Fundargerð yfirkjörstjórnar: Mannleg mistök hörmuð og skekkjan í bunkunum útskýrð

Kjarninn hefur fengið afhenta fund­ar­gerð og grein­ar­gerð frá yfir­kjör­stjórn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Þar er mis­ræmið á milli tveggja taln­inga allra atkvæða í kjör­dæm­inu útskýrt og beðist afsök­unar á mis­tökum.

Úr greinargerð formanns yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi til landskjörstjórnar.
Úr grein­ar­gerð for­manns yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi til lands­kjör­stjórnar. Mynd: Kjarninn

Samkvæmt fund­ar­gerð yfir­kjör­stjórnar Norð­vest­ur­kjör­dæmis og grein­ar­gerð til lands­kjör­stjórnar má skýra þann mun sem var á fyrri og seinni taln­ingu atkvæða í Borg­ar­nesi á sunnu­dag með mann­legum mis­tökum. Þau eru hörmuð og beðist vel­virð­ingar á þeim.

Kjarninn fékk síð­degis í dag allar fund­ar­gerðir og grein­ar­gerðir yfir­kjör­stjórna lands­ins afhentar frá lands­kjör­stjórn. Í fund­ar­gerð­inni frá Norð­vest­ur­kjör­dæmi er rakið að taln­ingu atkvæða hafi lokið kl. 07:15 á sunnu­dags­morgun, fundi yfir­kjör­stjórnar svo frestað kl. 07:35 og ákveðið að honum yrði fram­haldið kl. 13.[links]

„Meðan á fund­ar­frestun stóð voru kjör­gögn geymd í salnum þar sem taln­ingin fór fram en hann var læstur og örygg­is­mynda­vélar eru við inn­gang hans,“ segir í fund­ar­gerð­inni, en eins og fram kom í bókun lands­kjör­stjórnar í gær er litið svo á að ekki hafi borist stað­fest­ing á því frá Norð­vest­ur­kjör­dæmi að með­ferð kjör­gagna hafi verið full­nægj­andi.

Eins og fjallað hefur verið um nán­ast linnu­laust frá því síðla á sunnu­dag skeik­aði atkvæðum hvers ein­asta flokks og einnig fjölda ógildra og auðra seðla á milli taln­ing­anna tveggja í Borg­ar­nesi og hefur það vakið upp spurn­ingar. Komið hefur fram að kjör­gögnin voru ekki geymd inn­sigluð eins og lög gera ráð fyrir – og lög­regla hefur fengið í hendur upp­tökur úr örygg­is­mynda­vélum á Hótel Borg­ar­nesi.

Enginn umboðsmaður frá Pírötum, Framsókn né Miðflokki

Auk þessa hefur Magnús Davíð Norðdahl, umboðs­maður og fram­bjóð­andi Pírata í kjör­dæm­inu, gagn­rýnt að hafa ekki verið lát­inn vita af end­ur­taln­ingu atkvæða þegar í hana var ráð­ist.

Um þetta atriði segir í fund­ar­gerð­inni að reynt hafi verið að hafa sam­band við Helga S. Þor­steins­son, sem afhent hafði yfir­kjör­stjórn fram­boðs­lista flokks­ins, en að „odd­vita [yfir­kjör­stjórnar] hafði láðst að upp­færa lista yfir umboðs­menn flokks­ins en það voru tveir efstu menn á fram­boðs­lista hans.“

„Ekki náð­ist í Helga en skömmu síðar hafði Magnús Norðdahl sam­band við odd­vita yfir­kjör­stjórnar þar sem hann hafði frétt af end­ur­taln­ing­unni. Magnús mætti síðan á taln­ing­ar­stað skömmu eftir að end­ur­taln­ing hófst,“ segir í fund­ar­gerð.

Samkvæmt fund­ar­gerð­inni hafði reyndar eng­inn umboðs­maður frá Pírötum verið á staðnum við taln­ingu atkvæða í Borg­ar­nesi er atkvæðin voru talin í fyrsta sinn aðfara­nótt sunnu­dags og eng­inn frá Framsókn, Mið­flokki né Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokknum heldur.

Þetta eru skýringar yfirkjörstjórnar á misræminu í talningunni:

„Vegna breyt­inga frá fyrri taln­ingu tekur yfir­kjör­stjórn þetta fram:

  • Heild­ar­at­kvæðum fjölg­aði um tvö vegna inn­slátt­ar­villu í lok fyrri taln­ingar
  • Auðir seðlar voru í fyrri taln­ingu taldir vera 394 en reynd­ust vera 382 og hafði því fækkað um 12. Skýr­ingin á því er sú að 11 af þessum seðlum voru ógildir en höfðu fyrir mis­tök verið taldir með auðum seðlum. Einn seð­ill sem tal­inn hafði verið ógildur var það sann­an­lega ekki þar sem ekk­ert auð­kenni var á honum nema X í kass­anum fyrir framan við­kom­andi lista­bók­staf. En það skal tekið fram að þessi atkvæða­seð­ill til­heyrði hvorki C né M lista.
  • Atkvæðum C lista fækk­aði um níu en þau höfðu mis­lagst í C bunka, en átta þeirra til­heyrðu D lista en eitt B lista.
  • Atkvæðum D lista fjölg­aði um 10 en þar af voru átta í atkvæða­bunka C lista, sbr. ofan­ritað og tvö önnur höfðu mis­lagt í aðra bunka en D lista.
  • Allar aðrar breyt­ingar eru vegna þess að eitt og eitt atkvæði hafði mis­lagst í atkvæða­bunkum.“

[adspot]

Í grein­ar­gerð sem for­maður yfir­kjör­nefndar, Ingi Tryggva­son, skil­aði inn til lands­kjör­stjórnar segir að hann hafi fengið sím­tal frá Kristínu Edwald for­manni lands­kjör­stjórnar þar sem „athygli okkar var vakin á því að það mun­aði litlu varð­andi upp­bót­ar­sæti í Norð­vestur- og Suð­ur­kjör­dæmi og hvort það gæfi okkur til­efni til að skoða málið nánar.“

Kristín hefur sagt við Kjarnann að í ábend­ing­unni hafi ekki falist nein til­mæli um gera nokk­urs­konar „gæðaprufu“ á taln­ing­unni sem fram fór á kosn­inga­nótt. Hún sagði þó að yfir­kjör­stjórn í hverju kjör­dæmi bæri ábyrgð á taln­ing­unni, fram­kvæmd hennar og að sjálf­sögðu því að hún sé rétt.

„Vegna ábend­ing­ar­innar var farið yfir atkvæði greidd C lista Við­reisnar,“ segir í grein­ar­gerð Inga Tryggva­sonar, áður en hann heldur áfram að útskýra af hverju ráð­ist var í fulla end­ur­taln­ingu atkvæða, sem nú er deilt um sökum þess hvernig atkvæðin voru geymd á meðan taln­inga­fólk og yfir­kjör­stjórn hvíldi sig eftir nótt­ina.

„Í fyrsta C atkvæða­bunka sem ég tók upp reynd­ust vera átta atkvæði sem til­heyrðu D lista og eitt atkvæði sem til­heyrði B lista. Í fram­haldi af því fór yfir­kjör­stjórn yfir öll atkvæði C lista þ.e. athug­aði hvort öll önnur en fyrr­greind atkvæði D og B lista til­heyrðu ekki örugg­lega C lista. Svo reynd­ist vera en þá lá fyrir að mann­leg mis­tök höfðu átt sér stað við taln­ingu atkvæða undir morgun og níu atkvæði höfðu rang­lega lent í atkvæða­bunka C lista sem til­heyrðu öðrum fram­boðs­listum. Með hlið­sjón af þessu taldi yfir­kjör­stjórn ekki annað fært en að end­ur­telja öll atkvæði sem talin höfðu verið og yfir­fara annað sem kynni að hafa leitt til þess að fyrr­greind nið­ur­staða um fjölda atkvæða hvers fram­boðs­lista væri ekki rétt,“ segir í grein­ar­gerð for­manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár