu til þess hvort það gæti veitt auk­inn aðgang að þeim gögnum sem liggja fyrir, en taldi sér ekki fært að veita hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár