Ummæli Ágústs Ólafs hljóti að hafa áhrif á stöðu hans

„Allt þetta hlýtur að hafa áhrif á stöðu hans fyrir næstu alþing­is­kosn­ingar,“ skrifar Ragna Sig­urð­ar­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar og for­maður Ungra jafn­að­ar­manna, um ummæli sem Ágúst Ólafur Ágústs­son þing­maður lét falla um helg­ina.

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Svona eiga þing­menn ekki að tala,“ skrifar Ragna Sig­urð­ar­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar og for­maður Ungra jafn­að­ar­manna á Twitter í dag og vísar þar til ummæla sem Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður flokks­ins, lét falla í við­tals­þætt­inum Sprengisandi um helg­ina. Sagði hann núver­andi rík­is­stjórn vera rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Þessu tóku margir sem kven­fyr­ir­litn­ingu þar sem kona, Katrín Jak­obs­dóttir, væri for­sæt­is­ráð­herra Íslands.

Þegar Kristján Krist­jáns­son þátta­stjórn­andi benti á að rík­is­stjórnir væru vana­lega kenndar við for­sæt­is­ráð­herra, í þessu til­viki Katrínu Jak­obs­dóttur, þá sagði Ágúst Ólafur: „Við Willum [Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem var líka gestur þátt­ar­ins] þekkjum alveg hver stjórnar. Og það er ekki Katrín.“

Ágúst Ólafur var í kjöl­farið ásak­aður um að sýna af sér kven­fyr­ir­litn­ingu með orðum sínum. Á meðal þeirra sem það gerðu var Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sem skrif­aði í stöðu­upp­færslu á Twitter í morgun, þar sem hún hlekkj­aði í þráð Líf Magneu­dóttur, borg­ar­full­trúa Vinstri grænna, um málið: „Botnlaus kven­fyr­ir­litn­ing. Og ekki í fyrsta sinn.“

Líf hafði sjálf skrifað: „Ágúst Ólafur, finndu þér eitt­hvað annað að gera. Þú átt ekk­ert erindi á ALþingi jafn illa hald­inn af kven­fyr­ir­litn­ingu og raun ber vitni. Þetta er ekki í fyrsta sinn.“

Á meðal þeirra sem tjáðu sig á þræði Lífar var Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem skrif­aði: „Úff þetta er bara ekki í lagi...“

Ágúst Ólafur baðst í dag afsök­unar á ummælum sínum með færslu á Facebook að honum þyki leitt að hafa sett orð sín fram með þeim hætti að hann gerði lítið úr for­ystu­hlut­verki Katrínar Jak­obs­dóttur.

Ragna skrifar í færslu sinni á Twitter að gott og gilt sé að biðj­ast afsök­unar en að ummælin minni „óneit­an­lega á þá kyn­ferð­is­legu áreitni sem þing­mað­ur­inn sýndi af sér og léleg við­brögð hans í kjöl­far opin­ber­unar hennar“. Hún bætir svo við: „Allt þetta hlýtur að hafa áhrif á stöðu hans fyrir næstu alþing­is­kosn­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár