Þingveturinn framundan: „Takmörkun á arðgreiðslum hjá veitendum heilbrigðisþjónustu“

Nýtt þing hefst þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Kjarn­inn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­flokks­for­maður VG.

Nýtt þing hefst fljót­­­lega, nánar til­­­­­tekið þriðju­dag­inn 11. sept­­­em­ber. Rík­­­is­­­stjórnin mun leggja fram fjár­­­lög á fyrsta fundi, sem segja má að verði í raun fyrstu fjár­­­lög þess­­­arar rík­­­is­­­stjórnar þar sem vænt­an­­­lega má sjá stefn­u­­­mótun hennar þar sem fjár­­­lög síð­­­asta árs voru lögð fram sér­­­stak­­­lega seint vegna rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­slit­anna og kosn­­­inga.

[links]Kjarn­inn tók nokkra þing­­­menn úr mis­­­mun­andi flokkum tali um þing­vet­­­ur­inn framundan og áherslu­­­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­flokks­for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs.

Bókaskatturinn að koma

Það eru mjög mörg góð mál sem eru á leið­inni frá rík­is­stjórn­inni. Til dæmis bóka­skatt­ur­inn, breyt­ingar á skatta- og bóta­kerf­inu til lægri og milli­tekju­hópa. Ég held að það komi til með að svara ákveðnu ákalli,“ segir Bjarkey sem er nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd en von á er á fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar strax á fyrsta degi þings­ins.

Bjarkey segir mörg önnur mál muni koma í fram­hald­inu sem ættu að vekja bæði umræðu og athygli. „Sam­göngu­á­ætl­unin, lög um kyn­rænt sjálf­ræði sem hefur verið lengi í und­ir­bún­ingi, vinnu­mark­aðs­málin verða einnig eflaust fyr­ir­ferð­ar­mikil á kom­andi hausti,“ segir Bjarkey og bætir því við aðspurð að hún ætli að leyfa sér að vera bjart­sýn þegar komi að kjara­mál­unum. „Þetta er eitt­hvað sem kemur upp með reglu­bu­dnum hætti og við höfum þurft að takast við á hverjum tíma. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að sú aðkoma sem að hefur verið kallað eftir af hálfu rík­is­ins, að hún verði alla­vega eitt­hvað í þá veru að hún geti orðið til góða.“

Viðbúið að hægt gæti snögglega á í ferðaþjónustunni

Um aðstæður í efna­hags­líf­inu nefnir Bjarkey ferða­þjón­ust­una sér­stak­lega. „Auðvitað er með ferða­þjón­ust­una eins og aðrar atvinnu­gri­enar að ef að þetta stækkar mjög hratt þá er alltaf við­búið að það geti hægt snögg­lega á. Maður verður að vona sama hvort það er flugið eða aðrir angar ferða­þjón­ust­unnar að það ekki mikið högg. Aukn­ingin gat auð­vitað aldrei orðið 30 pró­sent til var­an­legrar fram­tíðar. Við þurfum að hafa var­ann á og aðal­lega þeir sem að þessu standa. Það er auð­vitað fylgst með þessu.“

Takmarka arðgreiðslur í heilbrigðisþjónustu

Bjarkey segir þing­flokk Vinstri grænna ætla að leggja áherslu á fjöl­mörg spenn­andi mál í vetur. „Það eru nokkur mál sem okkur finnst mik­il­væg­ari en önnur. Til dæmis tak­mörkun á arð­greiðslum hjá veit­endum heil­brigð­is­þjón­ustu. Einnig viljum við breyta hluta­fé­laga­lögum þannig að heim­iluð verði við­ur­lög ef brotið er á lögum um kynja­hlut­fall í stjórnum fyr­ir­tækja. Við munum leggja fram frum­varp um end­ur­skoðun á lagaum­hverfi er varða upp­kaup á landi, þar verður eign­ar­haldið, ábúðin og lög­heim­il­is­skrán­ingar undir svo eitt­hvað sé nefnt. Við ætlum að reyna að kom­ast eins langt í þessu og við komumst.“

Bjarkey segir VG einnig vilja segja á stofn svo­kall­aða Inn­flytj­enda­stofu. „Snýr almennt að inn­flytj­endum á Íslandi, ekki bara hæl­is­leit­endum, heldur bara öllum þeim sem flytja til lands­ins í lengri eða skemmri tíma. Þetta verði ein­hvers konar upp­lýs­inga­mið­stöð þar sem fólk fær upp­lýs­ingar um sinn rétt.“

Halda lýðræðiskarnival

Þá vilja VG-liðar leggja sér­staka áherslu á frek­ari mót­töku flótta­manna vegna umhverf­is­á­hrifa, halda „lýð­ræðiskarni­val“ sem er hugsað fyrir þá sem fá sinn kosn­inga­rétt 18 ára eða nýja rík­is­borgra. „Við sjáum þetta fyrir okkur sem dag á hverju áru þar sem öllum þeim sem fá kosn­inga­rétt það árið fengju fræðslu um hvað felst í þessum nýju rétt­indum, hvernig á að kjósa, lýð­ræðið kynnt fyrir þeim og gert aðgengi­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár