Píratar, Samfylking og Viðreisn mælast saman með meira fylgi en stjórnarflokkarnir

Fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hefur hrunið eftir atburði síð­ustu daga. Síðustu tæpu viku mælist fylgi þeirra ein­ungis 41,4 pró­sent. Á sama tíma mælist sam­an­lagt fylgi þriggja stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna 45,4 pró­sent.

Fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur hrunið síðustu daga.
Fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hefur hrunið síð­ustu daga. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja hefur hrunið eftir að hneyksl­is­mál síð­ustu daga og vikna, sem fela í sér atvik á Bún­að­ar­þingi og umdeilda banka­sölu, komust í hámæli. Í nýrri könnun Maskínu fyrir frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis kemur fram að sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna hafi verið mælst 49 pró­sent 17. mars til 6. apríl. Frá þeim degi og fram til dags­ins í dag mæld­ist sam­an­lagt fylgi þeirra hins vegar 41,4 pró­sent. Frá þessu er greint á Vísi.

Fylgis­tapið dreif­ist nokkuð jafnt milli stjórn­ar­flokk­anna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti 2,3 pró­sentu­stig milli mæl­ing­ar­tíma­bil­anna og er með 20,8 pró­sent fylgi. Vinstri græn tapa 2,6 pró­sentu­stigum og mæl­ast með sjö pró­sent fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fer úr 16,3 í 13,6 pró­sent.

Á hinn bóg­inn hefur fylgi þeirra stjórn­ar­and­stöðu­flokka sem hafa verið hávær­astir í gagn­rýni á stjórn­ar­flokk­anna vegna rasískra ummæla Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, og eft­ir­mála sölu á 22,5 pró­sent hlutar í Íslands­banka bætt gríð­ar­lega miklu fylgi við sig síð­ustu daga. Á tíma­bil­inu 17. mars til 6. apríl mæld­ist sam­an­lagt fylgi Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar 33 pró­sent. Frá 6. apríl og til dags­ins í dag mæld­ist það hins vegar 45,4 pró­sent. Þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar mæld­ust sam­kvæmt þessu með meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír síð­ustu daga.

[adspot]Mest jókst fylgi Pírata, um 6,7 pró­sentu­stig og upp í 17,9 pró­sent. Sam­fylk­ingin bætti við sig 4,3 pró­sentu­stigum og mælist með 16 pró­sent fylgi. Fylgi Við­reisnar jókst minnst, eða um 1,4 pró­sentu­stig og er 11,5 pró­sent.

Þeir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem hafa látið minna fyrir sér fara í gagn­rýni á atburði síð­ustu daga lækka umtals­vert í fylgi. Flokkur fólks­ins mæld­ist með 8,8 pró­sent stuðn­ing á fyrra tíma­bil­inu en 5,1 pró­sent frá 6. apríl. Fylgi Mið­flokks­ins mæld­ist 4,3 pró­sent frá 17. mars til 6. apríl en 3,9 pró­sent eftir það.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem á ekki full­trúa á þingi fór úr 4,8 í 4,2 pró­sent fylgi á milli tíma­bil­anna sem könn­unin náði yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár