Neyðarúrræði en ekki neyðarástand

Fjölda­hjálp­ar­stöð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hefur verið opnuð í skrif­stofu­hús­næði í Borg­ar­túni þar sem Vega­gerðin var áður til húsa. Hægt verður að taka á móti 150 manns að hámarki og miðað er við að fólk dvelji ekki lengur en þrjár nætur.

Stjórn­völd leit­uðu til Rauða kross­ins í gær og ósk­uðu eftir að opnuð yrði fjölda­hjálp­ar­stöð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Ástæðan er mikil fjölgun á komu flótta­fólks til lands­ins, meðal ann­ars vegna átak­anna í Úkraínu, sam­hliða skorti á íbúð­ar­hús­næði fyrir flótta­fólk.

Atli Viðar Thorsten­sen, sviðs­stjóri alþjóða­sviðs hjá Rauða kross­inum segir að um sé að ræða neyð­ar­úr­ræði í ástandi sem er ekki neyð­ar­á­stand. Beiðnin barst frá stjórn­völdum seint í gær og við það voru ákveðnar við­bragðs­á­ætl­anir sem eru til staðar hjá Rauða kross­inum virkj­aðar. Skrif­stofu­hús­næði í Borg­ar­túni, þar sem Vega­gerðin var áður til húsa, verður notað undir fjölda­hjálp­ar­stöð­ina.

[adspot]Mögulega verður tekið á móti fólki í kvöld, ann­ars á morgun. Pláss verður fyrir 150 manns á hverjum tíma en fjöld­inn fer eftir sam­setn­ingu hóps­ins sem þangað mun leita.

Gylfi Þór Þor­steins­son, aðgerð­ar­stjóri við mót­töku flótta­fólks, sagði í sam­tali við RÚV á föstu­dag að opnun fjölda­hjálp­ar­stöðvar væri algjört neyð­ar­úr­ræði „sem við reynum í fremstu lög að grípa ekki til því það þýðir í raun­inni að allt hús­næði sé uppurið“.

Fleiri sveitarfélög verða að koma að verkefninu

Gert er ráð fyrir að fólk gisti í fjölda­hjálp­ar­stöð­inni í tak­mark­aðan tíma, helst ekki lengur en þrjár nætur, og fari þaðan í önnur hús­næðisúr­ræði. „Fleiri sveit­ar­fé­lög verða að koma að verk­efn­inu ef við eigum að ná utan um það,“ segir Atli Viðar í sam­tali við Kjarnann.

[links]Í síð­asta mán­uði höfðu yfir 2.600 manns sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi á árinu. Í búsetu­úr­ræðum Vinnu­mála­stofn­unar voru á dög­unum fleiri sem höfðu fengið stöðu flótta­manns en sem nam fjölda þeirra umsækj­enda um vernd sem sveit­ar­fé­lög þjón­usta. Til þessa dags hafa ein­ungis fimm sveit­ar­fé­lög und­ir­ritað samn­ing um þátt­töku í sam­ræmdri mót­töku flótta­fólks. Það eru Reykja­vík­ur­borg, Hafn­ar­fjarð­arbær, Reykja­nes­bær, Árborg og Akur­eyr­ar­bær.

Fjölda­hjálp­ar­stöðin verður stað­sett í her­bergjum í skrif­stofu­hús­næði í Borg­ar­túni. Húsnæðið er á nokkrum hæðum og hentar verk­efn­inu ágæt­lega að sögn Atla Viðars en bæta þarf við sal­ernis- og sturtu­að­stöðu. Gert er ráð fyrir sér­stakri aðstöðu fyrir fjöl­skyldu­fólk. Konur og fjöl­skyldur verða á einni hæð og karl­menn á annarri hæð.

Rauði kross­inn á Íslandi gegnir stoð­hlut­verki við stjórn­völd í almanna­vörnum og hlut­verk félags­ins felst meðal ann­ars í opnun og starf­rækslu fjölda­hjálp­ar­stöðva. Það er því Rauði kross­inn sem sér um og rekur fjölda­hjálp­ar­stöð­ina í Borg­ar­túni en í nánu sam­starfi við Vinnu­mála­stofnun, sem þjón­ustar umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sem og félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið sem fer með mála­flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár