Kjörbréfanefndar þingsins bíður langþyngsta úrlausnarefni aldarinnar

Kjör­bréfa­nefndin sem tekur til starfa á Alþingi í næstu viku fær mun þyngra verk­efni í fangið en aðrar slíkar nefndir sem starfað hafa það sem af er öld­inni.

Þrátt fyrir að þing verði ekki kallað saman strax getur kjörbréfanefnd til bráðabirgða hafið störf strax eftir helgi.
Þrátt fyrir að þing verði ekki kallað saman strax getur kjör­bréfa­nefnd til bráða­birgða hafið störf strax eftir helgi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Birgir Ármanns­son þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur setið í kjör­bréfa­nefndum Alþingis allt frá árinu 2007. Hann var for­maður þeirra nefnda sem skip­aðar voru eftir alþing­is­kosn­ing­arnar 2013, 2016 og 2017. Góðar líkur mega því telj­ast á því að Birgir verði til­nefndur til for­mennsku í þeirri kjör­bréfa­nefnd sem ráð­gert er að taki til starfa strax eftir helgi, í kjöl­far þess að lands­kjör­stjórn útdeilir kjör­bréfum til nýrra þing­manna síð­degis í dag.

Sú nefnd mun hafa það hlut­verk að skoða gildi kosn­ing­anna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og önnur álita­mál, en álit nefnd­ar­innar verður síðan borið undir atkvæða­greiðslu í þing­inu. Ekki er úti­lokað að þingið ákveði að upp­kosn­ing muni fara fram í kjör­dæm­inu, þ.e. að það verði kosið aftur. Lands­kjör­stjórn gaf það út í gær að kjör­bréfum til nýrra þing­manna verði úthlutað síð­degis í dag, sem er fyrr en áætlað hafði verið, en til stóð að úthluta kjör­bréf­unum þann 5. októ­ber.

Willum Þór Þórsson, sem er starf­andi for­seti Alþingis, hefur sagt við fjöl­miðla und­an­farna daga að hann reikni með því að svo­nefnd „und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd“ gæti komið saman og hafið störf strax á mánu­dag, en ekki er hægt að skipa kjör­bréfa­nefnd form­lega fyrr en við þing­setn­ingu. Það verður þó örugg­lega sama fólkið í báðum nefnd­unum, þeirri sem starfar til bráða­birgða og þeirri sem form­lega verður skipuð.

Það má með sanni segja að við kjör­bréfa­nefnd Alþingis hafi ekki blasað verk­efni sem er eins flókið eða umdeilt og nú. Lands­kjör­stjórn hefur gefið það út að frá yfir­kjör­stjórn­inni í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hafi ekki borist nein stað­fest­ing á því að með­ferð kjör­gagna í kjör­dæm­inu hafi verið full­nægj­andi og komið hefur nokkuð skýrt fram í fjöl­miðlum und­an­farna daga að kosn­inga­lög voru brotin hvað með­ferð kjör­gagna varðar á taln­ing­ar­stað í Borg­ar­nesi.

Innsigli voru ekki notuð eins og lög gera ráð fyrir og leikur því vafi á um hvort hægt sé að full­tryggja að ekki hafi verið átt við atkvæða­seðla á milli fyrstu og ann­arrar taln­ingar atkvæða.[links]

Þetta er í reynd for­dæma­laus staða í kosn­ingum til Alþingis. Nú hafa veru­legar efa­semdir verið settar fram um hvort fimm jöfn­un­ar­þing­menn jafn­margra kjör­dæma, sem fá kjör­bréf sín síðar í dag, geti talist rétt­kjörnir í ljósi þess hvernig með­ferð kjör­gagna var háttað í Borg­ar­nesi. Fram­bjóð­endur í kosn­ing­unum hafa boðað að kærur verði lagðar fram, til lög­reglu og kjör­bréfa­nefnd­ar­innar sjálfrar.

Þá hefur verið bent á að for­dæmi frá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, í belgísku máli sem fjallar um það að þjóð­þing skeri úr um vafa­at­riði í kosn­ingum, myndi geta átt við um Ísland, ef málið ratar alla leið til Strass­borgar. Magnús Davíð Norðdahl lög­maður og fram­bjóð­andi Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefur látið að því liggja að hann muni fara með málið í þann far­veg, ef ekki verði gripið til upp­kosn­ingar í kjör­dæm­inu.

Það er ekki án for­dæma að kærur ber­ist vegna fram­kvæmdar kosn­inga. Það ger­ist reyndar eig­in­lega alltaf, en full­yrða má að kæru­efnið og úrslausn­ar­efni kjör­bréfa­nefndar nú sé veiga­meira en fyrr. Kjarninn kíkti á það helsta sem hefur verið í verka­hring kjör­bréfa­nefnda frá árinu 2003 til sam­an­burðar.

Kallað eftir endurtalningu allra atkvæða árið 2003

Eftir alþing­is­kosn­ing­arnar árið 2003 lagði full­trúi Frjáls­lynda flokks­ins sál­uga fram kæru til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna meints vafa um úrslit kosn­ing­anna og krafð­ist þess að öll atkvæði á land­inu yrðu talin aftur.

Samkvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins fór Frjáls­lyndi flokk­ur­inn fram á end­ur­taln­ingu sökum þess að litlu mun­aði í atkvæðum á lands­vísu til þess að veru­legar breyt­ingar yrðu á því hverjir teld­ust rétt kjörnir alþing­is­menn, en flokk­ur­inn þurfti ein­ungis 13 atkvæði til við­bótar á lands­vísu til þess að fá odd­vita sinn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður inn sem jöfn­un­ar­mann á kostnað fram­bjóð­anda Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Flokk­ur­inn færði þau rök fyrir máli sínu að svo virt­ist sem það hefði ekki verið sam­ræmi í vinnu­brögðum á milli kjör­dæma hvað með­ferð vafa­at­kvæða varð­aði og bent var á 58 atkvæði hafi verið ógild í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður en 131 í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. „Sami fjöldi kjós­enda er í báðum þessum kjör­dæmum og munur á ógildum atkvæðum því mik­ill og bendir það einnig til þess að mis­mun­andi for­sendur hafi ráðið mati á atkvæða­seðlum við taln­ingu,“ sagði auk ann­ars í kærunni frá full­trúa Frjáls­lynda flokks­ins.

[adspot]

Meiri­hluti kjör­bréfa­nefndar taldi hins vegar enga ástæðu til að draga lög­mæti kosn­ing­anna í efa og áleit ekki for­sendur til upp­taln­ingar, upp­kosn­ingar eða til þess að aðhaf­ast frekar. Minni­hluti kjör­bréfa­nefndar taldi á móti ástæðu til að rann­saka málið frekar og fá skýrslur úr öllum kjör­dæmum um með­ferð kjör­gagna og skil­aði sér­á­liti um það. Sú til­laga var felld við atkvæða­greiðslu þings­ins, með 30 atkvæðum gegn 25, og í kjöl­farið var tilllaga meiri­hlut­ans sam­þykkt með 51 atkvæði gegn hjá­setu fjög­urra þing­manna Frjáls­lynda flokks­ins.

Náðug nefndarseta árið 2007

Kjör­bréfa­nefnd átti náð­uga setu árið 2007. Þá barst engin kosn­inga­kæra heldur þurfti ein­ungis að taka afstöðu til sjö ágrein­ings­at­kvæða úr Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Þau voru öll metin gild.

Misvægi atkvæða leiddi til kosningakæru 2009

Kjör­bréfa­nefnd­inni sem sat árið 2009 barst kæra, þar sem þess var kraf­ist að kjör allra þeirra þing­manna sem höfðu fengið kjör­bréf í hendur yrði úrskurðað ólög­mætt, á grund­velli þess að misvægi atkvæða á milli kjör­dæma lands­ins stæð­ist ekki stjórn­ar­skrá. Kjör­bréfa­nefndin hafn­aði þessu og sagði stjórn­ar­skrár­gjafann hafa fall­ist á það misvægi atkvæða sem væri til staðar ef það væri ekki umfram það að tvö­falt fleiri kjós­endur væru á bak­við hvert þing­sæti í einu kjör­dæmi en öðru. Þegar það ger­ist, eins og reyndar gerð­ist í kosn­ing­unum núna árið 2021, fær­ist eitt þing­sæti á milli kjör­dæma í næstu kosn­ingum.

Einn nefnd­ar­maður, Margrét Tryggva­dóttir þing­maður Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar, sagð­ist reyndar gera þann fyr­ir­vara við með­ferð nefnd­ar­innar á kærunni að hún væri í grund­vall­ar­at­riðum sam­mála henni og teldi misvægi atkvæða brjóta á mann­rétt­indum sínum sem kjós­anda í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Jafnt vægi atkvæða milli flokka til umræðu 2013

Árið 2013 þurfti kjör­bréfa­nefndin að takast afstöðu til fimm kæru­mála. Þeirra á meðal var kæra frá fram­boði Dögunar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sem kærði mis­jafnt atkvæða­vægi undir sömu for­merkjum og gert hafði verið árið 2009 og var því svarað á sama hátt og hafði verið gert fjórum árum fyrr, en einnig önnur kæru­mál sem voru af öðrum meiði og kjör­bréfa­nefndin taldi sig ekki þurfa að taka sér­staka afstöðu til.

Þetta ár kom í fyrsta sinn í lengri tíma upp sú staða að vægi atkvæða á milli stjórn­mála­flokka var skakkt og eitt fram­boð fékk auka­mann á kostnað ann­ars. Það hefur síðan gerst árin 2016, 2017 og núna árið 2021, fernar kosn­ingar í röð. Kjör­bréfa­nefndin árið 2013 minnt­ist sér­stak­lega á þetta og segir í áliti hennar að til þess að ná mark­miðum stjórn­ar­skrár um jöfnun á milli flokka hefðu jöfn­un­ar­sæti þurft að vera fleiri á kostnað kjör­dæma­sæta.

Misvægi kært á ný 2016

Árið 2016 var kosið á ný og á ný beindi fram­boð Dögunar kæru til kjör­bréfa­nefndar vegna misvægis atkvæða á milli kjör­dæma og einnig kærði fram­boðið 5 pró­sent þrösk­uld­inn sem þarf til að fá jöfn­un­ar­menn kjörna. Kjör­bréfa­nefnd taldi sem fyrr að kæru­efni af þessum meiði væru ekki til þess fallin að draga lög­mæti kosn­ing­anna í efa.

Einnig barst kæra frá kjós­anda, sem hafði verið hafnað um að fá kjör­seðil sendan á dval­ar­stað sinn erlendis. Kæran beind­ist einnig að því að ekki væri búið að breyta kosn­inga­lögum á þann hátt að þau end­ur­spegl­uðu nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu frá 2012 hvað per­sónu­kjör og atkvæða­vægi jarðar. Kjör­bréfa­nefndin taldi að ekki ætti að ógilda kosn­ing­arnar á þessum for­sendum og kom það eflaust lítið á óvart.

Formaður Samfylkingar í eina kærumálinu 2017

Þegar kosið var til Alþingis að nýju árið 2017 barst ein­ungis ein kæra til kjör­bréfa­nefndar. Hún var eilítið óvana­leg, en hún sner­ist um það að for­maður stjórn­mála­flokks, sem greiddi atkvæði í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, hefði brotið kosn­inga­lög með því að fara með dóttur sína inn í kjör­klef­ann og þetta hefði kjör­stjórnin á Akureyri sagt í sam­ræmi við kosn­inga­lög.

Umræddur for­maður var Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem tók 12 ára dóttur sína með inn í kjör­klef­ann er hann greiddi atkvæði á Akureyri. Í sam­tali við Vísi sagði hann að hann teldi lang­sótt að dóttir sín gæti sann­fært sig um að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn. En þessa kæru fékk kjör­bréfa­nefndin til sín og nið­ur­staða hennar var sú að þetta væri ekki efni sem Alþingi ætti að úrskurða um. Ekkert benti heldur til þess að slíkir gallar hefðu verið á fram­kvæmd kosn­inga í Norð­aust­ur­kjör­dæmi að verða til þess að úrskurða bæri kosn­ing­arnar ógildar.

2021?

Kjör­bréfa­nefndin sem tekur til starfa eftir helgi mun fá það vanda­sama verk­efni að skoða það sem fram hefur komið um fram­kvæmd nýlið­inna alþing­is­kosn­inga. Rætt var við Herdísi Kjerúlf Þor­geirs­dóttur lög­mann, sem á sæti í Fen­eyja­nefnd, í Pall­borð­inu á Vísi í gær og sagði hún ljóst að það þyrfti að rann­saka málið til hlítar af hálfu Alþingis.

Sama hvernig fer, sagði Herdís, er ein lexía sem verður dregin af þessu máli:

„Héðan í frá mun engin kjör­stjórn þora öðru en að fara eftir lögum í hví­vetna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár