Logi vill taka ný skref til aukinnar Evrópusamvinnu

Logi Már Ein­ars­son sagði í for­manns­ræðu sinni á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar að hags­munum Íslend­inga væri best borgið með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Þá sagði hann mik­il­vægt að störfum yrði fjölgað, bæði opin­berum og í einka­geir­anum.

Logi í pontu á landsfundi Samfylkingarinnar í gær.
Logi í pontu á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í gær. Mynd: Aðsend

Í for­manns­ræðu Loga Márs Ein­ars­sonar á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sem nú stendur yfir sagði hann að Íslandi farn­að­ist best í nánu sam­starfi við Evrópu og hann vill að hér verði stigin ný skref í átt að auk­inni Evr­ópu­sam­vinnu. Þá sagði hann að það ætti að vera algjört for­gangs­mál að fjölga störfum með öllum til­tækum ráðum.

Lands­fundur Sam­fylk­ing­ar­innar var settur á Hilton Reykja­vík Nordica í gær og er hann sendur út raf­rænt. Lands­fund­ar­full­trúar sitja því hverjir við sína tölvu en fámennur hópur heldur uppi dag­skrá fund­ar­ins frá Nordica. Logi Már Ein­ars­son var end­ur­kjör­inn for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í gær en hann var einn í fram­boði. Hann hélt for­manns­ræðu sína á lands­fundi fyrr í dag.

Aðalatriðið að fjölga störfum

Í ræðu sinni fjall­aði Logi meðal ann­ars um efna­hags­á­ætlun sem þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar hefur lagt fram. Að sögn Loga mun áætl­unin koma til með að skapa sjö þús­und störf á árinu 2021 verði henni hrint í fram­kvæmd. Þetta myndi nást með því að „styrkja ráðn­ingar en ekki upp­sagnir, eins og rík­is­stjórnin gerir,“ sagði Logi.

Hann sagði aðal­at­riðið vera að fjölga störfum strax, bæði í einka­geir­anum og hjá hinu opin­bera. „Enda blasir við að versta atvinnu­kreppa á Íslandi frá upp­hafi mæl­inga er ekki rétti tím­inn til að karpa um hlut­falls­legt vægi hvors fyrir sig.“

Þá sagði hann að meðal þess sem hægt væri að gera til þess að fjölga störfum væri að létta skatt­byrði ein­yrkja og smærri fyr­ir­tækja og lækka vinnu­letj­andi jað­ar­skatta á barna­fólk og líf­eyr­is­þega.

Sendi stjórnarflokkunum pillu

Logi sagði Vinstri­hreyf­ing­unni - grænu fram­boði ekki hafa tek­ist að koma sínum málum í fram­kvæmd. „Lofts­lags­málin eru enn í lama­sessi þrátt fyrir miklar yfir­lýs­ingar, rík­is­stjórnin rekur ójafn­að­ar­stefnu í skatta­málum og mann­fjand­sam­lega stefnu í mál­efnum flótta­fólks,“ sagði hann meðal ann­ars um störf rík­is­stjórn­ar­innar.

Þá sagði hann Fram­sókn­ar­flokk skreyta sig með félags­hyggju­fjöðrum þegar líða fer að kosn­ingum en að flokk­ur­inn hefði laskaða sjálfs­mynd eftir langt sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki. Sá flokkur, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sagði Logi vera sundraðan og klof­inn – íhalds­fólkið gengi í Mið­flokk­inn en mark­aðs­s­in­arnir færu í Viðreisn.

Vill tímabundinn nýtingarétt náttúruauðlinda

Í ræðu Loga kom fram að Sam­fylk­ingin vildi skýra þjóð­ar­eign með tíma­bundnum nýt­ing­ar­rétti og eðli­legri gjald­heimtu. Þetta sagði Logi vera vilja þjóð­ar­innar og vís­aði þar til þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar um til­lögur stjórn­laga­ráðs til nýrrar stjórn­ar­skrár sem haldin var árið 2012.

„Spurn­ingin í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni árið 2012 var ein­föld: „Vilt þú að í nýrri stjórn­ar­skrá verði nátt­úru­auð­lindir, sem ekki eru í einka­eigu, lýstar þjóð­ar­eign?“ Og svar þjóð­ar­innar var skýrt. 83 pró­sent sögðu já. Aðeins 17 pró­sent sögðu nei. Það er erfitt að ímynda sér aðra hápóli­tíska spurn­ingu sem gæti fengið eins afger­andi svar,“ sagði Logi og bætti því við að stjórn­völd hefðu hunsað vilja þjóð­ar­innar frá því að atkvæða­greiðslan fór fram.

Vill taka ný skref til aukinnar Evrópusamvinnu

„Við þurfum grænni utan­rík­is­stefnu því land eins og Ísland á að vera í far­ar­broddi í aðgerðum gegn ham­fara­hlýnun á alþjóða­vett­vangi, ekki hjáróma rödd,“ sagði Logi meðal ann­ars um utan­rík­is­málin en að hans mati hefur rík­is­stjórnin „enga heild­stæða stefnu“ í utan­rík­is­málum. Þá sagði Logi hér skorta metnað þegar kemur að því að tala fyrir friði, öryggi og mann­rétt­indum. Í því sam­hengi nefndi hann popúl­isma og aðför stjórn­valda að rétt­indum fólks, hvort sem er í Póllandi, Hvíta­rúss­landi eða Banda­ríkj­unum.

Logi sagði í ræðu sinni telja að Íslandi farn­að­ist best í nánu sam­starfi við Evrópu. „Við erum sann­færð um að til langs tíma sé póli­tískum og efna­hags­legum hags­munum Íslend­inga best borgið með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Við viljum sæti við borðið þar sem ákvarð­anir eru teknar,“ sagði Logi.

Hann sagði að í augna­blik­inu þá þyrfti að sækja betur tæki­færin sem fel­ast í EES sam­starf­inu. Engu að síður vill Logi auka á sam­starfið við Evrópu: „Við eigum að sækja í kraft­inn í alþjóða­sam­starfi og skapa tæki­færi fyrir alla Íslend­inga til að hér verði hægt að taka ný skref til auk­innar Evr­ópu­sam­vinnu, skapa aukin verð­mæti og tryggja öfl­ugt vel­ferð­ar­sam­fé­lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár