„Þetta er bara bölvað rugl“

Þing­maður Pírata telur að ekki sé heim­ild til að end­ur­telja atkvæði þegar yfir­kjör­stjórn er búin að skila skýrslu til lands­kjör­stjórnar.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Við erum að skoða hvernig lögin eru varð­andi þetta. Við sjáum ekki að það sé heim­ild til að end­ur­telja þegar yfir­kjör­stjórn er búin að skila skýrslu til lands­kjör­stjórnar – þá eru þau bara búin. Þau geta ekki farið að rölta yfir í næsta her­bergi og taka inn­sigli af – sem voru ekki einu sinni til staðar – og end­ur­telja af því bara. Og án þess að umboðs­maður sé til staðar, þetta er bara bölvað rugl.“

Þetta segir Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata í sam­tali við Kjarnann. Um miðjan dag í gær greindu fjöl­miðlar frá því að öll atkvæði í Norð­vest­ur­kjör­dæmi yrðu talin aftur vegna þess hversu lít­ill munur var á jöfn­un­ar­þing­mönnum á milli kjör­dæma. Ingi Tryggva­son, yfir­maður kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sagði að kjör­stjórn hefði ákveðið að telja atkvæðin aftur vegna lít­ils munar. Enginn flokkur hefði farið fram á end­ur­taln­ingu. Eftir end­ur­taln­ing­una færð­ust jöfn­un­ar­sæti flokka á milli kjör­dæma og þannig viku fimm ein­stak­lingar sem töldu sig vera inni á þingi í gær­morgun fyrir öðrum fimm seinni part­inn.

Björn Leví segir að það bjóði upp á „alls konar rugl“ þegar yfir­kjör­stjórn sé búin að senda inn sínar tölur en þegar hún sjái nið­ur­stöð­una á lands­vísu ákveði hún að fara í end­ur­taln­ingu. „Þetta bara gengur ekki.“

Hvaða tölur á að nota?

„Spurn­ingin hjá okkur er hvort lands­kjör­stjórn ætli að nota töl­urnar sem komu úr upp­runa­legu skýrsl­unni eða end­ur­taln­ing­una. Við sjáum ekki að það sé heim­ild fyrir því í lögum að end­ur­telja yfir­leitt. Það er hægt að kæra upp­runa­legu töl­urnar – upp­runa­legu taln­ing­una – til kjör­bréfa­nefndar og þar yrði ákveðið að end­ur­telja.“

Björn Leví segir að þau hjá Pírötum séu að skoða það hvernig hægt sé að tryggja að farið sé eftir lögum um það hvernig þing­mönnum sé skilað til þings­ins þegar allt kemur til alls. „Síðan gæti komið upp alls konar vesen, eins og kærur sem kjör­bréfa­nefnd þyrfti að taka afstöðu til sem gæti leitt til ákvarð­ana um það að end­ur­telja. En núna gætu kjör­gögnin verið spillt og þá þyrfti upp­kosn­ingu.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Alþingi er kjör­bréfa­nefnd kosin á fyrsta fundi þings­ins eftir kosn­ingar. Hlutverk hennar er að prófa kjör­bréf og kosn­ingu nýkjör­inna þing­manna og vara­þing­manna. Kýs nefndin sér for­mann og fram­sögu­mann og gerir til­lögu til þings­ins um hvort kosn­ing og kjör­gengi þing­manns telj­ist gild.

„Þetta er svo mikið kaos“

Í frétt RÚV í morgun kom fram að óskir hefðu komið fram um end­ur­taln­ingu atkvæða í Suð­ur­kjör­dæmi og muni yfir­kjör­stjórn þar taka afstöðu til þess á fundi í dag. Kristín Edwald, for­maður lands­kjör­stjórnar, segir í sam­tali við RÚV að miðað við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar sjái hún ekki þörf á end­ur­taln­ingu í öðrum kjör­dæmum. Það sé þó yfir­kjör­stjórna á hverjum stað að taka ákvörðun um það enda hafi lands­kjör­stjórn ekki boð­vald yfir yfir­kjör­stjórnum.

Björn Leví segir í því sam­hengi að ekki sé tími til að end­ur­telja. „Þetta er svo mikið kaos.“

„Við ætlum að funda með lög­fræð­ingum og skoða þetta. Gömlu kosn­inga­lögin eru hnoð­texti og ekk­ert rosa­lega þjált orð­aður. En alla­vega er það mjög skýrt að end­ur­taln­ing eða eitt­hvað sem teng­ist því er hvergi í text­anum í lög­unum. Það er bara talað um taln­ingu og þegar yfir­kjör­stjórn telur þá getur hún alltaf tekið bunk­ann sem hún er búin að telja og talið aftur. Þau marg­telja hvort sem er og það er ekk­ert óeðli­legt. En þau voru búin að senda frá sér tölur og þá á taln­ingin að vera búin. Það er ekk­ert sem heitir end­ur­taln­ing eftir þann part. End­ur­taln­ing áður en kjör­stjórn sendir frá sér skýrslu er allt annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár