Örlög flokka skapast af fólkinu sem er í þeim

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, segir að mik­il­vægt sé á þessum umbrota­tímum, þar sem flokkar komi og fari hratt, að fólk sé með­vitað um að stjórn­mála­flokkar hangi á fólk­inu sem eru í þeim.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­mála­flokk­ur­inn Vinstri­hreyf­ing- grænt fram­boð fagnar tutt­ugu ára afmæli sínu í ár en flokk­ur­inn var stofn­aður 6. febr­úar 1999. Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður flokks­ins, ræddi þessi tíma­mót í Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í morgun. Katrín gekk til liðs við flokk­inn árið 2002 en hún segir sögu flokks­ins sam­ofna miklum umbrota­tímum í íslensku flokka­kerfi. Hún segir flokk­inn hafa dregið lær­dóm bæði af því að vera í rík­is­stjórn og í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir það jafn­framt mik­il­vægt að á þessum umbrota­tímum, þar sem flokkar komi og fari jafn­vel hratt, að fólk sé með­vitað um að flokkar hangi á fólk­inu sem eru í þeim.

„Síðan er það líka mik­il­vægt af því við erum á svo miklum umbrota­tímum, höfum síðan nýja flokka koma og jafn­vel fara aftur til­tölu­lega hratt. Að við séum með­vituð um það að stjórn­mála­flokkar eru org­anískir. Þeir hanga á fólk­inu sem er í þeim. Örlög þeirra skap­ast af fólk­inu en ekki öfugt.“ segir Katrín.

Gjörbreytt samfélagsumræða á síðustu 20 árum

Katrín segir að þó að tutt­ugu ár virð­ist kannski ekki hár aldur fyrir stjórn­mála­flokk, þá sé þetta þó ágæt­lega hár aldur flokks í flokka­kerf­inu í dag. Hún segir að í raun hafi flokk­ur­inn aldrei siglt lygnan sjó og muni senni­lega aldrei gera það, enda hafi flokk­ur­inn verið til á miklum umbrota­tímum í íslensku flokka­kerfi. Þvert á spár fékk flokk­ur­inn sex þing­menn kjörna í sínum fyrstu þing­kosn­ingum árið 1999. Flokk­ur­inn var í stjórn­ar­and­stöðu í tíu ár en flokk­ur­inn fór í fyrsta sinn í rík­is­stjórn árið 2009. Katrín segir að þá hafi ákveðin eðl­is­breyt­ing orðið á flokknum, þannig hafi flokk­ur­inn þurft að gera erf­iðar mála­miðl­anir og sú breyt­ing hafi að hennar mati haft var­an­leg áhrif á flokk­inn.

Aðspurð segir hún að inn­an­flokksá­tök hafi verið erfið. „En það góða við þau er að þau hafa verið mjög fyrir opnum tjöldum og á yfir­borð­inu. Að sumu leyti held ég að það sé hollt. Ég er ekki endi­lega að mæla með inn­an­flokksá­tökum og alls ekki átak­anna vegna en það er betra að þau séu uppi á borðum og ekki bak við tjöldin.“ [adspot]

Enn­fremur bendir Katrín á að flokk­ur­inn hafi lært mikið af því að hafa verið bæði í stjórn­ar­and­stöðu og í rík­is­stjórn, en þannig hafi flokk­ur­inn í raun kynnst öllum fletum Alþingis. „Nú þegar við stöndum á 20 ára afmæli þá er ég nokkuð viss um líka að næstu tíu ár verði ekki eins og þau síð­ustu,“ segir Katrín

Ríkisstjórnin er pólitísk nýsköpun

Nú er flokk­ur­inn í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokkum og situr for­maður flokks­ins í for­sæt­is­ráð­herra­stól í fyrsta skipti. Katrín segir í við­tal­inu að það hafi verið fyr­ir­séð að rík­is­stjórnin yrði flókin. „Að ein­hverju leyti er þetta það sem ég kalla póli­tísk nýsköpun sem sprettur upp úr mjög óvenju­legum aðstæðum og hefði kannski ekki orðið til undir öðrum kring­um­stæðum. En heilt yfir þá hefur þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf gengið vel og ég held að það séu allir mjög metn­að­ar­fullir í því að það tak­ist vel einmitt vegna þess hve óvenju­leg rík­is­stjórnin er“

Katrín segir jafn­framt að hún hafi lært mikið af því að vera í rík­is­stjórn eftir hrun og að þeir tímar hafi í raun verið mun erf­ið­ari til að sitja í rík­is­stjórn. „En síðan er það bara þannig að þau örlög hlotn­uð­ust mér að fá að taka þátt í rík­is­stjórn­inni 2009 til 2013 og þegar ég lít yfir sviðið frá því ég steig inn á þetta póli­tíska svið þá voru það auð­vitað miklu erf­ið­ari tímar til að sitja í rík­is­stjórn. Ég held hins vegar að bara að ein­hverju leyti líka alveg gjör­breytt sam­fé­lags­um­ræða á þessum 20 árum sem VG hefur verið til hefur líka gert það að verkum að það er aldrei auð­velt verk­efni að sitja í rík­is­stjórn. Og kannski á það ekki að vera það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár