Heiða Björg endurkjörin varaformaður Samfylkingarinnar

Heiða Björg Hilm­is­dóttir hefur verið end­ur­kjörin vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hún hlaut rúm­lega 60 pró­sent greiddra atkvæða á raf­rænum lands­fundi flokks­ins sem nú stendur yfir.

Heiða Björg hefur verið varaformaður Samfylkingarinnar frá árinu 2017.
Heiða Björg hefur verið vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar frá árinu 2017. Mynd: Bára Huld Beck

Heiða Björg Hilm­is­dóttir sigr­aði í kjöri til vara­for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar með rúmum 60 pró­sentum atkvæða á lands­fundi flokks­ins sem nú fer fram. Alls greiddu 889 atkvæði en af þeim hlaut Heiða Björg 534 atkvæði. Helga Vala Helga­dóttir, mót­fram­bjóð­andi hennar hlaut 351 atkvæði.

Heiða Björg sagði það hafa verið krefj­andi, skemmti­legt og ánægju­legt að vera vara­for­maður flokks­ins. Hún þakk­aði sér­stak­lega þeim sem sýndu henni stuðn­ing og lof­aði því að leggja sig alla fram í störfum sínum sem vara­for­maður.

Á eftir Heiðu Björgu steig Helga Vala í pontu. Hún sagði kosn­inga­bar­átt­una hafa verið hressandi. Hún taldi það vera heil­brigt fyrir flokk sem aukið hefði fylgið sitt á und­an­förnum árum að velja nýja for­ystu eða að end­ur­nýja umboð til for­yst­unnar sem nú hefði verið gert. Hún sagð­ist vera stolt að til­heyra hópi fólks sem getur gengið til kosn­inga án þess að það „fuðri allt upp.“

Logi einn í framboði

Lands­fundur Sam­fylk­ing­ar­innar var settur í gær á Hilton Reykja­vík Nordica. Þar fer dag­skrá fund­ar­ins fram en vegna sótt­varna­ráð­staf­ana er þar fámennur hópur að störfum. Lands­fund­ar­full­trúar sækja því fund­inn raf­rænt í gegnum fjar­fund­ar­búnað hver í sinni tölvu.

Meðal dag­skrár­liða fund­ar­ins í gær voru kosn­ingar til for­manns flokks­ins. Logi Már Ein­ars­son, núver­andi for­maður, var einn í fram­boði og var hann end­ur­kjör­inn með 96,45 pró­sentum greiddra atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár