Skorar á dómsmálaráðherra að tala skýrt og segja satt

Þing­maður Pírata segir það grafal­var­legt mál að dóms­mála­ráð­herra taki undir orð­ræðu sem er til þess fallin að auka jað­ar­setn­ingu fólks sem þegar til­heyrir minni­hluta­hópi.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra og Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Samsett/Bára Huld Beck

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, segir ástæðu til að gera athuga­semdir við ýmis ummæli Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra í tengslum við hæl­is­leit­endur, jafnt í þing­sal sem og fjöl­miðlum.

„Hat­urs­orð­ræða er ekki bara brot gegn þeim sem henni er beint að, hat­urs­orð­ræða er bein­línis hættu­leg sam­fé­lag­inu.“ Þannig hóf þing­mað­ur­inn mál sitt undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Óljósar full­yrð­ingar og óræð skila­boð inn á milli lína geta haft hug­hrif langt umfram til­efni,“ hélt hún áfram, og sagði stað­hæf­ingar dóms­mála­ráð­herra óljósar og senda þau skila­boð að fólk á flótta sem leitar hingað að skjóli frá stríði og öðrum hörm­ungum sé upp til hópa óheið­ar­legt, sé ekki hingað komið til að vinna og vera þátt­tak­endur í sam­fé­lag­inu, og sé jafn­vel hættu­legt.

Fólk gengur út frá því að fólk í valdastöðum segi satt

„Þegar fólk í valda­stöðum talar hefur það víð­tæk áhrif. Almenn­ingur gengur út frá því að ein­stak­lingar sem falin hefur verið sér­stök ábyrgð í þágu þjóð­ar­innar tali af þekk­ingu og heið­ar­leika. Fólk trúir þeim. Fólk í valda­stöðum fer með full­yrð­ingar í við­tölum án þess að blaða­menn fari í sér­staka rann­sókn­ar­vinnu til þess að kanna hvort full­yrð­ingin sé sönn eða ekki, því fólk gengur almennt út frá því að fólk í valda­stöðum segi satt,“ sagði Arndís Anna.

Jón mælti í gær fyrir frum­varpi til laga um landa­mæri. Í Morg­un­blað­inu í dag segir dóms­mála­ráð­herra meðal ann­ars að borið hafi á því að hæl­is­leit­endur hafi komið til Íslands með venes­ú­elsk vega­bréf „þrátt fyrir að vera frá öðrum löndum“. Í frétt­inni segir að vega­bréfa­við­skipti af þessu tagi séu alþjóð­legt vanda­mál.

Í frétt­inni ræðir Jón einnig um tengsl við skipu­lagða glæp­a­starf­semi þar sem haft er eftir ráð­herr­anum að mis­notkun á flótta­manna­kerf­inu sé mikil og að menn hafi áhyggjur af teng­ingu við skipu­lagða glæp­a­starf­semi. „Það er bara stað­reynd,“ er haft eftir dóms­mála­ráð­herra.

„Grafalvarlegt mál“

Arndís Anna skor­aði á dóms­mála­ráð­herra að sýna því valdi sem þeim hefur verið falið virð­ingu og byrja að tala skýrt og segja satt.

„Þetta snýst ekki bara um ein­hvern póli­tískan ágrein­ing á milli dóms­mála­ráð­herra og ann­arra sem eru honum ósam­mála um stefnu Íslands í flótta­manna­málum. Þetta er alvar­legt mál, upp á líf og dauða fjöl­skyldna sem er venju­legt fólk eins og við. Það að sjálfur dóms­mála­ráð­herra lands­ins taki undir, og jafn­vel stuðli að, orð­ræðu sem er til þess fallin að auka jað­ar­setn­ingu fólks sem þegar til­heyrir minni­hluta­hópi, er grafal­var­legt mál,“ sagði Arndís Anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár