Talningarskekkjan í Borgarnesi kom í ljós um leið og einn bunki var skoðaður

Engin til­mæli voru sett fram af hálfu lands­kjör­stjórnar um end­ur­taln­ingu atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Kjarninn ræddi við Inga Tryggva­son for­mann yfir­kjör­stjórnar í kjör­dæm­inu um ástæður þess að talið var aftur og með­ferð kjör­gagna.

Talning atkvæða í Borgarnesi og meðferð kjörgagna hefur verið mál málanna í dag.
Talning atkvæða í Borg­ar­nesi og með­ferð kjör­gagna hefur verið mál mál­anna í dag. Mynd: Wikimedia Commons/Anjali Kiggal

Trú­verð­ug­leiki fram­kvæmdar alþing­is­kosn­inga í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefur verið dreg­inn í efa und­an­far­inn tæpan sól­ar­hring, eftir að í ljós kom að skekkja var í upp­runa­legum loka­tölum sem kynntar höfðu verið á sunnu­dags­morgun. Við end­ur­taln­ingu sem fór fram síð­degis í gær jókst heild­ar­fjöldi atkvæða um tvö stykki og atkvæðum allra flokka sem buðu fram ýmist fjölg­aði eða fækk­aði. Einnig fækk­aði auðum atkvæðum um 12 og ógildum fjölg­aði um 11.

Í ofaná­lag hefur komið fram að laga­bók­stafnum var ekki fylgt hvað með­höndlun kjör­gagna varðar, en geymslu­staður þeirra var ekki inn­sigl­aður né heldur kjör­gögnin sjálf. Einnig hefur verið bent á að í gild­andi kosn­inga­lögum er ekki kveðið á um sér­stakar heim­ildir til þess að yfir­kjör­stjórn ákveði að grípa til end­ur­taln­ingar atkvæða.

Kærur lagðar fram

Segja má að eðli­legt sé að spurn­ingar vakni og sagði Kristín Edwald for­maður lands­kjör­stjórnar við fjöl­miðla í dag, eftir fund kjör­stjórn­ar­innar, að þetta væri „baga­legt mál“, hún teldi þetta „mjög óheppi­legt“ og að trú­verð­ug­leiki kosn­ing­anna væri „nátt­úr­lega gíf­ur­lega mik­il­vægur.“

Tveir fram­bjóð­endur til Alþingis hafa þegar boðað að fram­kvæmdin verði kærð vegna þess sem fram hefur komið.

Karl Gauti Hjalta­son fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi seg­ist ætla að beina kæru til lög­reglu og Magnús Davíð Norðdahl fram­bjóð­andi Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi seg­ist ætla sér að leggja fram kæru til kjör­bréfa­nefndar Alþingis, en vel að merkja er það á end­anum Alþingi sjálft sem tekur ákvörðun um gildi kosn­inga.

Guð­mundur Gunn­ars­son fram­bjóð­andi Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefur einnig óskað eftir því að fá grein­ar­gerð frá yfir­kjör­stjórn­inni vegna máls­ins, en hann er rétt eins og Karl Gauti einn fimm fram­bjóð­enda sem ekki verða alþing­is­menn að óbreyttu vegna þeirra svipt­inga sem komu í ljós við end­ur­taln­ing­una í Borg­ar­nesi.

Öryggismyndavél í sal Hótel Borgarness

Kjarninn heyrði í Inga Tryggva­syni for­manni yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í morgun og fékk hann til að útskýra tíma­línu atburða, ástæður þess að ráð­ist var í taln­ingu atkvæða og ástæður þess að kjör­gögn voru ekki inn­sigluð eins og segir í lögum að þau skuli vera.

Ingi segir í sam­tali við blaða­mann að taln­ingu atkvæða hafi verið lokið í kjör­dæm­inu „um kl. 7, hálf­átta“ á sunnu­dags­morgun, en loka­tölur úr kjör­dæm­inu voru gefnar út um kl. 7:40. Að því búnu hafi hann sjálfur farið heim til hvíldar, en flestir aðrir sem að taln­ing­unni komu hafi lagst til hvílu á Hótel Borg­ar­nesi þar sem atkvæðin voru talin.[links]

Ingi segir að atkvæðin hafi verið skilin eftir inni í læstum sal hót­els­ins og játar því að ekki hafi verið sett inn­sigli á hurð­ina. Kjör­gögnin sjálf voru að auki ekki inn­sigluð.

Spurður út í þetta segir Ingi að hann telji ýmsa veita því of mikið vægi að inn­sigli hafi ekki verið notuð, þar sem ein­ungis sé um að ræða „lím­miða“, en við­ur­kennir þó að senni­lega hefði verið heppi­legra að inn­sigla kjör­gögnin. Hann ítrekar að sal­ur­inn hafi verið læstur og í ofaná­lag séu þar örygg­is­mynda­vélar. Ingi vís­aði í sam­tali við Vísi í gær til „hefðar“ er hann var spurður út í verk­lagið, svona hefði þetta verið fram­kvæmt í fyrri kosn­ingum í kjör­dæm­inu.

Spurður hvort rýnt hafi verið í myndefnið á örygg­is­mynda­vél­unum á Hótel Borg­ar­nesi segir Ingi að það hafi ekki verið gert svo hann viti til, en hann seg­ist full­viss um að eng­inn hafi farið inn í sal­inn þar sem kjör­gögnin voru geymd þangað til yfir­kjör­stjórn sneri aftur til starfa um hádeg­is­bil á sunnu­dag.

Skekkja kom strax í ljós

Ingi segir að ábend­ing hafi borist frá lands­kjör­stjórn um að það mun­aði litlu að jöfn­un­ar­manna­hringekja á lands­vísu færi af stað ef ein­hverju hefði skeikað í taln­ingu í kjör­dæm­inu. Í gær­morgun var þannig ljóst að ef atkvæði til Við­reisnar væru tveimur færri en loka­tölur sem gefnar höfðu verið upp í Norð­vest­ur­kjör­dæmi segðu til um, myndi staðan breyt­ast.

Lands­kjör­stjórn beindi einnig ábend­ingu til kjör­stjórnar í Suð­ur­kjör­dæmi um að mjótt væri á munum þar upp á breyt­ingar að gera og þar á að telja aftur í kvöld, eftir að nokkur fram­boð settu fram beiðnir um end­ur­taln­ingu.

Ingi segir við Kjarnann að yfir­kjör­stjórnin hafi í ljósi þeirrar ábend­ingar sem barst frá lands­kjör­stjórn­inni ákveðið að prófa að telja einn bunka atkvæða og þar hafi strax komið í ljós mis­ræmi. Því hafi verið tekin sam­eig­in­leg ákvörðun í yfir­kjör­stjórn­inni um að telja öll atkvæðin í kjör­dæm­inu aftur.

„Það barst ábend­ing um að það mun­aði litlu á milli kjör­dæma varð­andi jöfn­un­ar­sæti. Þá ákváðum við að skoða einn lista­bók­staf og þá kom það í ljós að það höfðu mis­lagst þar nokkur atkvæði og fyrst að það var svona var ákveðið að end­ur­telja þetta allt til að þetta væri allt pott­þétt,“ segir Ingi. Þá fékkst önnur nið­ur­staða og jöfn­un­ar­manna­hringekjan fór á fleygi­ferð, með þeim afleið­ingum sem urðu ljósar í gær.

Ingi segir að allir í yfir­kjör­stjórn­inni sinni sínu starfi af bestu heil­indum, ráð­ist hafi verið end­ur­taln­ing­una af því að yfir­kjör­stjórnin vildi hafa nið­ur­stöð­una rétta.

Heimilt að stemma af, að skilyrðum uppfylltum

Í dag hafa verið settar fram spurn­ingar um hvort heim­ilt sé að ráð­ast í end­ur­taln­ingu atkvæða eins og gert var í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og til stendur að gera í Suð­ur­kjör­dæmi í kvöld. Einnig hefur því verið velt upp, meðal ann­ars af þing­manni Pírata, hvort heim­ilt hafi verið að ráð­ast í gæða­út­tektir eða afstemm­ingar á atkvæðum í þessum kjör­dæmum að umboðs­mönnum fram­boða fjar­stöddum. Ekkert sé minnst á end­ur­taln­ingu í ákvæðum laga.

Kristín Edwald for­maður lands­kjör­stjórnar segir við Kjarnann að það sé rétt að það standi ekk­ert um end­ur­taln­ingu atkvæða í lögum um kosn­ingar til Alþingis, en að yfir­kjör­stjórn í hverju kjör­dæmi beri ábyrgð á taln­ing­unni, fram­kvæmd hennar og að sjálf­sögðu því að hún sé rétt.

Hún segir enn­fremur að yfir­kjör­stjórn hafi heim­ildir til að end­ur­telja, eða stemma sig af, að upp­fylltum skil­yrðum sem almennt gilda um taln­ingu atkvæða. Þau skil­yrði eru meðal ann­ars þau að taln­ing fari fram fyrir opnum tjöldum, umboðs­menn fái að vera við­staddir og að með­ferð kjör­gagna sé í sam­ræmi við lög.

Lokatölur til fjölmiðla þýða ekki að öllu sé lokið

Í lögum um kosn­ingar til Alþingis segir að yfir­kjör­stjórnir skuli skila nið­ur­stöðum sínum til lands­kjör­stjórnar „taf­ar­laust“.

Spurð hvort mis­brestur hafi orðið á því útskýrir Kristín að málið sé flókn­ara en svo að loka­töl­unum beri að skila inn til lands­kjör­stjórnar um leið og þær hafi verið gefnar út til fjöl­miðla. Talningu atkvæða sé nefni­lega ekki form­lega lokið af hálfu yfir­kjör­stjórna fyrr en búið sé að fara yfir breytta kjör­seðla og senda þær nið­ur­stöður til lands­kjör­stjórnar. Þeirri vinnu sé ekki enn lokið.

Engin tilmæli frá landskjörstjórn um gæðaprufur

Lands­kjör­stjórn lét, eins og áður hefur komið fram, yfir­kjör­stjórn­irnar tvær vita af því að fá atkvæði gætu breytt þing­manna­skipan. Kristín segir að í þeim ábend­ingum hafi ekki falist nein til­mæli um að rýna sér­stak­lega í taln­ing­una að nýju.

[adspot]

„Nei, engin til­mæli og ekki neitt, enda höfum við ekk­ert um það að segja. Hins vegar sáum við á þeim nið­ur­stöðum sem yfir­kjör­stjórnir höfðu gefið fjöl­miðlum upp að það mun­aði mjög litlu, það mun­aði tveimur atkvæðum,“ segir Kristín.

Hún bætir því við að yfir­kjör­stjórn­irnar hafi verið látnar vita, meðal ann­ars til að hægt væri að upp­lýsa umboðs­menn stjórn­mála­flokk­anna um stöð­una, svo þeir gætu tekið ákvarð­anir með full­nægj­andi upp­lýs­ingar undir höndum. Umboðs­menn gætu til dæmis viljað óska eftir end­ur­taln­ingu í ljósi þess hve fá atkvæði þyrftu að hnikast til svo úrslit breytt­ust.

Vilja útrýma vafa um rétta niðurstöðu í Suðurkjördæmi

Kjarninn beindi spurn­ingum um gæða­út­tekt­ina sem fram­kvæmd var í Suð­ur­kjör­dæmi til Þóris Har­alds­sonar for­manns yfir­kjör­stjórnar þar. Hann segir að end­ur­taln­ing kvölds­ins sé að mati yfir­kjör­stjórnar „umfram laga­skyldu“.

„Það að telja aftur er að okkar mati umfram laga­skyldu en er af okkar hálfu ætlað að útrýma öllum vafa um að rétt nið­ur­staða fáist og þannig nái vilji kjós­enda fram að ganga - sem er jú til­gang­ur­inn með lýð­ræð­is­legum kosn­ingum,“ segir Þórir í skrif­legu svari til Kjarnans.

Um gæða­út­tekt gær­dags­ins segir hann: „Yfir­kjör­stjórn ber ábyrgð á sinni fram­kvæmd og þegar kom í ljós að mjög fá atkvæði skildu fram­bjóð­endur að, ákváðum við að gera gæða­út­tekt á eigin vinnu­brögðum. Hún fólst í því að yfir­fara flokkun atkvæða í hluta af atkvæða­bunkum sem fyrir lágu. Við álitum það vera okkar skyldu en engin end­ur­taln­ing fór fram. Umboðs­menn fram­boða voru ekki við­staddir þessa gæða­út­tekt,“ segir Þórir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár