Forsætisráðherra ósammála dómsmálaráðherra um „stjórnlaust ástand“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra tekur ekki undir orð dóms­mála­ráð­herra að hér sé stjórn­laust ástand í mál­efnum flótta­fólks. Ástandið megi meðal ann­ars rekja til tveggja stjórn­valds­á­kvarð­ana.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spyr hvort það sé stefna rík­is­stjórn­ar­innar að koma í veg fyrir að fólk frá ríkjum á borð við Venes­ú­ela og Sýrland geti komið til Íslands og fengið vernd í sam­ræmi við ákvæði Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna?

Spurn­ing­unni beindi hún að Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun.

„Und­an­farna viku hafa þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, með hæst­virtan dóms­mála­ráð­herra í broddi fylk­ingar, farið mik­inn í umræðu um stjórn­laust ástand í mál­efnum flótta­fólks og umsækj­enda um vernd hér á landi en for­dæma­laus fjöldi fólks er á flótta í heim­inum, ekki síst vegna stríðs­ins í Úkraínu,“ sagði Helga Vala.

Hún sagði einnig að í umræð­unni í vik­unni hafi nokkuð frjáls­lega hafi verið farið með stað­reyndir og „alið mjög á ótta um að hér sé jafn­vel allt að fyll­ast af afbrota­fólki þegar um er að ræða fólk sem flýr stríðs­hörm­ungar“.

[links]Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra mælti í vik­unni fyrir frum­varpi til laga um landa­mæri. Ráðherra sagði af því til­efni í sam­tali við Morg­un­blaðið að borið hafi á því að hæl­is­leit­endur hafi komið til Íslands með venes­ú­elsk vega­bréf „þrátt fyrir að vera frá öðrum lönd­um“. Þá sagði hann í sam­tali við RÚV fyrr í vik­unni að ástandið væri stjórn­laust og að bregð­ast þurfi við auknum fjölda hæl­is­leit­enda með hertum reglum.

Dóms­mála­ráð­herra hyggst á leggja fram breyt­ingar á lögum um útlend­inga (alþjóð­lega vernd) síðar í þessum mán­uði. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að frum­varp­inu sé meðal ann­ars ætlað að „sam­ræma lög­gjöf og fram­kvæmd þess­ara mála við umgjörð ann­arra Evr­ópu­ríkja, einkum ann­arra Norð­ur­landa.“

Helga Vala spurði for­sæt­is­ráð­herra, sem leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar, hvort hún muni styðja breyt­ingar á lögum um útlend­inga „sem fela í sér frek­ari hindr­anir fyrir fólk á flótta sem Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna og kæru­nefnd útlend­inga­mála hafa sagt að þurfi vernd?“

Stöðuna megi rekja til tveggja stjórnvaldsákvarðana

Umsóknir um alþjóð­lega vernd hafa aldrei verið fleiri en nú. Í máli for­sæt­is­ráð­herra kom fram að umsókn­irnar eru nú yfir þrjú þús­und tals­ins, alls 3.133. Hátt í 1.900 eru frá Úkraínu og 653 frá Venes­ú­ela. Yfir 100 manns frá Venes­ú­ela hafa fengið við­bót­ar­vernd frá á Íslandi eftir að kæru­nefnd útlend­inga­mála kvað upp úrskurð í máli ein­stak­lings frá Venes­ú­ela þann 18. júlí og felldi með honum úr gildi fyrri ákvörðun Útlend­inga­stofn­un­ar, um að synja kær­anda um alþjóð­lega vernd og dval­ar­leyfi á Íslandi.

Katrín benti á að stöð­una í mál­efnum útlend­inga megi meðal ann­ars rekja til tveggja stjórn­valds­á­kvarð­ana sem hafa verið teknar, ann­ars vegar af hálfu stjórn­valda að bjóða öll vel­kom­inn frá Úkraínu og hins vegar ákvörðun kæru­nefndar útlend­inga­mál. „Því get ég ekki tekið undir að hér sé stjórn­laust ástand. Þetta eru ákvarð­anir sem hafa verið teknar. Þegar við lítum á önnur þau sem hingað hafa komið er sá fjöldi í sjálfu sér ekk­ert umfram það sem ætla mætti að væri eðli­legt,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Staðan eins og hún er núna skapi hins vegar álag. „Þetta skapar álag á hús­næð­is­mál hjá sveit­ar­fé­lögum, þetta skapa álag úti í skól­unum,“ sagði Katrín, sem hefur stofnað ráð­herra­nefnd um mál­efni útlend­inga og inn­flytj­enda þar sem ætl­unin er að fara heild­stætt yfir þessi mál. Í nefnd­inni sitja, auk for­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, mennta- og barna­mála­ráð­herra, háskóla­ráð­herra.

„Af því að auð­vitað þurfum við að tryggja það að við getum tek­ist á við stöð­una með sóma­sam­legum hætti, staða sem er, eins og ég segi, fyrst og síð­ast til komin vegna ákvörð­unar rík­is­stjórnar ann­ars vegar og ákvörð­unar kæru­nefndar útlend­inga­mála hins vegar,“ sagði Katrín.

Kostnaði skellt á sveitarfélögin sem „nú emja hávært“

Helga Vala þakk­aði for­sæt­is­ráð­herra fyrir afdrátt­ar­laust svar til stuðn­ings fólki á flótta frá Venes­ú­ela og Úkraínu en spurði svo hvers vegna und­ir­bún­ingur fyrir fyr­ir­sjá­an­legan fjölda flótta­fólks frá Úkraínu var ekki betri.

„Hvers vegna hefur rík­inu ekki tek­ist að gera samn­inga við fleiri sveit­ar­fé­lög um mót­töku fólks á flótta? Og hvers vegna er ekki tryggt að fjár­magn með hverjum og einum sem nýtur þjón­ust­unnar sé tryggt heldur kostn­aði skellt á sveit­ar­fé­lögin sem nú emja hávært, eðli­lega?“ spurði Helga Vala.

Fjölda­hjálp­ar­stöð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd var opnuð í skrif­stofu­hús­næði í Borg­ar­túni í síð­ustu viku. Rauði kross­inn hefur kallað eftir því að fleiri sveit­ar­fé­lög verði að koma að verk­efn­inu eigi Rauði kross­inn að ná utan um það. Til þessa dags hafa ein­ungis fimm sveit­­ar­­fé­lög und­ir­­ritað samn­ing um þátt­­töku í sam­ræmdri mót­­töku flótta­­fólks, og sumir þeirra eru auk þess útrunnir. Það eru Reykja­vík­­­ur­­borg, Hafn­­ar­fjarð­­ar­bær, Reykja­­nes­bær, Árborg og Akur­eyr­­ar­­bær.

Katrín sagð­ist furða sig á þeim mál­flutn­ingi um að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við sveit­ar­fé­lög vegna mót­töku flótta­fólks. Vísaði hún í nefnd sem hefur verið starf­andi frá árinu 2017 um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks og hennar hlut­verk var að gera til­lögur að sam­ræmdu mót­töku­kerfi fyrir flótta­fólk óháð því hvernig það kæmi til lands­ins.

„Ég átta mig ekki alveg á þess­ari umræðu um að þetta hafi ekki verið und­ir­búið með nægj­an­legum hætti. Ég get eig­in­lega ekki fall­ist á það. Ég skil þó alveg að almennt er staða sveit­ar­fé­laga þung, þau halda sína fjár­mála­ráð­stefnu í dag og auð­vitað getum við ekki litið fram hjá því að þessi mikli fjöldi fólks skapar álag, ekki bara á ríkið heldur einnig stofn­anir sveit­ar­fé­laga,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár