Vinstri græn rekin með 13,7 milljóna tapi í fyrra

Ein­stak­lingar styrktu flokks­starf Vinstri grænna í fyrra um 11,5 millj­ónir króna, en fyr­ir­tæki styrktu hreyf­ing­una um 5,4 millj­ónir. Sjö fyr­ir­tæki styrktu flokk­inn um 400 þús­und krónur sem er hámarkið sam­kvæmt lögum, þar af fjögur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki.

Vinstri hreyf­ingin - grænt fram­boð hefur skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2017 til Rík­is­end­ur­skoð­unar. Í til­kynn­ingu frá flokknum kemur fram að tap af rekstri nam 13,7 millj­ónum króna og var eigið fé nei­kvætt um 17,9 millj­ónir sam­kvæmt efna­hags­reikn­ingi.

Árið „2017 var kosið til Alþingis, annað árið í röð og var kostn­aður vegna Alþing­is­kosn­ing­anna 34 millj­ónir króna.“ Framlög rík­is­ins til hreyf­ing­ar­innar voru 46,5 millj­ónir á fjár­lögum og 9,4 millj­ónir vegna rekstrar þing­flokks­ins.

Ein­stak­lingar styrktu flokks­starf Vinstri grænna í fyrra um 11,5 millj­ónir króna, en fyr­ir­tæki styrktu hreyf­ing­una um 5,4 millj­ónir. Alls fékk flokk­ur­inn um 3,3 millj­ónir í félags­gjöld.

Sjö fyr­ir­tæki styrktu flokk­inn um 400 þús­und krónur sem er hámark­aði sam­kvæmt lögum: HB Grandi hf., MATA hf., Síminn hf., Brim hf., Kvika hf., Vísir hf. og Síld­ar­vinnslan hf. Tveir ein­stak­lingar gaf 400 þús­und, Ármann Jak­obs­son bróðir Katrínar Jak­obs­dóttur for­manns flokks­ins og Elva Dögg Krist­ins­dóttir.

Stærsti ein­staki kostn­að­ar­lið­ur­inn í rekstri hreyf­ing­ar­innar voru laun og tengd gjöld, nærri 38 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár