Einn nýliði á lista yfir sex efstu í flokksvali Samfylkingarinnar

Guðný Maja Riba náði sjötta sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor. Skúli Þór Helgason hlaut þriðja sætið og Sabine Leskopf fjórða, en engin bar­átta var um efstu tvö sætin.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri leiðir lista Samfylkingingarinnar í Reykjavík áfram í sveitarstjórnarkosningum í vor. Hann gaf einn kost á sér í fyrsta sætið. Sitjandi borgarfulltrúar verma sex af átta efstu sætunum.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri leiðir lista Sam­fylk­ing­ing­ar­innar í Reykja­vík áfram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor. Hann gaf einn kost á sér í fyrsta sætið. Sitjandi borg­ar­full­trúar verma sex af átta efstu sæt­unum. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­fylk­ing­ar­fólk hefur valið sér full­trúa á lista til borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga í vor, en flokksval fór fram með raf­rænni kosn­ingu um helg­ina.

Úrslitin urðu eft­ir­far­andi:

  1. sæti Dagur B. Egg­erts­son með 2.419 atkvæði í 1. sæti.
  2. sæti Heiða Björg Hilm­is­dóttir með 1.926 atkvæði í 1.- 2. sæti.
  3. sæti Skúli Helgason með 1.104 atkvæði í 1. - 3. sæti.
  4. sæti Sabine Leskopf með 910 atkvæði í 1. - 4. sæti.
  5. sæti Hjálmar Sveins­son með 1.122 atkvæði í 1. - 5. sæti.
  6. sæti Guðný Maja Riba með 1.212 atkvæði í 1.- 6. sæti.

Í næstu sætum voru Sara Björg Sig­urð­ar­dóttir í 7. sæti og Ellen Jacqueline Calmon í 8. sæti.

Á kjör­skrá voru 6.051 og atkvæði greiddu 3.036. Kjörsókn var 50,2%

Í flokksval­inu völdu flokks­fé­lagar og stuðn­ings­menn þá ein­stak­linga sem skulu skipa í efstu sætin á fram­boðs­lista flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor. Nið­ur­staða fyrir sex efstu sætin er bind­andi fyrir upp­still­ing­ar­nefnd, að teknu til­liti til reglna Sam­fylk­ing­ar­innar um að ekki halli á hlut kvenna, að því er segir í til­kynn­ingu á vef Sam­fylk­ing­ar­innar.

Fimmtán gáfu kost á sér í flokksval­inu en flokk­ur­inn er nú með sjö borg­ar­full­trúa. Allir sitj­andi borg­ar­full­trúar nema einn gáfu kost á sér í flokksval­inu. Engin bar­átta var um efstu tvö sætin, Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri gaf einn kost á sér í fyrsta sætið og Heiða Björg Hilm­is­dóttir vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og borg­ar­full­trúi var sömu­leiðis sú eina sem sótt­ist eftir öðru sæt­inu.

Borg­ar­full­trú­arnir Skúli Þór Helgason og Hjálmar Sveins­son sótt­ust báðir eftir þriðja sæti list­ans auk þess sem Sabine Leskopf borg­ar­full­trúi gaf kost á sér í þriðja til fjórða sæti. Borg­ar­full­trú­inn Ellen Calmon gaf kost á sér í fimmta sæti list­ans.

Aron Leví Beck, Guðný Maja Riba, Ólöf Helga Jak­obs­dóttir og Sara Björg Sig­urð­ar­dóttir sótt­ust eftir fjórða til sjötta sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar, Birkir Ingi­bjarts­son, Þorkell Heið­ar­sosn og Þor­leifur Örn Gunn­ars­son gáfu kost á sér í fimmta sætið og þeir Pétur Marteinn Urbanic Tómasson og Stein Olav Romslo vildu fimmta til sjötta sætið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár