Kolbeinn sækist eftir sæti í Reykjavík eftir að hafa verið hafnað í Suðurkjördæmi

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé bauð sig fram til að vera odd­viti Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi til að hafa meiri áhrif í póli­tík. Þar var honum hafnað. Nú sæk­ist hann eftir sínu gamla sæti í Reykja­vík.

Kolbeinn Óttarsson Proppé.
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé. Mynd: Bára Huld Beck

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, hefur ákveðið að sækj­ast eftir öðru sæti á lista Vinstri grænna í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í kom­andi kosn­ingum. Hann var í öðru sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í kosn­ing­unum 2017 á eftir Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra.

Kolbeinn ákvað fyrr á þessu ári að færa sig um set fyrir kosn­ing­arnar í haust og sækj­ast eftir því að verða nýr odd­viti Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi. Flokks­menn þar höfn­uðu honum hins vegar og Hólm­fríður Árna­dóttir varð í efsta sæti í for­vali þar. Kolbeinn lenti í fjórða sæti sem hefði þýtt að hann ætti enga mögu­leika á áfram­hald­andi þing­setu.

Í gær til­kynnti Kolbeinn að hann hefði ákveðið að þiggja ekki sæti á lista Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi og í dag barst yfir­lýs­ing þess efnis að hann ætl­aði sér að reyna fyrir sér í for­val­inu í Reykja­vík.

Í yfir­lýs­ing­unni segir Kolbeinn meðal ann­ars: „Yfirlega síð­ustu vikna hefur fært mér enn frekar heim sann­inn um það, sem þó hefði átt að vera mér ljóst, að ég brenn enn fyrir póli­tík. Ég hef löngun og vilja til að halda áfram að starfa með því góða fólki sem hefur leitt hreyf­ing­una og íslenskt sam­fé­lag síð­ustu ár. Ég er líka hrærður yfir þeim áskor­unum sem ég hef fengið frá fjölda fólks um að bjóða mig fram til áfram­hald­andi starfa fyrir VG á Alþingi.“

[adspot]Hann segir að oft hafi gefið á bát­inn á stjórn­mála­ferli hans, sem staðið hefur frá árinu 2016, en hann hafi talið það vera hlut­verk þeirra, sem styðja for­ystu VG, að halda sínum sjón­ar­miðum hátt á lofti, benda á það góða sem rík­is­stjórnin hefur gert, ekki síst ráð­herrar Vinstri grænna, og taka þátt í umræðu innan og utan þings, þó hún sé stundum býsna óvægin. „Stjórn­mál eru bæði súr og sæt og við þurfum að þola bæði, sem á að vera auð­velt þegar við trúum á mál­stað­inn. Ég er ekki í neinum vafa um að það er gæfa að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir hefur setið við völd síð­ustu ár, ekki síst í heims­far­aldr­inum.“

[links]Kolbeinn fjallar einnig um þá ákvörðun sína að hafa boðið sig fram í Suð­ur­kjör­dæmi. Það seg­ist hann hafa gert vegna þess að hann hafi viljað leiða lista flokks­ins í næstu kosn­ingum til að hafa meiri áhrif. „Þá var ég til í að breyta til og búa í öðru umhverfi en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en það er nægur tími til þess síðar á lífs­leið­inni. Ég tók áhættu með þessu og hún gekk ekki upp. Sam­keppnin var enda mikil við frá­bært fólk og efstu sæti list­ans skipa öfl­ugar konur. Und­an­farið hefur mér borist fjöldi áskor­ana og hvatn­ing frá býsna mörgum um að gefa kost á mér í for­val­inu í Reykja­vík. Góðir og gegnir félagar skor­uðu á mig opin­ber­lega og enn fleiri hafa haft sam­band við mig per­sónu­lega. Frómt frá sagt varð ég undr­andi og hrærður yfir við­brögð­unum. Mér þykir ótrú­lega vænt um að fjöldi fólks hafi þá skoðun að ég eigi áfram heima á Alþingi og ég þakka auð­mjúk­lega fyrir stuðn­ing­inn.“

Fram­boðs­frestur í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík rennur út á morgun. Bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra, sem leiddu lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum haustið 2017, hafa lýst yfir fram­boði á nýjan leik og munu án efa leiða lista Vinstri grænna áfram. Steinunn Þóra Árna­dóttir, sem var í öðru sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður á eftir Katrínu fyrir tæpum fjórum árum, og er sitj­andi þing­maður, sæk­ist líka eftir end­ur­kjöri. Á meðal ann­arra sem hafa til­kynnt fram­boð er Daníel E. Arnars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ´78, sem sæk­ist eftir 2. sæti í öðru hvoru Reykja­víkur­kjör­dæmanna líkt og Kolbeinn og Steinunn. Það hafa Elva Hrönn Hjart­ar­dóttir, sér­fræð­ingur á þró­un­ar­sviði hjá VR, og Andrés Skúlason, fyrrum odd­viti í Djúpa­vogs­hreppi, einnig gert. Því eru alls fimm sem sækj­ast eftir tveimur sætum á eftir odd­vit­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár