Útlendingastefnan elti þá hörðustu í hinum Norðurlöndunum

Silja Bára Ómars­dóttir stjórn­mála­fræð­ingur og nýkjör­inn for­maður Rauða kross­ins á Íslandi segir óásætt­an­legt að flótta­fólki sé mis­munað eftir upp­runa og að verið sé að taka upp á Íslandi útlend­inga­stefnu sem elti hörð­ustu stefnur ann­arra Norð­ur­landa.

Silja Bára var gestur í Silfrinu á RÚV þar sem hún sagði óásættanlegt að senda eigi 300 flóttamenn frá Íslandi til Grikklands á næstu misserum.
Silja Bára var gestur í Silfrinu á RÚV þar sem hún sagði óásætt­an­legt að senda eigi 300 flótta­menn frá Íslandi til Grikk­lands á næstu miss­erum. Mynd: KRISTINN INGVARSSON

Silja Bára Ómars­dóttir er nýkjör­inn for­maður Rauða kross­ins á Íslandi og hún segir að í starfi Rauða kross­ins hafi þau fundið fyrir því að flótta­fólk frá öðrum upp­runa­löndum en Úkraínu upp­lifi að því sé mis­munað.

Silja Bára var gestur í Silfrinu á RÚV þar sem hún sagði óásætt­an­legt að senda eigi 300 flótta­menn frá Íslandi til Grikk­lands á næstu miss­erum. Um er að ræða fólk sem ekki var hægt að senda til baka á meðan á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð. Sagði Silja að mann­úð­legra væri að veita fólk­inu, sem hafi fest hér rætur, dval­ar­leyfi.

[adspot]Þá sagði Silja mik­il­vægt að stuðla að meiri teng­ingu á milli dvalar- og atvinnu­leysis, en brott­vísun þessa stóra hóps fólks hefur verið tals­vert gagn­rýnd í tengslum við það að áætlað sé að íslensk ferða­þjón­usta þurfi að flytja inn allt að 9 þús­und starfs­menn á þessu ári og því næsta til að anna eft­ir­spurn.

Loks sagði Silja að íslensk stjórn­völd væru að nýta sér Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina í öðrum til­gangi en henni var ætlað. „Hún var sett til þess að tryggja það að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd fengju efn­is­lega með­ferð sinna umsókna ein­hvers­staðar. Og við notum hana til að senda fólk í fyrsta land vegna þess að það er heim­ild, en ekki skylda.“

Hún segir óásætt­an­legt að mis­mun­andi við­horf séu til flótta­fólks eftir upp­runa­landi. „Flótta­fólk á að njóta sama réttar, sama hvaðan það kemur. Íslensk stjórn­völd hafa verið að herða sína útlend­inga­stefnu. Við erum að taka upp stefnu sem er með því harð­ari, við erum að elta Norð­ur­löndin í þeirra hörð­ustu stefnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár