Umsækjendur um alþjóðlega vernd frá Venesúela hætta að fá skilyrðislausa vernd hér á landi

Frá og með 1. jan­úar næst­kom­andi mun Útlend­inga­stofnun taka upp nýtt verk­lag þar sem lagt verður ein­stak­lings­bundið mat á hverja umsókn sem kemur frá ein­stak­lingum með venes­ú­elskt rík­is­fang með vísan til sjón­ar­miða um við­bót­ar­vernd.

Útlend­inga­stofnun hefur til­kynnt um breytta stjórn­sýslu­fram­kvæmd við mat á þörf rík­is­borg­ara Venes­ú­ela fyrir við­bót­ar­vernd. Breyt­ingin felst í því að lagt verður ein­stak­lings­bundið mat á umsóknir rík­is­borg­ara Venes­ú­ela um vernd hér á landi og hefur það í för með sér að þeir fá ekki lengur skil­yrð­is­laust við­bót­ar­vernd á grund­velli almennra aðstæðna í heima­landi.

Stofn­unin greindi frá þessu á vef­síðu sinni í dag.

Þar kemur fram að frá og með 1. jan­úar 2022 muni Útlend­inga­stofnun taka upp breytt verk­lag en breyt­ingin felst í því að lagt verður ein­stak­lings­bundið mat á hverja umsókn sem kemur frá ein­stak­lingum með venes­ú­elskt rík­is­fang með vísan til sjón­ar­miða um við­bót­ar­vernd.

Breytingarnar samrýmist réttarheimildum „að mörgu leyti betur en fyrri framkvæmd“

Jafn­framt segir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar að á und­an­förnum miss­erum hafi umsækj­endum um alþjóð­lega vernd frá Venes­ú­ela verið veitt við­bót­ar­vernd með vísan til almennra aðstæðna í heima­landi óháð ein­stak­lings­bundnum aðstæðum hvers umsækj­anda.

Samkvæmt Útlend­inga­stofnun er heim­ilt að breyta stjórn­sýslu­fram­kvæmd á til­teknu sviði að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum. „Ræðst það af þeim rétt­ar­heim­ildum sem ákvarð­anir grund­vall­ast á auk þess sem jafn­ræð­is­reglan leiðir til þess að slík breyt­ing verði að fara fram með til­teknum hætti. Með vísan til þeirra rétt­ar­heim­ilda sem gilda er litið svo á að breyt­ing­arnar sem gerðar verða á verk­lagi stofn­un­ar­innar sam­rým­ist þeim vel og að mörgu leyti betur en fyrri fram­kvæmd.“

Af jafn­ræð­is­regl­unni leiði að breyt­ingar verði að grund­vall­ast á mál­efna­legum sjón­ar­miðum, þær verði að vera almennar, taka verði til­lit til rétt­mætra vænt­inga almenn­ings og kynna þær breyt­ingar sem fyr­ir­hug­aðar eru auk þess sem gæta verði að sjón­ar­miðum um bann við aft­ur­virkni rétt­ar­reglna.

Stofnunin segir að flóttafólk frá Venesúela hafi farið aftur til heimalandsins

Í rök­stuðn­ingi fyrir breyttri fram­kvæmd kemur fram að fyrir liggi að yfir­gnæf­andi meiri­hluti umsækj­enda um alþjóð­lega vernd frá Venes­ú­ela beri fyrir sig efna­hags­legar aðstæður og óör­yggi í heima­landi. Þá hafi stofn­unin fengið upp­lýs­ingar um rík­is­borg­ara Venes­ú­ela sem hafa fengið vernd hér á landi en hafa kosið að fara aftur til heima­lands í lengri eða skemmri tíma og með því nýtt sér vernd heima­ríkis á ný.

„Slíkt getur verið grund­völlur aft­ur­köll­unar á vernd þar sem verndin er veitt á þeirri for­sendu að öryggi flótta­manns sé í hættu í heima­landi. Snúi hann þangað aftur gefur það í skyn að flótta­mað­ur­inn þurfi ekki á alþjóð­legri vernd að halda,“ segir á vef stofn­un­ar­innar.

Nýtt verklag innleitt í skrefum

Útlend­inga­stofnun telur því ekki for­svar­an­legt að beita ákvæði útlend­inga­laga með þeim hætti að umsóknir allra umsækj­enda sem koma frá Venes­ú­ela falli skil­yrð­is­laust innan ramma við­bót­ar­verndar, án þess að skoðað sé sér­stak­lega hvernig almennar aðstæður horfi við þeim umsækj­anda sem um ræðir í hverju til­viki fyrir sig.

„Verður þetta verk­lag inn­leitt í skrefum til sam­ræmis við þær leið­bein­ingar sem umsækj­endur hafa fengið á fyrri stigum máls og þannig komið í veg fyrir að breyttri stjórn­sýslu­fram­kvæmd verði beitt aft­ur­virkt. Breyt­ing­arnar eru einnig til sam­ræmis við fram­kvæmd í nágranna­ríkjum Íslands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár